Morgunblaðið - 12.03.2013, Side 27
UMRÆÐAN 27Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARS 2013
Leikritið endalausa um drög að
nýrri stjórnarskrá er orðið að farsa.
Ég spyr, er fólk sem fór á kjörstað
til þess að gefa
samþykki sitt fyr-
ir því að upp-
hafleg drög að
stjórnarskrá yrðu
notuð til grund-
vallar að nýrri
stjórnarskrá, sátt
við að þeim drög-
um hefur verið
kastað fyrir róða?
Þarf þjóðin ekki að fá að leggja
blessun sína yfir þær breytingar
sem þingmenn eru að gera á drög-
unum? Þetta er ekki lengur sama
plaggið og ekki annað að sjá og
heyra en að vinstrimenn á Íslandi
ætli sér að hafa fjölda manns að fífl-
um eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna
um drögin. Nú eru þessi drög mikið
breytt og vinstrimenn hafa dregið
einhvern allt annan texta úr hatti
sínum en þann sem kosið var um.
Stjórnmálamenn gefa stjórnar-
skránni langt nef
Svo því sé haldið til haga þá er ég
staðfastur í þeirri trú að bæta þurfi
núverandi stjórnarskrá, ekki endur-
skrifa hana. Ég er þeirrar skoðunar
að það hafi ekki verið uppi krafa í
þjóðfélaginu um að skrifa nýja
stjórnarskrá heldur að bæta þyrfti
núverandi stjórnarskrá þannig að
stjórnkerfið og stjórnmálamenn
gætu ekki komist upp með að
hundsa stjórnarskrána. Stjórn-
málamenn lýsa því til dæmis blygð-
unarlaust yfir að EES og jafnvel
Schengen-samningurinn samrýmist
ekki stjórnarskránni. Þeir gefa
stjórnarskránni þar með langt nef. Í
staðinn fyrir að ganga í það að virða
stjórnarskrána þá er farið í það að
fleygja henni og skrifa nýja. Við
þurfum ekki nýja stjórnarskrá.
Hin raunverulega krafa
þjóðarinnar
Íslensk alþýða þarf tæki sem hún
getur notað til þess að neyða stjórn-
málamenn til að fara eftir núverandi
stjórnarskrá. Það er hægt að gera
með einfaldri breytingu á stjórn-
arskránni. Við bætum inn ákvæði
um rétt þegnanna til þess að krefj-
ast þjóðaratkvæðis og ákvæði um
stjórnlagadómstól sem allir geta
leitað til. Það held ég að hafi verið
hin raunverulega krafa þjóðarinnar.
HELGI HELGASON,
stjórnmálafræðingur og stuðn-
ingsmaður Hægri grænna, flokks
fólksins.
Þurfum við ekki að
fá að kjósa aftur um
stjórnarskrárdrögin?
Frá Helga Helgasyni
Helgi Helgason
Enginn sem ég hef umgengist á lífs-
leiðinni, hefur minnst einu einasta
orði á laxveiðar í Þjórsá og þó hef ég
átt samskipti við nokkur hundruð
stangveiðiáhugafólks. Áin er enda
slík aurvilpa allajafna að mann tekur
í hjartað að laxa-, silunga- og jafnvel
sjóbirtingsseiði skuli alast upp í
þessu mikla jökulfljóti. Ekki síst þeg-
ar grjótflug er í því, líkt og í leys-
ingum, þegar hnefastórir steinar
æða áfram innan um sandsúginn í
öskugráum iðunum. Allir sem séð
hafa Þjórsá af brúnni í þvílíkum ham
– og gildir þá einu hvort átt er við
gömlu brúna eða þá nýju – vita
hverju verið er að lýsa.
Urriðafoss sést að vísu ekki af
brúnni, þeirri nýju og glæsilegu – en
hann kvað vera fagur, þegar ekki er
mikið í ánni og logn yfir fold, í mið-
dagssól á útmánuðum, skilst mér.
Miðað við margar myndbirtingar er
þó þarna bara ógeðfelldur svelgur
sem orðið hefur margri skepnunni að
aldurtila – einnig mönnum, minnir
mig.
Betur leist mér á tölvuteiknaða
mynd af Urriðafossvirkjun sem birt-
ist í Morgunblaðinu fyrir mörgum
árum, þegar sérfræðingar Lands-
virkjunar höfðu hannað rennslis-
virkjun sem stillti af straumþunga
árinnar, innan þekktra marka og
skapaði í leiðinni laglegt lón eða lítið
stöðuvatn, upplagt fyrir seglbáta eða
aðrar kænur sumarbústaðaeigenda í
grennd. Jafnvel þótt talsvert gras-
lendi fari í súginn – nóg er nú til af
því.
Engin á hefur verið tekin jafn föst-
um tökum og Þjórsá, síðan nútíma
virkjanasagan hófst á Íslandi, fyrir
fáum en afdrifaríkum áratugum síð-
an. Nema kannski Sogið – með graf-
alvarlegum afleiðingum fyrir risaurr-
iðann í Þingvallavatni. Nokkuð sem
tæpast gerðist nútildags, enda hefur
ríkuleg reynsla safnast saman og
menn orðnir margs vísari á þessu
sviði sem öðrum.
Fleiri sigrar í þágu sjálfbærrar
grænnar orku, munu halda nafni Ís-
lands á lofti um ókomna tíð – fái spor-
gangararnir og of-græna fólkið frí
frá stjórn landsmála, í kjölfar kom-
andi kosninga.
PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON,
leigubílstjóri.
Áframhaldandi uppbygging
atvinnulífsins er fremri seið-
um laxfiskistofna í Þjórsá
Frá Páli Pálmari Daníelssyni
Enn þá kemur upp forræðishyggja
alþingismanna sem telja má að ekki
sé annað en þjófnaður.
Nokkrir þing-
menn hafa fengið
þá hugmynd að
snúa eignarrétti
manna við með
því að skylda
menn til að und-
irgangast brott-
nám líkamsparta
eftir andlátið ef
þeir ekki gefa
staðfesta yfirlýs-
ingu um að þeir vilja ekki slíkt.
Slík ákvörðun þingmanna að lög-
festa þjófnað á líkamspörtum er að-
eins byrjunin á því að eignir fólks
gangi óskiptar til ríkisins eftir and-
lát þess í þeim tilgangi að bæta eft-
irlaun þingmanna og ráðherra.
Er kominn tími til að stöðva þá
heimsku forræðishyggju sem sumir
þingmenn þjást af. Þessi framkoma
þingmanna er sýnishorn af því sið-
leysi sem viðgengst í þingsölum Al-
þingis þar sem þeir virðast ekki
vera færir um að sinna nauðsynleg-
ustu stjórnunarstörfum sem þeim
hefur verið falið en það er að halda
þjóðarskútunni á floti og er vísað
þar til þess siðleysis er viðgengst í
fjármálum heimilanna eftir banka-
ránin og ofurgróða bankanna frá
þeim tíma er þeir voru rændir.
Þess stofnun á líkamspartabank-
anum er vísbending um það getu-
leysi sem einkennir öll störf þing-
manna við stjórnun á þjóðmálum.
Þetta mál er sett fram til að breiða
yfir það stjórnleysi sem ríkt hefur í
þjóðmálum undanfarin ár.
Slíkur líkamspartaþjófnaður yrði
algengur við andlát barna sem ekki
hefðu haft þann þroska til að gefa
yfirlýsingu um bann við notkun lík-
ama síns sem partaúthlutun.
Þingmenn ættu að sjá sóma sinn
í að senda svona vitlausar hug-
myndir til upphafs síns og leyfa
þeim sem lifa að vera í friði fyrir
slíkri forræðishyggju. Ef menn hafa
áhuga á að vera nýttir í smápörtum
eftir andlátið, eins og gert er með
aflóga bifreiðar sem enda á bíla-
partasölum, þá á þeim að vera
frjálst að offra sínum búk í slíkt en
það er siðleysi af þingmönnum að
ætla sér að stela líkamspörtum
hinna látnu sem á endanum leiðir
til líknardrápa eins og þekkst hefur
í Kína og verið staðfest í fréttum
þaðan.
Þegar þörf verður á líkamsparti
verður einhver sem er til lækninga
látinn sofna eilífðarsvefni með hjálp
til að ná völdum líkamspörtum sem
hugsanlega geta orðið öðrum að
gagni. Það eru nógu mörg tilvik þar
sem sjúklingar sofna eilífðarsvefni
við minniháttar aðgerðir þótt ekki
verði ýtt undir slíkt.
Í fréttum hefur verið upplýst að
vegna aukins álags á sjúkrastofn-
anir hafi fleiri andast en gert var
ráð fyrir vegna skorts á hinni al-
mennu heilsugæslu.
Stöðva þarf forræðishyggju þing-
manna á öllum sviðum er snúa að
líkamspartabankanum.
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
fv. skipstjóri
Líkamspartabankinn
Frá Kristjáni Guðmundssyni
Kristján
Guðmundsson
Svarið við spurningu dagsins
Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is
tilbúnar í pottinn heima
Fiskisúpur í Fylgifiskum
Verð 1.790 kr/ltr
Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér.
Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska
eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram.
Hvað þarftu mikið?
Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann
Verslunareigendur!
Ítalskir pappírspokar
í úrvali
Eingöngu sala
til fyrirtækja
Opið 08.00 - 16.00
www.flora.is | info@flora.is | Réttarhálsi 2 | 110 Rvk | Sími: 535 8500
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift