Morgunblaðið - 12.03.2013, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Gel Perlur Plástur
„Eftir aðeins 4-6 daga var
ég orðinn verkjalaus“
Undanfarinn áratug hef ég verið með mikinn stirðleika og verki í
hnjám, þannig að ég hef orðið að minnka alla hreyfingu. Á sama
tíma hef ég verið að taka inn allskonar náttúrulyf til að bæta
líðan mína með engum árangri. Svo var mér bent á Regenovex
gel og eftir aðeins 4-6 daga var ég orðinn verkjalaus og
stirðleikinn hvarf að mestu. Nú hef ég notað gelið og hylkin í 6
mánuði með frábærum árangri. Ég er farinn að taka þátt í göngu
og ýmsu öðru með eldri borgurum. Ég hef sagt víða frá reynslu
minni og margir hafa farið að nota Regenovex gel með góðum
árangri.
Ólafur Kristjánsson, 72 ára.
Icepharma
Kynntu þér málið á regenovex.is
Hýalúrónsýra
Viðheldur heilbrigðum liðum og liðleika
Hýalúrónsýra er lykilefni í brjóski og í
liðvökvanum í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin
auka virkni liðvökvans sem virkar smyrjandi og
höggdeyfandi á liðina. Með aldrinum gengur á
þessar birgðir og með því að taka inn Regenovex
endurhlöðum við þessar birgðir líkamans.
Bionovex olía
Hefur bólgueyðandi eiginleika
Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina
er ekki nægjanlegt geta myndast bólgur og sársauki.
Bionovex olían er unnin úr grænkræklingi og er því
náttúruleg. Bionovex olían inniheldur einstaka omega 3
olíu sem finnst aðeins í þessari tegund grænkræklings
og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.
Ný kynslóð af liðvernd
Einstök samsetning Regenovex
Regenovex hentar öllum sem leita að bættri heilsu í liðum
Með hverri keyptri vöru frá
Regenovex fylgir einn plástur
KAUPAUKI Í MARS
Í LYFJUM OG HEILSU
Tvíburabræður sem eru nýsjálensk-
ir ríkisborgarar en hafa dvalið hjá ís-
lenskum föður sínum og tveimur
bræðrum á Íslandi undanfarið ár fá
ekki dvalarleyfi hér á landi sam-
kvæmt ákvörðun Útlendingastofn-
unar. Þeir þurfa því að yfirgefa land-
ið í byrjun apríl.
Tvíburarnir sóttu um dvalarleyfi á
grundvelli fjölskyldusameiningar 16
dögum fyrir 18 ára afmæli sitt í
fyrrasumar. Nauðsynleg gögn
fylgdu á hinn bóginn ekki með og
umsóknin var því ekki tekin til
greina, m.a. vegna þess að Útlend-
ingastofnun verður að hafa tekið
slíka ákvörðun fyrir 18 ára afmæl-
isdag viðkomandi.
Útlendingastofnun tók þá til at-
hugunar hvort bræðurnir ættu rétt á
dvalarleyfi í ljósi sérstakra tengsla
þeirra við landið. Í ákvörðuninni er
bent á að slíkt leyfi megi aðeins veita
ef tengslin eru svo sterk að ósann-
gjarnt væri að veita það ekki. Heim-
ildina beri að túlka þröngt.
Að mati Útlendingastofnunar geti
það eitt að þeir eigi nána ættingja
hér á landi ekki réttlætt útgáfu dval-
arleyfis á grundvelli sérstakra
tengsla, þrátt fyrir að faðir hans og
bræður séu íslenskir ríkisborgarar.
Óhjákvæmilegt sé að líta til þess að
þeir hafi alla tíð búið á Nýja-Sjá-
landi, alist þar upp hjá móður sinni
og gengið í skóla.
Tvíburum synjað um dvöl
Hálfíslenskir 18 ára tvíburar þurfa að yfirgefa landið
Bjuggu hjá móður sinni á Nýja-Sjálandi og ólust þar upp Alls voru 52 fast-
eignir seldar
nauðungarsölu
hjá sýslumann-
inum í Reykjavík
fyrstu tvo mánuði
ársins. Fyrstu tvo
mánuði ársins
2012 voru 54
íbúðir seldar
nauðungarsölu
hjá sýslumann-
inum í Reykjavík og fækkar því um
tvær á milli ára. Ef litið er til fyrstu
tveggja mánaða ársins 2011 var
fjöldi seldra fastaeigna á nauðungar-
sölu þá 22.
Samtals eru því nauðungarsölur
fasteigna fyrstu tvo mánuði ársins 30
fleiri en fyrstu tvo mánuðina 2011.
Alls voru nauðungarsölur fast-
eigna hjá sýslumanninum í Reykja-
vík 505 árið 2012 og 384 árið 2011.
Skráðar beiðnir um nauðungar-
sölu fasteigna voru alls 543 fyrstu
tvo mánuði ársins en allt árið í fyrra
voru þær 2.450, árið 2011 voru þær
alls 2.251
Nauðungarsölur færri
fyrstu tvo mánuði ársins
Neyð Nauðungar-
sölum fækkar.
Ríkisendurskoðun telur að Háskóli
Íslands hafi brugðist með fullnægj-
andi hætti við ábendingum stofn-
unarinnar frá 2010 um verktöku
fastráðinna akademískra starfs-
manna.
Í byrjun árs 2010 birti Ríkisend-
urskoðun skýrslu þar sem athygli
var beint að allháum verktaka-
greiðslum Háskóla Íslands til nokk-
urra fastráðinna starfsmanna sinna
og félaga sem þeir áttu eða tengd-
ust. Greiðslurnar voru fyrir kennslu
sem skilgreind var sem endur-
menntun. Að mati Ríkisendurskoð-
unar báru þær ýmis merki svokall-
aðrar „gerviverktöku“ en hún felst í
því að einstaklingur þiggur verk-
takagreiðslur fyrir störf sem eru í
eðli sínu venjuleg launavinna.
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoð-
unar kemur fram að nú þremur ár-
um síðar hafi Háskólinn brugðist
með fullnægjandi hætti við öllum
þessum ábendingum. Reglum hefur
verið breytt á þann veg að fastráðnir
starfsmenn skólans geta ekki jafn-
framt verið verktakar við hann. Þá
er skólanum nú óheimilt að kaupa
þjónustu af starfsmönnum á starfs-
sviði þeirra eða af félögum sem þeir
eða fjölskyldumeðlimir þeirra eiga
verulegan hlut í.
HÍ brást
rétt við
Fastráðnir
starfsmenn ekki
lengur verktakar
Skóli Aðalbygging Háskóla Íslands.
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdasýsla ríkisins hefur
fyrir hönd innanríkisráðuneytisins
óskað eftir tilboðum í framkvæmdir
við jarðvinnu á lóð fangelsis á
Hólmsheiði og nýlagnir veitna að
henni. Verkinu skal að fullu vera
lokið eigi síðar en 15. október 2013
en þó skal skila framkvæmdum inn-
an lóðar fyrr, eða þann 28. júní
2013.
Nýja fangelsið verður með 56
fangarýmum og á að leysa af hólmi
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg
og fangelsi í Kópavogi. Þá er og
gert ráð fyrir að gæsluvarðhalds-
deild á Litla-Hrauni verði lögð nið-
ur og aðstaða hennar tekin fyrir af-
plánun. Stefnt er að því að því að
ljúka framkvæmdum og taka bygg-
inguna í notkun vorið 2015.
Útboðsgögn vegna framkvæmda
við jarðvinnu og nýlagnir veitna
verða til sýnis og sölu á hjá Rík-
iskaupum frá og með þriðjudeg-
inum 12. mars. Tilboð verða opnuð
26. mars 2013.
Útboð vegna fang-
elsis á Hólmsheiði