Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Síða 28
BULSUR Grilla bulsurnar í nokkrar mínútur. Muna að taka plast- filmuna utan af. KARTÖFLUMÚS Sjóða slatta af kartöflum og stappa. Bæta við hvítlauksolíu og smá salti. LAUKSÓSA 1 stk. grófskorinn laukur 1 stk. ferskt lárviðarlauf 1 grein rósmarín 100 ml rauðvín (eða 1 msk. berjasafi og 1 msk. rauðvínsedik) 1 lítri grænmetissoð 1-2 msk. dijon-sinnep smá maísmjöl Laukurinn er skorinn gróft og brúnaður í potti með lárviðar- laufi og rósmarín. Rauðvíni (eða safa og rauðvínsediki) bætt út í og soðið niður um helming. Grænmetissoði og dijon-sinnepi bætt saman við og soðið í ca 15 mínútur. Þykkt með maísmjöli og smakkað til með salti og pipar. Bulsur & mús *Matur og drykkir Í matarboði í Fossvoginum var boðið til framandi matarveislu með gæðahráefni »30 Í slenskt bankabygg og grænmeti er meginuppistaðan í bulsum, grænmetispulsum sem Svavar Pétur Eysteinsson tónlistar- og athafnamaður hefur þróað og koma á markað í byrjun júní. „Við leggjum áherslu á íslenskt hráefni í framleiðslunni og bulsurnar eru til að mynda kryddaðar með ís- lensku blóðbergi og sjávarsalti.“ Hugmyndin að baki bulsum kviknaði eftir að Svavar Pétur hætti að borða kjöt fyrir rúmu ári. „Ég ákvað að gera þessa til- raun á sjálfum mér. Tveimur mánuðum eftir að ég hætti kjötáti fékk ég óstjórnlega löngum í pulsu. Í stað þess að brjóta prin- sippið og fara beint á Bæjarins bestu ákvað ég að fikra mig áfram með mína eigin grænmet- ispylsugerð. Ég fékk Matís og Nýsköpunarmiðstöð með mér í þessa þróun,“ segir Svavar Pétur en þróunarvinnan tók slétt ár frá því hugmyndin kviknaði og þar til nú að Bulsur koma á markað. „Ég kalla hana bulsu því ég get engan veginn kallað hana pulsu,“ segir hugmyndasmiðurinn sem segist annars hafa borðað ófáar pulsur, eða pylsur, gegnum tíðina. „Ég hafði og hef enn mikið dálæti á Bæjarins bestu. Mest borðaði ég af pulsum á ferðalögum um land- ið. Núna þegar ég er að ferðast er ég stundum pínu lost þegar all- ir stoppa í pulsusjoppu. Þær eru soldið rauði þráðurinn þegar mað- ur fer hringinn. Bulsan er þó meira í ætt við morgunverðarpylsu eða einhvers konar steikarpylsu sem hentar vel á grillið. Það er skemmtilegt að geta tekið þátt í grillstemmingu þó að maður borði ekki kjöt,“ seg- ir Svavar Pétur sem þakkar Tóta og snillingunum á KEX fyrir upp- skriftir að lauksósu og kart- öflumús sem hann segir henta vel með bulsunum. Bulsur koma á markað 1. júní og verða fyrst um sinn seldar í Melabúðinni og Frú Laugu. Morgunblaðið/Ómar GRÆNMETISPYLSUR Á MARKAÐ Hægt að grilla án kjöts SVAVAR PÉTUR EYSTEINSSON SAKNAÐI ÞESS AÐ FÁ EKKI PYLSUR EFTIR AÐ HANN ÁKVAÐ AÐ HÆTTA AÐ BORÐA KJÖT. HANN ÞRÓAÐI ÞVÍ GRÆNMETISPYLSUR SEM HANN KALLAR BULSUR. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Bulsuverkefnið er fjármagnað með smáframlögum á vefsíðunni karolinafund.com. Þar er hægt að forpanta allt frá einum bulsupakka upp í heilt bulsupartí þar sem tónleikar með hljómsveitinni Prins póló fylgja með.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.