Morgunblaðið - 14.03.2013, Side 1
AUKIN
RÉTTINDI
FLUGFARÞEGA
F I M M T U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 61. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLG
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
HAFSTEINN
HUGMYNDARÍKUR
HÖNNUÐUR
JOHN GRANT
AFTUR KOMINN Á
GELGJUSKEIÐIÐ
VIÐSKIPTI SAMSTARF VIÐ BIRGI 50HÖNNUNARMARS 32 SÍÐUR
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Már Guðmundsson seðlabankastjóri
hefur væntingar um að hægt verði
að ná fram 75% niðurskriftum á
krónueignum erlendra kröfuhafa
þrotabúa föllnu bankanna. Þetta
kom fram í erindi hans á íslenska
fjárstýringardeginum í HR sl. föstu-
dag.
Már sagði að nauðasamningsleið-
in yrði aðeins farin ef það næðist
„pakkalausn“ um hvernig losa mætti
um krónueignir kröfuhafa. Talaði
seðlabankastjóri um „krónuhreins-
un“ í því sambandi, auk þess sem
hann benti á að „fullt af kröfuhöfum
væri nákvæmlega sama“ um krónu-
eignir gömlu bankanna – þær nema
um 450 milljörðum króna – og þeir
„vilji bara“ fá erlendu eignirnar.
Seðlabanki Íslands skikkaði Glitni
í árslok 2012 til að skuldbreyta
gjaldeyrislánum innlendra fyrir-
tækja í íslenskar krónur. Áætlaðar
heimtur lánanna eru 21 milljarður.
Sérfræðingar á markaði telja að
með þessu ætti að draga úr þrýst-
ingi á gengi krónunnar þar sem fyr-
irtækin, sem hafa tekjur í krónum,
þurfi ekki lengur að sækja sér gjald-
eyri á markaði til að standa undir
erlendum skuldbindingum sínum.
Á meðal sviðsmynda sem kröfu-
hafar Glitnis og Kaupþings leggja
upp með í nauðasamningaferlinu er
að bjóða innlendum kröfuhöfum,
sem eiga 7% allra krafna í búin,
hærri endurheimtur – að því gefnu
að þeir fái aðeins greiddar krónu-
eignir. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins hefur til að mynda verið
nefnt að þeir fái 18% allra heimtna,
en erlendir kröfuhafar fái á móti
82%.
MSeðlabankastjóri »Viðskipti
Væntir 75% niðurskrifta
Seðlabankastjóri boðar „krónuhreinsun“ kröfuhafa Glitnir skuldbreytti 21
milljarðs evruláni í krónur Innlendum kröfuhöfum boðnar hærri heimtur
„Krónuhreinsun“
» Seðlabankastjóri segir
nauðasamningsleiðina aðeins
farna ef „pakkalausn“ næst
um hvernig losa megi um
krónueignir kröfuhafa.
» Seðlabanki Íslands frest-
aði birtingu á nýrri skýrslu
um erlenda stöðu þjóðarbús-
ins á síðustu stundu fyrir
helgi.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Leitt hefur verið í ljós í nýrri ís-
lenskri rannsókn að tengsl eru á
milli hjartsjúkdómsins gáttatifs og
minnkaðs heilarúmmáls og minnis-
skerðingar.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
birtar í vísindatímaritinu Stroke en
höfundar hennar eru vísindamenn
við Landspítala – háskólasjúkrahús
og Rannsóknarstöð Hjartaverndar.
Davíð O. Arnar hjartasérfræðingur
og Vilmundur Guðnason, prófessor
og forstöðulæknir Hjartaverndar,
stóðu fyrir rannsókninni. 4.251 þátt-
takandi var skoðaður í öldrunar-
rannsókn Hjartaverndar.
Að sögn Vilmundar eru niðurstöð-
urnar mikilvægt viðbótarframlag til
skilnings á afleiðingum þessa hjarta-
sjúkdóms. Sérstaklega var skoðað
sambandið milli gáttatifs, heila-
starfsemi og vefrænnar uppbygg-
ingar heilans í eldri einstaklingum. Í
ljós kom að gáttatif hefur neikvæð
áhrif á heilastarfsemi óháð heila-
blóðföllum.
Þessum tengslum gáttatifs og
heilarýrnunar, sem svarar til u.þ.b.
eins og hálfs árs öldrunar heilans,
hefur ekki verið lýst áður. »4
Gáttatif hefur áhrif á heilarýrnun
Ný rannsókn sýnir að gáttatif hefur neikvæð áhrif á heilastarfsemi og minni
Vilmundur
Guðnason
Davíð O.
Arnar
Lyktarmengun af urðunarstað
sorpúrgangs í Álfsnesi hefur verið
íbúum í Leirvogstunguhverfi í Mos-
fellsbæ til ama undanfarin ár. Lykt-
armengunarvarnir Sorpu hafa ekki
borið árangur. „Við sjáum enga
lausn nema þá að starfsemin fari af
svæðinu,“ segir Rúnar Þór Guð-
brandsson, formaður íbúasamtaka
Leirvogstunguhverfis. »6
Ólykt íbúum í
Mosfellsbæ til ama
Skortur er á
sérhæfðu vinnu-
afli í ferðaþjón-
ustu, þar með tal-
ið kokkum, og
þarf því að flytja
inn starfskrafta.
Þetta segir
Kristófer Oli-
versson, fram-
kvæmdastjóri
Center Hotels.
Eyðsla erlendra ferðamanna í
janúar sló met og var þá 151 milljón
króna að meðaltali á dag. Það er
54% aukning milli ára. »24
Þurfa að flytja
inn vinnuafl
Skortur er á
kokkum.
Í nýútkominni
bók um búsá-
haldabyltinguna,
eftir Stefán Gunn-
ar Sveinsson, er
rifjuð upp fram-
ganga Álfheiðar
Ingadóttur, þing-
manns Vinstri
grænna, þegar
hún stóð á gler-
brúnni á milli Al-
þingishússins og viðbyggingarinnar.
Í kjölfarið mun hún m.a. hafa sagt við
Sigurð F. Gunnarsson, sem tilheyrði
sérsveit ríkislögreglustjóra: „Já,
farðu bara, lífvarðatitturinn þinn sem
eltir ráðherraræfil alla daga.“ »21
Lífvarðatittur sem
eltir ráðherraræfil
Mótmæli Búsá-
haldabyltingin.
Jorge Bergoglio, kardináli frá Argentínu, var í
gær kosinn páfi kaþólsku kirkjunnar. Hann hef-
ur tekið sér nafnið Frans I. Hann er 76 ára gam-
all og fyrsti páfinn sem er frá Suður-Ameríku.
Bergoglio varð kardináli árið 2001. Frans I.
ávarpaði mannfjöldann á Péturstorgi í gær og
sagði að svo virtist sem bræður sínir í kirkjunni
hefðu farið langa leið til að velja næsta biskup
Rómar. »28
Fyrsti páfinn sem er frá Suður-Ameríku
AFP
Jorge Bergoglio frá Argentínu er nýskipaður páfi kaþólsku kirkjunnar