Morgunblaðið - 14.03.2013, Page 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Gæði • reynsla • fagmennska
facebook.com/kjotkompani
Ármúla 38 | Sími 588 5011 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-14
Fyrir fermingarstúlkur
Kimmidoll skreytt með swarovski
kristöllum í flottum
gjafakassa
Það verður varla dregið í efa að bik-
arúrslitahelgi HSÍ um síðustu helgi
hafi verið hreinn sigur fyrir út-
breiðslu hand-
knattleiks á Ís-
landi.
Forráðamenn
HSÍ eiga mikið
hrós skilið fyrir
þá nýbreytni sem
var gerð á bikar-
keppni HSÍ sem
heitir Símabik-
arinn en til þess
hefur þurft
ákveðið hugrekki
og þor, í bland við mikinn undirbún-
ing. Þetta nýja fyrirkomulag Síma-
bikarins gekk fullkomnlega upp hjá
HSÍ þrátt fyrir að þetta hafi verið í
fyrsta skipti sem það er prófað hér-
lendis. Áhorfendur hafa sjaldan eða
aldrei verið svona margir í bikar-
keppni HSÍ en heyrst hefur að vel
yfir 10.000 manns hafi heimsótt
Laugardalshöllina um helgina en
það samsvarar því að 150.000 Norð-
menn eða 300.000 Svíar kæmu á
sambærilegan atburð þarlendis. Það
er aðeins íslenska handboltalands-
liðið sem getur trekkt svona vel að í
Laugardalshöllina.
Aðkoma helsta bakhjarls Símabik-
arins skiptir líka miklu máli enda
setur svona sterk innkoma stuðn-
ingsaðila mjög góða umgjörð á leik-
ina. Síminn gengur líka þarna fram
fyrir skjöldu og sýnir öðrum fyrir-
tækjum hérlendis á greinargóðan
hátt hversu vel er hægt að markaðs-
setja sig í samfloti við íþróttahreyf-
inguna að ógleymdum þeim sam-
félagslega stuðningi sem það sýnir
samtímis íþróttastarfinu. Það er von
að þetta verði fleiri fyrirtækjum til
eftirbreytni. Þá má heldur ekki
gleyma þætti Ríkisútvarpsins sem
gerði öllum fjórum leikjunum mjög
góð skil og gerði þessa helgi að
hreinni handboltaveislu. Það er líka
rétt að hrósa leikmönnum og stuðn-
ingsmönnum félaganna sem settu
einstaklega skemmtilegan svip á alla
leikina. Það er nefnilega merki um
styrk hvernig menn taka tapi ekki
síður en hvernig menn höndla sigur
en bæði leikmenn og áhorfendur
sýndu mikinn styrk jafnvel þó að á
þá hafi hallað í leikjunum. Það var
gaman að fylgjast með ummælum
bæði þjálfara og leikmanna í við-
tölum á RÚV í leikslok. Þjálfari
Stjörnunnar t.d. á mikið hrós skilið
fyrir það hversu uppbyggilega hann
tók á bæði sigri og ósigri í leikjum
Stjörnunnar. Það er nefnilega mikil-
vægt að sjá það jákvæða í því sem
gerist í stað þess að einblína á ein-
stakar hliðar sem fóru miður þó
auðvitað verði unnið í því að laga
þau atriði bak við tjöldin síðar.
Símabikarinn er auðvitað ekki
hafinn yfir alla gagnrýni en ég er
þess fullviss að þær gagnrýnisraddir
sem heyrst hafa eftir helgina hljóðni
þegar mesta kappið er runnið af
mönnum. Það er hins vegar mikil-
vægt að við gleðjumst yfir þessum
einstaka viðburði sem Símabikarinn
er og því þori sem HSÍ sýndi með
því að umbylta bikarkeppni sinni
með hjálp fjölmiðla, styrktaraðila,
aðildarfélaga sinna og aðdáenda ís-
lensks handknattleiks. Íþróttafélag
Reykjavíkur þakkar kærlega fyrir
sig og er þess fullvisst að framtíð ís-
lensks handknattleiks sé mun bjart-
ari en áður!
RUNÓLFUR B. SVEINSSON,
formaður handknattleiksdeildar
Íþróttafélags Reykjavíkur.
Hreinn sigur
Frá Runólfi B. Sveinssyni
Runólfur B.
Sveinsson
Bréf til blaðsins
Það er sárt til þess að
vita, að maður íslensk-
ur sé í fangelsi í Tyrk-
landi fyrir það eitt að
kaupa tilhöggvinn stein
á basar og ætla með
heim. Við Íslendingar
erum menningarþjóð,
og vitum allt um menn-
ingu og fornminjar. Við
lýstum meira að segja
yfir velþóknun okkar á
stríði við elstu menningarþjóð í okkar
heimshluta, þar sem sprengdar voru í
loft upp minjar um upphaf menning-
ar á Vesturlöndum af þvílíku hispurs-
leysi að engu verður til jafnað. Við
vitum að menning mælist í krónum
og túköllum, og því til staðfestu má
geta þess, að í þúsund ár höfum við
leitað þess hlutar menningararfsins,
sem gæti lífgað upp á
gjaldeyrisvarasjóðinn,
en týndist á leið í strætó
upp í Mosfellssveit.
Það var mikill við-
burður, þegar ríkissjón-
varpið sýndi þátt um
þessa leit að menning-
ararfinum. Kappinn Eg-
ill hárfagri deildi þar við
sinn hrokkinhærða föð-
ur um arfahlutinn, sem
hann hafði fengið hjá
kónginum á Englandi,
og þegið þar með fing-
urgull, sem þeir kölluðu hring. Það
hefði nú verið gaman, ef sjónvarps-
menn hefðu lesið Egils sögu, áður en
þeir gerðu þáttinn, en það er víst
komið úr tísku að lesa hér á landi.
Snorri Sturluson segir í formála
beggja sinna höfuðrita, að norrænir
menn séu aðfluttir frá Tyrklandi.
Ekki hefur þetta þótt gáfulegt, en síð-
astliðin fimmtíu ár hafa verið að ber-
ast hingað ábendingar, sem vísa til
þess, að eitthvað sé til í þessu. Með
samanburði á málfræði tungumála
indó-evrópskra þjóða hefur verið
hægt að finna orð, sem eiga stofn að
rekja til sameiginlegs forns tungu-
máls. Af orðasafni þessu má rekja, í
hvernig umhverfi málið hefur þróast.
Ekki er unnt að segja í lítilli grein
frá þessum rannsóknum, en geta má
þess, að í þessu orðasafni eru til fjöl-
mörg orð um fjöll, tinda og djúpa dali,
en nánast ekki um víðáttur og sléttur,
mörg um kornrækt og jarðyrkju, og
af þeirri iðju má rekja slóð þessara
þjóða til fjallahéraða Litlu-Asíu. Það
má einnig geta þess, að genetískar
rannsóknir á hveiti hafa leitt í ljós, að
allt það hveiti sem ræktað er í dag,
hvar sem er í heiminum, á rætur að
rekja til tegundar, sem enn vex villt í
Suður-Tyrklandi.
Tyrkir eru stoltir af menningu
sinni, og þeir skilja þýðingu hennar
fyrir samfélagið. Það þarf ekki annað
en heimsækja British Museum, eða
önnur fornminjasöfn á Vest-
urlöndum, til að sjá svo margt það
sem stolið hefur verið í Austur-
löndum nær. Þess vegna hafa þeir
strangt eftirlit með því að menning-
arverðmæti séu ekki flutt úr landi.
Þetta ber að virða, og hjá frum-
stæðum þjóðum eins og okkur ætti
það að vera skylda, að upplýsa fólk,
sem fer úr landi, að það geti ekki tek-
ið með sér hvað sem er heim frá þeim
löndum sem það heimsækir.
Við finnum sárt til með því fólki,
sem í fáfræði er tekið með ólöglega
hluti, og ættum þess vegna að upp-
lýsa þá sem ferðast. Annars lenda
þeir í steininum.
Tyrkinn og steinninn
Eftir Kristján Hall
Kristján Hall
» Það þarf ekki annað
en heimsækja forn-
minjasöfn á Vesturlönd-
um til að sjá svo margt
það sem stolið hefur
verið í Austurlöndum
nær.
Höfundur er fv. atvinnurekandi og er
áhugamaður um sögu og menningu.
Súgfirðingar loka veðbönkum
Kristján Helgi Björnsson og
Flemming Jessen slógu ekkert af í
sjöttu lotu í keppni um Súgfirðinga-
skálina. Þeir tóku 64,5% skor og
standa mjög vel að vígi fyrir síðustu
lotu. Ef hægt væri að veðja á sig-
urvegara væru veðbankar búnir að
loka á veðmál.
Efstu pör í sjöttu lotu:
Kristján H. Björnss. –
Flemming Jessen 142
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 127
Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirss. 121
Karl Bjarnason – Ólafur Ólafsson 120
Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss. 115
Finnbogi Finnbogas. – Árni Sverriss. 115
Meðalskor 110
Heildarstaða efstu para:
Kristján H. Björnss. –
Flemming Jessen 624
Ásgeir Sölvason – Sölvi Ásgeirsson 576
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 574
Karl Bjarnason – Ólafur Ólafsson 562
Þorsteinn Þorsteinss. – Rafn Haraldss. 561
Næst spilað mánudaginn 22. apríl
á Degi jarðar.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Þriðjudaginn 12. mars 2013 var
spilað á 14 borðum hjá félagi eldri
borgara í Hafnarfirði með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 407
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 371
Ragnar Björnss. – Oddur Halldórsson 358
Örn Ingólfsson – Örn Ísebarn 357
Ólafur Ingvarss. – Ásgeir Sölvason 352
A/V:
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 414
Helgi Einarsson – Haukur Guðmss. 387
Tómás Sigurjss. – Jóhannes Guðmanns. 382
Ásgr. Aðalsteinss. – Sveinn Snorras. 358
Sverrir Jónss. – Sæmundur Björnss. 351
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Aukablað alla
þriðjudaga