Morgunblaðið - 14.03.2013, Síða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013
Saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son og danski Hammond-orgelleik-
arinn Kjeld Lauritsen hafa sent frá
sér hljómplötuna Nightfall sem hef-
ur að geyma djassstandarda,
þekkta í bland við minna þekkta.
Platan var tekin upp „live“ (lögin
flutt í einni töku) í hljóðverinu Vil-
lage Recording í Kaupmannahöfn í
fyrra og sá Thomas Vang um upp-
tökur en Hafþór Karlsson sá um
hljóðblöndun og tónjöfnun í Hafn-
arfirði. Í tilkynningu segir að
markmið flytjenda hafi verið að
nálgast afslappaða stemningu í
heimahúsi eða á djassklúbbi þegar
áheyrendur væru farnir heim og
hljóðfæraleikararnir einir eftir og
farnir að spila fyrir sjálfa sig, „bún-
ir að sanna allt sem sanna þarf“,
eins og því er lýst. Aðrir hljóðfæra-
leikarar á plötunni eru trommuleik-
arinn Kristian Leth og gítarleik-
arinn Jacob Fischer sem er með
þekktari djasstónlistarmönnum
Danmerkur. Útgefandi plötunnar
er Storyville í Kaupmannahöfn en
Dimma ehf. sér um dreifingu á Ís-
landi. Storyville hefur áður gefið út
plötu með Sigurði, Land & Sky, ár-
ið 2011 en hana vann hann með
söngkonunni Cathrine Legardh. Sú
plata hefur að geyma 20 frumsamin
lög við ljóð Legardhs.
Nightfall hefur verið kynnt með
tónleikum í Kaupmannahöfn og Ár-
ósum og fleiri tónleikar verða
haldnir í Danmörku í mars og apríl.
Hinn 4. apríl nk. gefur Storyville
svo út plötu með Legardh og
skoska píanóleikaranum Brian
Kellock, Love still wears a smile, en
Sigurður stýrði upptökum á henni
og hafði umsjón með eftirvinnslu.
Er það þriðja platan sem Sigurður
kemur að sem gefin er út af Story-
ville.
Sigurður á þremur
plötum Storyville
Iðinn Sigurður Flosason blæs víða í
saxófóninn, m.a. í Danmörku.
Steinunn Sigurð-
ardóttir fjallar
um skáldsögur
sínar Jójó og Fyr-
ir Lísu í Menn-
ingarhúsinu Hofi
á Akureyri í dag
kl. 17.
„Steinunn
fjallaði í fyrri viku
um þetta efni á
fjölsóttum fyr-
irlestri á Háskólatorgi í Reykjavík.
Um leið og Steinunn fer yfir sköp-
unarsögu skáldsagnanna tveggja
kemur hún einnig inn á tengslin við
íslenskan veruleika og nýlegar af-
hjúpanir um kynferðisbrot, gegn
drengjum sérstaklega,“ segir m.a. í
tilkynningu frá skipuleggjendum.
Í framsögu sinni mun Steinunn
velta upp þeirri spurningu hvaða er-
indi tveir Berlínarbúar, þýskur
geislalæknir og franskur róni, eigi
sem aðalpersónur í íslenskum skáld-
sögu. Steinunn á langan höfundar-
feril að baki, en fyrsta bók hennar,
ljóðabókin Sífellur, kom út 1969.
Nýjasta ljóðabók hennar, Ástarljóð
af landi, var þýdd á þýsku og frönsku
og ljóð eftir hana hafa birst í tímarit-
um og safnbókum á mörgum tungu-
málum, nú síðast á japönsku.
Höfunda-
spjall í Hofi
Steinunn
Sigurðardóttir
Í tilefni þess að nýverið kom út bókin
Friðaðar kirkjur í Austfjarðaprófasts-
dæmi, sem er 20. bindið í ritröðinni
Kirkjur Íslands, verður haldin mál-
stofa í Eskifjarðarkirkju í kvöld kl. 20.
Frummælendur eru Hjörleifur
Guttormsson, náttúrufræðingur og
frv. alþingismaður, Þorsteinn Gunn-
arsson, arkitekt og ritstjóri, og Lilja
Árnadóttir, fagstjóri munasafns Þjóð-
minjasafns. Að erindum loknum mun séra Davíð Bald-
ursson prófastur opna sýningu um m.a. kirkjur og gripi
sem byggist á ritverkinu.
„Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur
á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli bygging-
arlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum
er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og
minningarmörkum,“ segir m.a. í tilkynningu frá útgef-
endum, en að útgáfunni standa Þjóðminjasafn Íslands,
Húsafriðunarnefnd og Biskupsstofa. Meðútgefandi og
dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.
Málþing í Eskifjarðarkirkju
Hljómsveitin
Bloodgroup
sendi nýverið
frá sér sína
þriðju plötu,
Tracing Echo-
es. Til að fylgja
plötunni eftir
heldur sveitin
útgáfutónleika í
Iðnó í Reykja-
vík í kvöld kl.
21.30 og á
Græna hatt-
inum á Akureyri nk. laugardag kl. 22. Hljómsveitin
Samaris sér um upphitun á hvorum tveggja tónleik-
unum.
Bloodgroup heldur senn í tónleikaferð um Evrópu
til að fylgja eftir plötunni, en meðal áfangastaða á
ferðalaginu eru Þýskaland, Pólland, Sviss og tón-
leikahátíðin SPOT í Danmörku.
Útgáfutónleikar Bloodgroup
Bloodgroup Sveitin heldur senn í tón-
leikaferð um Evrópu.
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
VIP
DEADMANDOWNFORSÝNING KL.10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL.5:20-8-10:40
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2D KL. 5:20
OZ:GREATANDPOWERFULVIP2DKL.5:20-8-10:40
ÞETTAREDDAST KL. 8 -10:10
BEAUTIFULCREATURES KL. 8 -10:50
FLIGHT KL. 8 -10:10
WARMBODIES KL. 8
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50
WRECK-IT RALPH ÍSLTAL KL. 5:50
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
KRINGLUNNI
OZ: GREAT ANDPOWERFUL KL. 5:20 - 8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL 3D KL. 10:40
ÞETTAREDDAST KL. 8 - 10:40
THIS IS 40 KL. 8 - 10:40
THE IMPOSSIBLE KL. 5:40
FJÖLSKYLDUDAGARTILBOÐ590KR.MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKAÍVILLTAVESTRINU ÍSLTAL KL.6
OZ:GREATANDPOWERFUL 3DKL.5:20-8-10:30
OZ:THEGREATANDPOWERFUL KL.6
IDENTITY THIEF KL.5:30-8-10:40
FLIGHT KL.9-10:30
BEAUTIFULCREATURES KL.5:20
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL. 8
IDENTITY THIEF KL. 10:40
ÞETTA REDDAST KL. 8 - 10:10
AKUREYRI
OZ:THEGREATANDPOWERFUL3D KL. 8
OZ:THEGREATANDPOWERFUL2D KL. 5:20
ÞETTA REDDAST KL. 8
FJÖLSKYLDUDAGAR TILBOÐ 590 KR. MIÐAVERÐ
ÖSKUBUSKA Í VILLTAVESTRINU ÍSLTALKL. 6
TILNEFND TIL 2
ÓSKARSVERÐLAUNA
R.EBERT
LA TIMES
DISNEY BÝÐUR ÞÉR Í HREINT MAGNAÐ FERÐALAG
TIL TÖFRALANDSINS OZ
K.N. EMPIRETöfrandisjónarspil!
BÍÓVEFURINN/SÉÐ & HEYRT
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR ALICE INWONDERLAND
OG LEIKSTJÓRA SPIDERMAN ÞRÍLEIKSINS
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTABLAÐIÐ
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA!
FRÁ LEIKSTJÓRANUM SEM FÆRÐI OKKUR
KARLAR SEM HATA KONUR
COLIN FARRELL OG NOOMI RAPACE ERU
STÓRKOSTLEG Í ÞESSARI MÖGNUÐU SPENNUMYND
FORSÝND
GÓÐ GJÖF
GENEVA S
(iPod fylgir ekki).
Verð 55.000,-
Ármúla 38 | Sími 588 5010 | Opið: virka daga 11-18, laugard. 12-14