Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Síða 20
*Heilsa og hreyfingÞótt það geti verið notalegt að fara í funheita sturtu þá er köld sturta betri fyrir heilsuna »22 Bræðurnir urðu báðir bikarmeistarar í vor ásamt Margréti Hörn og Denise Margréti. Þau Þorkell í fullorðinsflokki en Höskuldur og Mar- grét í unglingaflokki. Nóg er að gera; Þorkell og Denise unnu sér rétt til að taka þátt í heimsbikarmóti og Evrópu- bikarmóti í ballroom-dönsum í Austurríki og Úkraínu síðar í ár en á vordögum kepptu þau fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í ballroom- dönsum, sem fram fór í Árósum í Danmörku. Það segir Höskuldur hafa verið gríðargóða reynslu, en pörin voru flest mun eldri en þau. Vert er að geta þess að Höskuldur Þór og Margrét Hörn unnu fern silfurverðlaun á einni sterkustu keppni sem haldin er fyrir börn og unglinga í heiminum, í Blackpool 2010. Þau kepptu á heimsmeistaramótinu í suðuramer- ískum dönsum á Ítalíu í febrúar og keppa á heimsmeistaramótinu í ballroom og 10 dönsum í Moskvu og Riga í haust. MIKIÐ UM AÐ VERA Bikarbræður Höskuldur Þór Jónsson og Margrét Hörn Jóhannsdóttir, danspar í áratug.Þorkell Jónsson og Denise Margrét Yaghi hafa dansað saman í rúmt ár. Þ orkell Jónsson hóf dansnám fimm ára þegar vinkona hans af leikskóla bað hann að koma á æfingu. Hún hætti fljótlega en hann er enn að, 19 ára, og reyndar rétt að byrja að eigin sögn. Höskuldur er fjórum ár- um yngri en byrjaði jafngamall; fetaði í dansspor bróður síns og hefur dansað við Margréti Hörn Jóhannsdóttur í rúman áratug. Þorkell hefur dansað með ýmsum stúlkum en ár er liðið síðan þau Denise Margrét Yaghi hófu að dansa saman. Dans var kenndur á leikskóla bræðranna og æfingar hófu þeir í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar, sem í dag er í raun Dansíþróttafélag Kópavogs. „Ég prófaði fótbolta og hand- bolta þegar ég var yngri en fann mig ekki í því umhverfi; hundrað strákar hlupu út um allt og þar var enginn agi. Í dansinum er agi hins vegar nauðsynlegur og það er mjög þroskandi að strákar og stelpur kynnist og vinni saman,“ segir Þorkell. Samkvæmisdansinn sameinar listformið og íþróttakeppni; Þorkell segist frekar líta á dansinn sem list, „en keppnismaður þarf að vera í mjög góðri líkamlegri æf- ingu auk þess að æfa tæknihliðina vel,“ segir Þorkell. Hann ver því miklum tíma bæði í líkamrækt og dansstúdíó. „Við erum bæði í hóptímum og einkatímum hjá Adam Reeve og Karen Björk Björgvinsdóttur. Þau urðu heimsmeistarar fyrir Íslands hönd í 10 dönskum árið 2003. Það var rosaleg lyfti- stöng fyrir íslenskan dans þegar þau fluttu heim á sínum tíma.“ Adam og Karen hafa hafa verið helstu kennarar dans- paranna tveggja síðan þau hófu keppni. Morgunblaðið/Ómar Þroskandi þolraun BRÆÐURNIR ÞORKELL OG HÖSKULDUR ÞÓR Í KÓPAVOGI HAFA DANSAÐ FRÁ BARNSALDRI. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Höskuldur Þór Jónsson, Margrét Hörn Jóhannsdóttir, Denise Margrét Yaghi og Þorkell Jónsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.