Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Blaðsíða 39
19.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
É
g get ekki látið sjá mig
lengur í þessum helv …
gulrótarbuxum,“ sagði
vinkona mín, þegar við
vorum staddar í verslun á
Laugaveginum. Nokkrum augna-
blikum áður vorum við tvær í
hjólatúr með börnin í miðbænum
en snarhemluðum þegar við hjól-
uðum framhjá búðinni og á núll
einni náðum við að múta börn-
unum til að vera mjög prúð í
korter gegn því að þau fengju
súkkulaðisnúð og Svala nokkru
síðar. Áður en ég vissi af var
vinkona mín farin að strjúka
bleikum dömubuxum með
beinu sniði. „Ég verð að eignast
svona buxur, sérðu ekki hvað
þær væru fínar við Marc Jacobs
töskuna með leynihólfinu,“ sagði
hún með sælusvip.
Ég sá þetta alveg fyrir mér
enda veit ég manna best að nýj-
ar buxur, jakki, skór, skyrta,
pils, veski, naglalakk, hárband,
sokkar, nærbuxur og guð má
vita hvað geta bara gert alveg
heilmikið fyrir andlegt ástand
bugaðra mæðra hvort sem þær
eru í hjólatúr eða ekki.
Ég samþykkti buxnakaup vin-
konu minnar enda talskona þess
að frjálsar konur geri nákvæm-
lega það sem þeim sýnist við
sína eigin peninga. Í framhaldinu
rifjaðist það upp að fatakaup
kvenna eru oft og tíðum litin
hornauga inni á heimilum. Það á
náttúrlega ekki að vera að eyða
peningum í svona vitleysu og
hver hefur ekki heyrt eiginmenn
væla yfir því að eiga kaupóðar
konur sem kveikja reglulega í
Vísa-kortum.
Það er hinsvegar lítið rætt um
„gerviþarfir karla“ og þykir það
sjálfsagt inni á allt of mörgum
heimilum að það séu keyptar
áskriftir að nokkrum íþrótta-
stöðvum sem kosta fúlgur fjár. Á
sumum heimilum flatmagar karl-
inn fyrir framan sjónvarpið að
horfa á mikilvæga leiki meðan
kvenpeningurinn er sveittur að
hjálpa til við heimanám
barnanna, baða þau, elda matinn
og sortera sokka. Ég þekki þetta
reyndar ekki því ég hef aldrei
verið gift manni sem hefur þurft
að horfa á íþróttir í tíma og
ótíma. En um mig fer þó ónota-
tilfinning, ekki bara við það að
einhver flatmagi fyrir framan
sjónvarpið þegar verkefni heim-
ilisins eru óteljandi, heldur þoli
ég ekki „svona íþróttahljóð“.
Ég held ég myndi frekar láta
moka yfir mig en að þurfa að
hlusta á þessi hljóð sem koma úr
sjónvarpinu. Merkilegast af öllu
finnst mér þó að konum finnst
þetta bara allt í lagi, en það er
kannski því þær þekkja ekkert
annað.
En aftur að buxnakaupum vin-
konu minnar því hún mælti með
því að ég heldi útför niðurmjórra
buxna í þessum pistli, en ég
treysti mér ekki alveg til þess.
Sá tískustraumur er ekki alveg
búinn þótt það blási ferskir vind-
ar í buxnatísku sumarsins.
Þegar niðurmjóar buxur
komust í tísku var mikið rætt
um það í fjölmiðlum fyrir hverj-
ar þessar buxur væru því það
segði sig sjálft að þær væru sko
ekki fyrir okkur hlussurnar. Við
gætum bara haldið áfram að
vera í venjulegum gallabuxum
með „boot-cut“ sniði. Sem betur
fer breyttist hugsunarhátturinn
og við vorum allar komnar í nið-
urmjótt og fíluðum okkur bara
vel.
Síðbuxur sumarsins eru í
mörgum litum, dálítið víðar og
beinar niður. Þær eru ýmist upp
í mittið eða hanga á mjöðm-
unum. Sumar eru með hefð-
bundnu buxnasniði en aðrar
með fellingum að framan. Það
fer eftir vaxtarlagi hvað verður
fyrir valinu en það er ágætt að
hafa það bak við eyrað að mikil
vídd yfir þetta viðkvæma svæði
getur bætt nokkrum kílóum á
okkur. Þær sem mega við því
ættu endilega að velja rykking-
arnar en við hinar segjum já
takk við þessum með einföldu
sniði. Þegar farið er í sum-
arbuxnaleiðangur er ágætt að
gefa sér tíma, máta og máta, og
gefast ekki upp fyrr en réttu
buxurnar finnast. Þetta er svolít-
ið eins og kærastaleit. Það er
betra að máta og máta svo þú
vaknir ekki einn daginn með
einn flatmagandi í sófanum að
horfa á þú veist …
martamaria@mbl.is
Buxur úr versluninni Evu.
Kaupfíkn og
„gerviþarfir
karla“
F L Í S A V E R Z L U N
Bæjarlind 4, 201 Kóðavogur | S: 554 6800 - Fax: 554 6801 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 - Fax 466 3601 | www.vidd.is
Vel valið
Smiðjuvegi 4 (Græn gata), 200 Kópavogi, sími 578 3030, gsm 824 0240, laugin.is
Erum með allt fyrir
Góður endir
á góðum degi
Nuddpottar
Hreinsiefni
Síur
Viðgerðarþjónusta
Varahlutir