Morgunblaðið - 14.03.2013, Side 44
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Smáauglýsingar
Húsnæði íboði
Húsnæði í boði
Herbergi og íbúðir. Alltaf til leigu í
stuttan eða langan tíma. Upplýsingar
í síma 511 3030 og gsm 861 2319.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Rafvirkjun
AH-Raf. Dyrasímakerfi, töfluskipti og
öll almenn raflagnavinna. Tilboð/
tímavinna. Vönduð vinnubrögð.
ahraf@ahraf.is - Hermann, sími
845 7711, og Arnar, sími 897 9845.
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar
verslun í Hagkaup Smáralind og
Fjarðargötu 11, Hafnarfirði.
Blekhylki.is, sími 517-0150.
Garðskáli - sumarhús - gestahús
Vönduð hús úr sænskum gæðavið.
Áralöng reynsla hér á landi. Mikið
úrval af gesta- og geymsluhúsum.
Jabohús, Ármúla 36, sími
581 4070 - www.jabohus.is.
Kristalsljósakrónur - Ný sending
Nýtt sending af glæsilegum kristals-
ljósakrónum. Veggljós, matarstell og
kaffistell, kristalsglös, styttur og
skartgripir til sölu.
Bohemia Kristall, Glæsibæ,
s. 571 2300.
Óska eftir
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu. Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - sími 551 6488.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Fermingar
Fermingargjafir, veglegar og var-
anlegar. Skartgripir, úr, íslenskir silf-
urmunir, t.d. bréfahnífar, 8GB/mp4 úr
á tilboði og margt fleira á verði við
allra hæfi. ERNA, Skipholti 3, sími
5520775, www.erna.is
Bókhald
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-,
eftirlits- og gæslustörfum.
Uppl. í s. 861 6164.
Skattframtöl
Skattframtal 2013
Framtalsþjónusta fyrir einstaklinga
og rekstraraðila. Mikil reynsla - hag-
stætt verð. Uppl. í síma 517 3977.
www.fob.is. Netfang: fob@fob.is.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
FALLEG TOYOTA COROLLA 1.6,
árg. 2006. Til sölu Toyota Corolla 1.6,
ek. 112 þ., beinsk., álfelgur, loftkæl-
ing, sumar- og vetrardekk, nýskoð-
aður og smurður, fallegur og góður
bíll, verð 1.390 þús. S. 699 3181.
Glæsileg HONDA CR-V
EXECUTIVE, árg. 2007
Til sölu Honda crv, árg. 2007, sjálf-
skiptur. Ekinn 85 þ. Sumar- og vetrar-
dekk. Nýkominn úr þjónustuskoðun
hjá Bernhard umboði. Fallegur og
góður bíll. Verð 3.290 þ. S. 699 3181.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Góður í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
laga ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni
og hreinsa veggjakrot.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Elsku besti afi minn og nafni,
ég sakna þín svo sárt. Tilhugs-
unin um að ég eigi aldrei aftur
eftir að heimsækja þig, sjá þig
og knúsa þig er mjög skrítin,
þetta er allt saman svo skrítið.
Fjöldskyldan og allar góðu
minningarnar eru það sem
huggar þessa dagana. Margar
góðar minningar hafa komið upp
í hugann, þó allra mest þær
stundir sem við deildum bara
tvö saman.
Það var sko aldrei leiðinlegt
að fara í pössun til ömmu og afa,
þar fékk maður mikið dekur og
þá sérstaklega ef maður var
veikur. Afi var alltaf duglegur
að hafa ofan af fyrir mér og átt-
um við margar góðar stundir
saman. Efst í huga mínum er
Ólafur Hannesson
✝ Ólafur Hann-esson var
fæddur á Litla-
Vatnshorni í
Haukadal í Dala-
sýslu árið 1927.
Hann lést á Sól-
vangi í Hafnarfirði
19. febrúar 2013.
Útför Ólafs fór
fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju 28.
febrúar 2013.
þegar við fórum út
að tína dósir í
hrauninu og síðan
var gerð ferð í
Samkaup með dós-
irnar og fékk ég að
eiga peninginn sem
fékkst í staðinn. Við
fórum líka mikið á
klettaróló, eins og
ég kallaði hann, þar
var mest rólað sér
og klappað með fót-
unum, það þótti mér einstaklega
gaman. Það var líka alltaf gam-
an að spila við afa og af og til
kom hann með klink sem til var
inni á skrifborði og ef ég vann
fékk ég að eiga klinkið.
Ég ólst upp við afa sem mik-
inn hestamann, það var fátt
skemmtilegra en að rölta upp í
hesthús til afa eftir skóla og fá
að fara smá á bak, gefa hest-
unum, klappa og greiða þeim.
Svo leyndist líka oftast eitthvert
góðgæti inni á kaffistofu.
Afi minn var gull af manni,
þótti alltaf gaman að hafa fjöl-
dskylduna í kringum sig og vor-
um við hjá honum allt til enda.
Það eru fá orð sem koma upp í
hugann þegar maður á að kveðja
ástvin sinn. Ég mun halda uppi
minningu afa um ókomna tíð og
ávallt halda upp á daginn okkar
20. október. Ég ber nafn hans
stolt og er þakklát fyrir þann
tíma sem ég fékk með afa. Nú á
ég fallegasta engilinn á himnum
og ég veit að hann vakir yfir
mér.
Þú átt stóran stað í hjarta
mér, elsku afi minn, ég elska þig
og vona að þú hafir það gott á
þeim stað sem þú ert nú á.
Þín sonardóttir,
Ólöf.
Elsku Óli afi.
Nú ertu búinn að kveðja og
eftir sitja margar yndislegar og
fallegar minningar.
Við erum einstaklega þakklát
fyrir alltar góðu samverustund-
inar sem að við áttum saman í
Eilífsdalnum hvort sem það var
á hestbaki, við framkvæmdir eða
úti í náttúrunni.
Þú varst frábær afi og
langafi, einstaklega umburða-
lyndur og ávallt með bros á vör.
Takk fyrir allt og allt.
Alltaf vaknar ylur í
afa gamla hjarta,
er mig snertir hönd þín hlý
og heyri’ ég róminn bjarta
(Ágúst Böðvarsson.)
p.s. Ísak Már óskar þér góðr-
ar ferðar út í geim.
Davíð Már og Nanna
Guðrún.
Það var eitt kvöld að
mér heyrðist hálfvegis
barið,
ég hlustaði um stund og tók af kert-
inu skarið,
ég kallaði fram, og kvöldgolan veitti
mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra, og nú er
það farið.
(Jón Helgason.)
Þegar daginn tekur að stytta
og sól tekur að lækka á lofti fer
skólafólk að huga að haustinu.
Það er ljúfur boðberi haustsins
þegar börnin taka að trítla í
skóla með töskur á baki og
hlátrasköll þeirra óma í morg-
unkyrrðinni.
Í litlu samfélagi í Borgarfirð-
inum taka börnin morguninn
snemma til að fara í skólarútuna
á meðan foreldrarnir gera sig
klára fyrir skóladaginn í háskól-
anum. Bifröst er staður skóla-
fólks og þar ríkir samkenndin,
stórir sem smáir taka höndum
saman og gera litla samfélagið
betra með hjálpsemi og dugnaði.
Þar kynntumst við ungum
dreng. Andri Líndal brosti við
lífinu, glaður og hress, alltaf
tilbúinn að spjalla, alltaf tilbúinn
að leggja hönd á plóg. Föstudag-
ar voru oft annasamir og þegar
líða tók að helgi fór fólk að leita
eftir bílfari fyrir börnin sín sem
þurftu mörg að komast í helg-
arheimsóknir í höfuðborgina.
Þannig kynntumst við Andra,
hann var alltaf með laust pláss,
alltaf til í að leyfa litlum rössum
að fljóta með og mátti ekki
heyra á það minnst að taka fyrir
það greiðslu. Það fór því að vera
fastur liður að heyra í Andran-
um og jafnvel var hann farinn að
láta okkur vita að fyrra bragði
um áætlaða brottför. Ef skóla-
rúta barnanna var ekki komin á
þeim tíma þá var lítið mál að
hinkra, ekki færi hann að leggja
af stað og skilja börnin eftir.
Við kynntumst þessum unga
dreng æ betur. Börnin voru hrif-
in af honum, hann hafði lag á að
brjóta á bak aftur feimnina og
margt var spjallað við þau öll
þrjú, unglinginn sem sat í fram-
sætinu og ekki síður þann
yngsta sem var bara fimm ára
en afar hrifinn af voldugum
veiðijeppanum. „Lilja, börnin
þín eru snillingar,“ sagði Andri
svo oft. Það leyndi sér ekki að
Andri Líndal
Jóhannesson
✝ Andri LíndalJóhannesson
fæddist 12. ágúst
árið 1989 í Reykja-
vík og lést þann 17.
febrúar 2013. Útför
Andra fór fram frá
Víðistaðakirkju 1.
mars 2013.
hann var barngóð-
ur. Og oft var
hækkað í útvarpinu
þegar eitthvert lag
hljómaði sem hon-
um fannst að Júlía
yrði að hlusta á.
Við sendum að-
standendum inni-
legar samúðar-
kveðjur og þökkum
fyrir að hafa fengið
að kynnast þessum
glæsilega unga manni, við hefð-
um viljað fá að kynnast honum
meira og lengur en því miður
fara stundum hlutir á annan veg
en maður óskar. Eftir lifir minn-
ing um góðan brosmildan dreng.
Gunnar, Lilja og Júlía Sif.
Elsku Andri minn.
Ég get varla ímyndað mér líf-
ið án þín, Andri, þú gerðir heim-
inn að svo miklu betri stað. Þú
varst svo yndislegur og ljúfur
við alla sem þú hittir á allt of
stuttri lífsleið þinni. Ég var svo
heppin að fá að kynnast þér. Þú
áttir fallegasta bros sem ég
hafði á ævinni séð og það
bræddi alla í kringum þig svo
ekki sé talað um knúsið þitt sem
gaf svo mikla hlýju og væntum-
þykju. Ég mun aldrei gleyma
stundum okkar saman sem
veittu mér svo mikla hamingju.
Ég man svo vel þegar ég hitti
þig í fyrsta sinn og ég sá strax
að þú varst einstakur strákur.
Ég var enda með þér nánast
upp á hvern einasta dag eftir
þessi fyrstu kynni okkar. Þú
varst svo ótrúlega góður við mig
og ég á svo margar yndislegar
minningar tengdar þér. Mér
finnst erfitt að hugsa til þess að
við munum ekki eignast fleiri
minningar saman. Ég mun
geyma minningarnar um okkur
í hjartanu svo lengi sem ég lifi.
Ég votta Jóhannesi, Ingu, Jak-
obi, Binna og öðrum ástvinum
mína innilegustu samúð. Hvíldu
í friði, elsku vinur minn.
Ást,
það sem þú gerir,
það sem ég geri,
það sem við gerum.
Að elska að eilífu.
(Andri Líndal.)
Hildur Ýr Jónsdóttir.
Elsku Andri, það er erfitt að
trúa því að þú sért ekki lengur
meðal okkar, þú þessi ljúfi, fal-
legi, brosmildi og góði drengur.
Margar minningar koma upp í
hugann frá þeim tíma sem þú og
Hildur Ýr dóttir mín voruð sam-
an, strax varstu einn af okkur í
fjölskyldunni. Ýmislegt var gert
saman, farnar nokkrar bústaða-
ferðir og minnist ég sérstaklega
verslunarmannahelgar einnar
þar sem mikið var hlegið, spilað
og leikið sér í vatninu í flotgöll-
um, þú alltaf hress og kátur. Þú
varst mjög barngóður og fengu
barnabörnin mín að njóta þess.
Ég hef verið að skoða gamlar
myndir frá þessum tíma og rifj-
að upp allar skemmtilegu stund-
irnar sem við fjölskyldan áttum
með þér og mun ég geyma þess-
ar minningar og minnast þín alla
tíð. Þetta er mikill missir, ekki
síst fyrir þá sem næst þér stóðu
og ég votta aðstandendum djúpa
samúð og bið guð að blessa og
styðja foreldra þína og bræður.
Hvíl í friði, elsku vinur.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsa Björg Þórólfsdóttir.
Það er fátt jafn sárt og erfitt
og að kveðja besta vin sinn að-
eins 23 ára gamlan. Vin sem
maður var búinn að skipuleggja
líf sitt með, ætlaði að verða gam-
all með. Vin sem ég gat leitað til
þegar mér leið illa og fagnað
með þegar hlutirnir gengu upp.
Vin sem ég gat treyst fyrir öllu
og sagt mín dýpstu leyndarmál.
Sinn besta vin!
Í svona aðstöðu er um tvennt
að velja. Ég get látið sorgina
taka völdin og kafað djúpt niður
í hyldýpi tómleikans. Eða ég get
stjórnað sorginni og tekið allt
það góða sem Andri skyldi eftir
sig með mér inn í framtíðina og,
á endanum, eilífðina. En hvað er
það sem Andri skildi eftir?
Hvaða jákvæðu hluti get ég til-
einkað mér til góðs í mínu eigin
fari? Það liggur í augum uppi að
heimurinn hefur sjaldan upplif-
að jafnmikinn gleðigjafa og
Andra Líndal. Hans kristaltæra
bros, hlýja nærvera og skilyrð-
islausa ást lýsti upp hvert ein-
asta rými sem hann komst í
snertingu við. Hann var snill-
ingur í að tjá ást með innilegum
faðmlögum. Hann var ófeiminn
við það því hann vissi að það
myndi lífga upp á daginn hjá
þeim sem hann faðmaði. Hver
einasti hittingur byrjaði og end-
aði á slíku faðmlagi og hvert
einasta símtal endaði á orðun-
um: „I love you!“ Það að tjá ást
á sama hátt og Andri gerði er
nokkuð sem mun gera mig að
betri manni.
Andri hafði líka einstakt lag
á því að framkvæma frumlega
og skemmtilega hluti sem hann
myndi aldrei geta gleymt.
Hvort sem það voru skemmti-
legir hrekkir, að keyra yfir
brotnandi ís, elda lambalæri
undir jörðinni, stökkva í ískald-
an sjóinn, fara á golfvöllinn um
miðja sumarnótt og taka einn
hring eða stelast inn í Gallerý
Kjöt um nótt og borða ribeye-
steik með humarhölum þegar
við áttum að vera að læra fyrir
próf. Í nútímasamfélagi erum
við flest upptekin af okkar eigin
rútínu, sem er alltaf eins. Við
vöknum, borðum, vinnum, sinn-
um áhugamálum okkar, förum í
bíó eða keilu og sofum. Það er
sjaldan sem maður fer út fyrir
þennan ramma og gerir eitt-
hvað frumlegt, eitthvað sem
maður mun aldrei gleyma. Það
hljómar kannski skringilega, en
fyrir mér er fátt jafnheillandi
og að sitja aldraður í ruggu-
stólnum mínum og geta rifjað
upp þúsundir ef ekki tugþús-
undir mismunandi minninga,
sem allar fá mig til að hlæja,
brosa eða elska. Það gefur lífinu
lit að vera hæfilega kærulaus og
ég ætla að einbeita mér að því
að lifa eftir þeirri reglu.
Elsku Andri minn. Ég mun
sakna þín meira en orð fá lýst.
Ég mun syrgja og ég mun
örugglega gráta mikið. En ég
mun ekki vera reiður, bitur eða
þungur. Frekar ætla ég að til-
einka mér þau góðu gildi sem
þú lifðir eftir og einbeita mér að
því að elska meira og gera dag-
ana eftirminnilegri. Ég þakka
þér fyrir ferðalagið, það var
stutt en alveg ofsalega
skemmtilegt. Fleiri minningar
á ég ekki með neinni annarri
manneskju.
Elsku Ingigerður, Jóhannes,
Brynjólfur, Jakob, makar,
frændfólk og vinir. Ég votta
ykkur mína dýpstu samúð og
vona svo innilega að okkur tak-
ist að halda heiðri Andra á lofti
svo lengi sem við öll lifum.
Gabríel Þór Bjarnason.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Neðst á for-
síðu mbl.is má finna upplýsingar
um innsendingarmáta og skila-
frest.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skila-
frests.
Lengd | Hámarkslengd minn-
ingargreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Minningargreinar