Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.5. 2013 Matur og drykkir RATATOUILLE NIÇOISE – FYRIR 4 Undirbúningur 30 mín., suða 1 klst. 500 g vel þroskaðir tómatar 500 g kúrbítur 500 g paprika, rauð og græn 500 g eggaldin 500 g laukur 4 hvítlauksrif salt, pipar, timjan, lárviðarlauf, rósm- arín, ólífuolía. Aðferð Skolið grænmetið og afhýðið laukana. Hreinsið fræin úr paprikunni, dýfið tómöt- unum í sjóðandi vatn, bíðið í 2 mínútur og af- hýðið þá. Sneiðið niður allt grænmetið. Hitið smáolíu á djúpri pönnu, látið laukinn og paprikuna krauma við vægan hita. Þegar þetta er orðið mjúkt bætið þá tómatsneið- unum saman við ásamt afhýddum hvítlauk og kryddgrösum. Lokið og látið malla í 40 mín- útur. Á meðan hitum við olíu á annarri pönnu, brúnum kúrbítinn og eggaldinin við góðan hita og setjum út í tómatsósuna. Þetta er lát- ið malla saman í 20 mínútur. Saltið og piprið. Ratatouille er yndislegur réttur, sem má borða jafnt sem aðalrétt eða sem meðlæti með grilluðu kjöti eða fiski, með eggjaköku eða á bökubotni. Hann er jafngóður hvort sem hann er heitur, kaldur eða upphitaður. Ratatouille frá Nice Í bókinni, Sælkeraferð um Provence, flakka mæðgurnar um hér- aðið og birta fjölda gómsætra uppskrifta. „Þetta var ægilega spennandi verkefni og gaman að við skyldum geta gert þetta saman. Maðurinn minn hjálpaði mér, því hann tók margir mynd- ir. Þetta er orðið eins konar fjölskyldufyrirtæki,“ segir Sigríður við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Hún hefur búið í París í 43 ár, Silja er fædd þar og uppalin en er nú búsett á Íslandi. „Mér fannst þetta frumleg hugmynd í upphafi; að sameina ferða- lag um landið og umfjöllun um matarhefðir í hverju héraði. Frakk- land er stórt, matargerð mjög ólík eftir landsvæðum og byggist allt- af á staðarframleiðslunni. Þess vegna er maturinn svona góður og ólíkur; hráefnið mismunandi á milli árstíða og alltaf ferskt.“ Provence er mjög stórt hérað í suðausturhluta landsins; nær frá Rónardal í vestri austur að landamærum Ítalíu og upp í Alpafjöllin. „Matargerðin er því mjög ólík í vesturhluta héraðsins og fyrir austan, og ekki sami matur uppi í fjöllum eða við ströndina þótt allt sé hægt að tengja Miðjarðarhafinu. Allur maturinn á það þó sameig- inlegt að vera litríkur og góður. Héraðið tengist hamingjunni í huga Frakka og margra fleiri. Margir útlendingar eru búsettir í Provence og mikill fjöldi kemur þangað í frí. Svæðið er mjög eftirsótt, bæði er loftslagið svo gott, landið einstaklega fallegt, lífið ljúft, maturinn góður og svo er þetta mesta vínræktarhérað Frakklands. Segja má að svæðið tengist hugmyndinni um paradís á jörðu í huga margra. Allir vilja flytjast þangað í ellinni!“ Fyrsta bók mæðgnanna kom út 2007, þar sem þær fjölluðu um allt landið. „Það var mikið átak en ægilega skemmtilegt um leið. Það var mikið ferðast og mikið eldað.“ Sigríður eldar alla réttina í bók- inni sjálf en dóttirin og eiginmaðurinn mynda. „Við fórum margar ferðir til Provence vegna nýju bókarinnar, það er gaman að koma þangað á hvaða árstíma sem er. Það er mikil sól og hamingja í bókinni, ég vona að það skili sér til lesenda,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir í París. NÝ BÓK UM MATARGERÐ Í PROVENCE-HÉRAÐI Í FRAKKLANDI Mikil sól og hamingja MÆÐGURNAR SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR OG SILJA SALLÉ HAFA SENT FRÁ SÉR ÞRIÐJU BÓKINA UM MATARGERÐ Í FRAKKLANDI OG AÐ ÞESSU SINNI FLAKKA ÞÆR UM PROVENCE-HÉRAÐ. SIGRÍÐUR SEGIR HÉRAÐIÐ TENGJAST HAMINGJUNNI Í HUGA MJÖG MARGRA; JAFNVEL HUGMYNDINNI UM PARADÍS Á JÖRÐU! Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is GIGOT DE SEPT HEURES - FYRIR 8 Undirbúningur 30 mín., bakstur 7 klst. 1 úrbeinað lambalæri 3 laukar 1 hvítlaukshöfuð 3 gulrætur 5 cl koníak 2 dl hvítvín 200 g sveskjur 1 appelsína í sneiðum 1 sítróna í sneiðum kummin, kóríander, kanill, saffran, salt og pipar Aðferð Þessi uppskrift er ekki sú klassíska með kryddgrösum frá Provence. Ég kaus að elda lærið í anda Marokkó- manna, eða líkt og Tagine. Í Marseille eru Marokkóveitingahús í öðru hverju húsi, enda liggur við að annar hver maður þar sé upp- runninn handan við hafið. Hitið ofninn í 120°. Hitið smáolíu á stórri pönnu, brúnið lærið alla vegu. Hellið koníak- inu á pönnuna, kveikið í. Leggið lærið í stórt eldfast fat með loki, saltið, piprið, nuddið kryddinu á það, setjið ávextina og vínið í fat- ið, gleymið ekki að setja smávatn á pönnuna, skafa af henni og setja saman við. Afhýðið laukinn, skerið hann og gulræt- urnar í sneiðar, afhýðið hvítlaukinn, þetta fer allt í fatið. Lokið fatinu og leyfið lærinu að bakast í 7 klukkustundir. Gáið að því öðru hvoru, bætið kryddi og vökva ef þarf. Upplagt er að bera fram kúskúsgrjón með lærinu. Þegar við opnum pottinn eftir sjö tíma bakstur leggur himneskan ilm að vitum okk- ar. Við tökum upp besta vínið á bænum, helst frá Provence. Sjö tíma lambalæri TARTE AUX ABRICOTS Fyrir 8 Undirbúningur 10 mín., 1 klst. fyrir bakstur, svo 15 mín., bakstur um 40 mín. Bökudeig: 200 g hveiti 100 g lint, saltað smjör 1 dl ískalt vatn Fylling: 600-800 g ferskar apríkósur eða ferskjur 1 glas rjómi 1 egg 50 g saxaðar möndlur eða heslihnetur + 30 g flögur 50 g sykur + 1 msk. salt Aðferð Útbúið deigið samkvæmt upp- skrift og kælið í eina klst. Hitið bökunarofninn í 200°. Fletjið deigið þunnt út, fyllið stórt bökuform með því og látið það ná vel upp barmana. Skolið ávextina, skerið í tvennt og fjarlægið stein- ana. Leggið helmingana ofan á deig- ið, látið dældina eftir steinana snúa upp, svo að safinn leki síður úr. Takið fram skál, þeytið saman sykur, salt, egg, rjómann og söxuðu möndlurnar með eggjaþeytara. Hellið yfir ávextina. Dreifið flög- unum yfir. Bakið í 40 mínútur. Takið tertuna út, sáldrið einni matskeið af sykri yfir. Berið fram samdægurs. Tertan er best volg. Apríkósuterta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.