Morgunblaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Keppt verður í tölti í fjórða móti
meistaradeildarinnar í hestaíþrótt-
um sem fram fer í Ölfushöllinni í
kvöld kl. 19. Margir af bestu knöp-
um landsins mæta með góða tölt-
ara. Knapar hafa æft stíft og fram
hefur komið að margir ætla sér
stóra hluti í kvöld.
Ráslistar hafa verið birtir. Sigur-
steinn Sumarliðason byrjar á
Skjönn frá Skjálg og næstur er
Guðmundur Björgvinsson á Hrímni
frá Ósi en Guðmundur er með for-
ystu í einstaklingskeppni meistara-
deildarinnar.
Sara Ástþórsdóttir sigraði í tölt-
keppninni fyrir ári á Dívu frá Álf-
hólum. Þær taka ekki þátt í vetur.
Jakob Svavar Sigurðsson sem varð
í öðru sæti og Hulda Gústafsdóttir
sem var í því þriðja mæta til keppni
en á öðrum hestum en í fyrra.
Íslandsmeistararnir í tölti, Árni
Björn Pálsson og Stormur frá Herr-
íðarhóli, taka þátt.
Töltveisla
í Ölfushöll-
inni í kvöld
Vel er æft og
margir ætla sér sigur
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Dívur Sara Ástþórsdóttir og Díva
frá Álfhólum sigruðu síðast.
Magnús Hall-
dórsson, við-
skiptaritstjóri
Vísis og Stöðvar
2, hefur sagt upp
störfum. Magnús
skrifaði pistil á
vefinn Vísi.is ný-
verið þar sem
hann gagnrýndi
afskipti Jóns Ás-
geirs Jóhannes-
sonar af ritstjórn miðlanna. Jón er
eiginmaður Ingibjargar Pálmadótt-
ur, aðaleiganda 365.
Magnús mun starfa hjá 365 til 1.
júní nk.
Miklar mannabreytingar hafa
verið í helstu stjórnunarstöðum 365
undanfarna daga. Þórður Snær Júl-
íusson, viðskiptaritstjóri Frétta-
blaðsins, sagði upp í síðustu viku.
Mikael Torfason var ráðinn ritstjóri
Fréttablaðsins við hlið Ólafs Steph-
ensen nokkrum dögum áður.
Skömmu síðar hætti Steinunn Stef-
ánsdóttir, aðstoðarritstjóri Frétta-
blaðsins, störfum.
Magnús sagði
upp hjá 365
Magnús
Halldórsson
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Framganga Álfheiðar Ingadóttur,
þáverandi þingmanns og núverandi
þingflokksformanns VG, í bús-
áhaldabyltingunni svokölluðu er rifj-
uð upp í nýrri bók, eftir sagnfræð-
inginn Stefán Gunnar Sveinsson,
sem kemur í verslanir í dag.
Í bókinni, sem ber heitið Bús-
áhaldabyltingin - sjálfsprottin eða
skipulögð?, fer Stefán Gunnar yfir
atburðarás mótmælanna en við
vinnslu bókarinnar ræddi hann við
fjölda fólks sem tók beinan eða
óbeinan þátt í atburðum þessum auk
þess sem hann hafði aðgang að áður
óbirtum trúnaðargögnum.
Álfheiður virtist skemmta sér
Í bókinni ræðir Stefán Gunnar við
ekkju Sigurðar Freys Gunnars-
sonar, en hann var meðlimur í sér-
sveit ríkislögreglustjóra í um áratug
og einn af lífvörðum Geirs H.
Haarde meðan á mótmælunum stóð.
Sigurður Freyr var einmitt í gler-
brúnni 20. janúar 2009 á sama tíma
og Álfheiður stóð þar og veifaði til
mótmælenda. Áð-
ur en hann lést
greindi Sigurður
Freyr eiginkonu
sinni frá því sem
gerðist þann dag.
„Sá hann [Sig-
urður] síðan hvar
hún veifaði til
einhverra í
mannfjöldanum
og virtist honum
sem hún væri að hvetja fólk, mót-
mælendur, áfram með handahreyf-
ingum þarna í glerhýsinu. Virtist
sem hún hefði skemmtun af því sem
var að gerast fyrir utan og talaði
hún um það hvar lögreglumenn
væru staðsettir og vísaði mótmæl-
endum veginn,“ segir í bókinni um
atvik þetta.
Þá mun Sigurður hafa fengið
kaldar kveðjur frá Álfheiði þennan
dag. „Hún sagði við lögreglumann-
inn þegar hann var að ganga frá
henni: „Já, farðu bara lífvarðatitt-
urinn þinn sem eltir ráðherraræfil
alla daga,“ segir í bókinni.
„Mér bauðst tækifæri til að fá
sjónarhorn lögreglumanna og
fannst áhugavert og í raun mjög
þarft að koma því á framfæri,“ segir
Stefán Gunnar, spurður um aðdrag-
anda bókarinnar.
Að sögn Stefáns Gunnars kom
honum margt á óvart við skrif bók-
arinnar. „Sérstaklega þá hversu
hart var gengið að lögreglumönn-
unum kvöldin 20. og 21. janúar
2009,“ segir Stefán Gunnar og bend-
ir á að hann hafi talað við þó nokk-
urn fjölda lögreglumanna við
vinnslu bókarinnar, bæði almenna
lögreglumenn, yfirmenn og sérsveit-
armenn.
„Já, farðu bara, lífvarðatitturinn þinn“
Ný bók um búsáhaldabyltinguna kemur út í dag Mótmælin skoðuð frá sjónarhorni lögreglu
Stefán Gunnar
Sveinnson