Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Side 8
Jóni Agnari Ólasyni, umsjónarmanni sér- blaða Morgunblaðsins, brá heldur betur í brún á fertugsafmæli sínu í vikunni þegar honum barst bréf frá Hollandi. Í bréfinu, sem var handskrifað, var afmæliskveðja frá engum öðrum en uppáhaldsknattspyrnu- manninum hans, sjálfum Marco van Basten. „Til hamingju með fertugsafmælið, Jón.“ Milligöngumaður í þessu óvenjulega máli var Alfreð Finnbogason, sem leikur undir stjórn van Bastens hjá Heerenveen. „Ég hef bara einu sinni hitt Alfreð, fyrir tilviljun í vetur, og veit ekki hvernig hann hafði veð- ur af afmælinu mínu. En hafi hann bestu þakkir fyrir!“ segir Jón Agnar. „Þetta bréf er ein af fáum veraldlegum eigum mínum sem peningar fengju ekki bætt. Hefur ómælt gildi. Nú þarf ég bara að finna mér fílabeinsramma.“ Marco van Jón Morgunblaðið/Benedikt Bóas 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2013 Þegar ég var við nám í Edinborg í Skotlandifyrir nokkuð löngu hugsaði ég stundum tilþess að í borginni einni byggju fleiri en á öllu Íslandi. En að þrátt fyrir að svo væri fyndist mér Reykjavík að ýmsu leyti vera „stærri“, meiri heimsborg, en Edinborg. Ég velti því fyrir mér hvernig á þessu stæði. Niðurstaða mín var sú að þar sem Reykjavík væri höfðuborg sjálfstæðs ríkis hefði hún ákveðið forskot á Edinborg. Í höf- uðborgum ríkja eru stofnanir á borð við þing og ráðuneyti, þar eru sendiráð og þangað eru tíðar heimsóknir fulltrúa erlendra ríkja úr stjórnmála- lífi, viðskiptalífi og menningarlífi. Á Íslandi hafði á þessum tíma verið sett á laggirnar útvarps- og sjónvarpsstöð, sem þótti talsvert afrek. Allt hafði þetta í för með sér grósku og margbreytileika. Þessir þættir áttu vafalaust þátt í að móta sjálfsmynd Íslendinga. Hún skiptir ekki litlu máli. Inn í þá mynd bætist síðan hið sérstaka mat Íslendinga á sjálfum sér. Ég hef stundum gant- ast með það að við séum aldrei alveg viss um það hvort við séum 350 þúsund eða 350 milljónir. Höllumst frekar að því að síðari talan sé nær lagi. Þeir tímar hafa komið að við hefðum haft gott af því að vera aðeins betur niðri á jörðinni. En ekki er vanmetakenndin heldur góð. Gagn- vart fulltrúum stórþjóða sem hafa á orði að við séum fá og smá hef ég gjarnan bent á að þegar allt kemur til alls séum við öll frá einhverju húsi sem standi við einhverja götu og ekki skipti öllu máli hve margar aðrar íbúðir séu við sömu götu í þorpinu eða í borginni, stórri eða smárri. Fjöl- menni þjóðar leiði ekki sjálfkrafa til þess að ein- staklingarnir stækki; stærðin megi ekki villa okk- ur sýn. Í sumum tilvikum geti smæð þjóða jafnvel ver- ið kostur, fólkið ekki þjakað af ofmetnaði stór- veldisins og í augum umheimsins væri hinn smái iðulega látinn njóta smæðar sinnar því hann væri engum ógn. Samanburðurinn á Reykjavík og Ed- inborg er ekki að öllu leyti heppilegur, einfald- lega vegna þess að lífið í Edinborg er að mörgu leyti óvenjugróskumikið, borgin þekkt fyrir góð- ar menntastofnanir og stórkostlega listahátið sem haldin er ár hvert og þá má ekki gleyma því að borgin er höfuðborg Skotlands, þótt sjálfstætt þing hafi nýlega komið til sögunnar. En hvers vegna þetta tal um afstæði smæðar og stærðar? Þankinn sem ég ætlaði mér að koma á framfæri er þessi: Íslendingar eiga að hugsa stórt þegar heimurinn er annars vegar. Við búum að mörgu leyti við kjöraðstæður. Við erum ekki þjökuð af vanmetakennd (það er frekar að hið gagnstæða sé vandamálið). Hér er gróskumikið líf á mörgum sviðum. Við njótum þess hve margt gott og gef- andi fólk leggur leið sína til okkar. Hið viðvarandi verkefni er að næra menn- inguna, listirnar og vísindin. Það mun styrkja okkur í andanum og gera okkur betur fær um að leggja eitthvað gott af mörkum við umheiminn, allt fólkið sem býr í húsunum sínum, við göturnar sínar í bæjunum og þorpunum og stórborgunum úti í hinum stóra heimi. Munum að smæðin getur verið stór. Margt er afstætt í heimi hér. Stærð smæðarinnar * Í sumum tilvikumgeti smæð þjóðajafnvel verið kostur. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Eurovisionfarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson skellti inn mynd af sér skælbrosandi nokkrum andar- tökum eftir að kynnir kvöldsins til- kynnti að Ísland hefði komist í úr- slit Eurovision. Með myndinni fylgdi textinn: „Takk öll fyrir stuðninginn. Það er ómetanlegt. Áfram Dalvík,“ en skemmst er frá því að segja að rúmlega 4.730 manns höfðu lækað myndina þegar blað þetta fór í prentun, ígildi 1,5% íslensku þjóðarinnar og rúmlega tvöfaldur íbúafjöldi Dalvíkur. Góða máltíð þarf hvorki að vera flókið né tímafrekt að útbúa og komst sjón- varpskonan og bókmenntafræði- neminn Brynja Þorgeirsdóttir einmitt að þeirri niðurstöðu í vik- unni ef marka má orð hennar á Facebook: „Ég held svei mér þá að ristað brauð með osti sé besti mat- ur af öllu, svona heilt yfir séð. Gott þegar maður er tveggja ára – gott þegar maður er 38 ára. Alltaf gott. Klassísk fæða.“ „Það hryggir mig mjög mikið, en ég þarf því mið- ur að finna nýtt heimili fyrir hann Þorvald minn […] Hann er fjögurra og hálfs árs ensk- ur bulldog, rosa hress og kátur, pínu frekur en skemmtilegur kar- akter. Ég vil ekki fá neinn pening fyrir hann, vil bara að hann fari á gott heimili,“ skrifaði söngvarinn Valdimar Guðmundsson í upp- hafi vikunnar og ef marka má slæleg viðbrögð vantar hundinn enn nýtt heimili. Systurnar Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, og Kristín Tómas- dóttir rithöfundur eru kappsamar og virðist systraríg- urinn nýtast þeirri fyrrnefndu þeg- ar kemur að hreyfingu. „Ég hreyfi mig ekki ánægjunnar vegna né til að lifa heilbrigðu lífi. Það eru eingöngu martraðarkenndar hugsanir um að Kristín Tómasdóttir hlaupi hraðar en ég sem draga mig út að hlaupa,“ skrifaði Þóra á Facebook og ögraði Kristínu með því að „tagga“ hana í stöðuuppfærsluna. AF NETINU „Þú veist þetta er litasjónvarp. #pepsi #80’s Sá þetta síðast á Ibiza 1986,“ skrifaði Logi Bergmann Eiðsson til Hjörv- ars Hafliðasonar á Twitter eft- ir þátt í Pepsimörkunum. Þar gerðu Hjörvar, Hörður Magn- ússon og Reynir Leósson upp mörkin í annarri umferð Pepsideildarinnar. Hjörvar tók djarfa ákvörðun og bland- aði bleiku og grænu og leið vel með litavalið. „Ég var hrika- lega sáttur við þetta miami vice-lúkk,“ svaraði fótbolta- sérfræðingurinn en Hjörvar þykir ákaflega vel að sér í tísk- unni og klæðist ekki hverju sem er. Það þarf lítið að segja um fatastíl Loga. Þar fer topp- urinn sem veit hvað hann seg- ir. Hjörvar Hafliðason í settinu í Pepsimörkunum. Mætti þar í bleikri skyrtu með grænt bindi. Skjáskot/Stöð 2 Sjónvarpsstjörnur kýta Vettvangur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.