Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Qupperneq 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.05.2013, Qupperneq 42
*Fjármál heimilannaJóhanna Erla Guðjónsdóttir er sniðugur neytandi sem frystir ávexti í drykki Jóhanna Erla Guðjónsdóttir er Hafnfirðingur og starfar sem fé- lagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg. Móðir hennar kenndi henni að nýta alla afganga og Jóhanna frystir nær allt sem er afgangs og notar síðar, líka banana sem eru byrjaðir að skemmtast. Þá reynir hún að hjóla þær vegalengdir sem ekki þarf að nota bílinn í. Fjöldi heimilisfólks? Við erum þrjú í heimili. Ég og synir mínir tveir. Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Ég á alltaf til mjólk, egg, skyr, avókadó, engifer, sítrónur og ávaxta- safa. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætisvörur á viku? Þar sem ég er að ala upp tvo drengi sem borða allt sem lagt er á borð fyrir þá og gott betur fer ég með 20-25.000 kr. í mat á viku, stundum meira og stundum minna. Hvar kaupirðu helst inn? Ég versla helst í Bónus en stundum nær letin yfirhöndinni og þá versla ég í hverfisbúðinni, sem er við hliðina á heimili mínu. Hvað freistar helst í matvörubúðinni? Allt sem er óhollt og ég ætti ekki að láta inn fyrir mínar varir, það freistar mín helst. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Ég spara með því að nýta það sem til er í ísskápnum, nota af- gangana og hjóla í stað þess að nota bílinn. Hvað vantar helst á heimilið? Í augnablikinu hef ég allt sem ég þarfnast en það gæti breyst. Vantar mann ekki alltaf eitthvað? Eyðir þú í sparnað? Já. Skothelt sparnaðarráð? Lykilatriðið í sparnaði varðandi mat er að frysta. Ég er svo heppin að ég á móður sem hefur kennt mér að nýta allan mat og hún nýtir hvert tækifæri til þess að tyggja það ofan í mig. Hún hefur kennt mér að nýta afgangs grænmeti í súpur og heita rétti og frysta alla matarafganga. Þegar ég elda kannski meira en heim- ilismeðlimir borða hverju sinni, sem gerist aðeins of oft, þá ann- aðhvort frysti ég það eða nýti daginn eftir. Ég bý til mikið af svo- kölluðum „ávaxtabústum“ og ef ég á til dæmis banana sem eru að skemmast þá sker ég þá niður í bita og frysti þá og nota svo út í drykkinn hjá mér. Það sama geri ég við grænmeti og aðra ávexti. NEYTANDI VIKUNNAR JÓHANNA ERLA GUÐJÓNSDÓTTIR Afgangar í frystinn Jóhanna Erla Guðjónsdóttir býr í Hafnarfirði og versl- ar í Bónus og einstaka sinnum í hverfisbúðinni. Meðal þess sem hún á alltaf til í ísskápnum er skyr. Morgunblaðið/Golli * Gott reiðhjól kostar skilding-inn. Hugsaðu vel um hjólið þitt og það endist mun lengur fyrir vikið. Aurapúkinn þekkir hjón sem hafa átt sömu fótstignu fákana í um það bil tvo áratugi og ekki er ryðblettur á þeim, enda teknir í hús á hverju kvöldi. Púkinn þekkir hins vegar marga sem geyma hjólið alltaf úti og þau eru ekki jafnfögur. * Snjallir sjampóbransamenntvöfölduðu söluna á sínum tíma með því að bæta einu orði við text- ann utan á brúsanum: Repeat; end- urtakið. Eflaust er gott að skella hár- sápunni tvisvar í lokkana í einhverjum tilfellum en varla lífs- nauðsynlegt í hvert einasta skipti. * Dragðu úr sælgætisáti og gos-drykkju og láttu börnin ekki komast upp með að troðfylla pokann við nammibarinn á laugardögum. Þá er gott að takmarka gosneyslu þeirra við t.d. helgarmáltíðir. Þambið og sykurátið er í fyrsta lagi óhollt og svo er dýrt að fara til tannlæknis. púkinn Aura- Hugsaðu um hjólið T ryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, kveðst ekki hafa forsendur til að meta hvort verð hafi almennt lækkað eftir að bann við forverðmerk- ingum á kjötvöru tók gildi árið 2011. Stofnunin hafi því miður ekki haft bolmagn til að gera verðkannanir til að ganga úr skugga um þetta. „Hafi einhverjir aðrir gert slíkar kannanir væri afar gagnlegt að fá þær fram,“ segir hann. Fram kom í Morgunblaðinu í vik- unni að Samkeppn- iseftirlitið telur að bann við for- verðmerkingum hafi verið til góðs og leitt til lækkunar á vörverði. Kvörtunum hefur fækkað Neytendur þurfa að skanna verð vöru sjálfir í verslunum eftir að bannið tók gildi í þar til gerðum verðskönnum þegar verðmerking er ekki á umbúð- um, hillu eða hólfum kæliskápa. Tryggvi staðfestir að Neytendastofu hafi til að byrja með borist margar kvartanir frá neytendum vegna þessa en þeim hafi fækkað umtalsvert. „Þetta var nýr háttur og fólki þótti verðskannarnir of fáir. Það varð til þess að Neytendastofa lagði til fast viðmið: Væri neytandi ekki búinn að finna út verð innan þrjátíu sekúndna teldist varan óverðmerkt. Í framhaldi af þessu fjölguðu verslanir skönnum.“ Tryggvi segir stærsta kostinn við bannið frá sjónarhóli neytenda þann að þeir þurfi ekki lengur að reikna sig til verðsins. „Eins og fólk man var af- sláttarmiðum skellt á allar mögulegar pakkningar og fólk þurfti í mörgum tilvikum stöðugt að finna eiginlegt verð út sjálft í huganum. Nú er þessi viðskiptaháttur að mestu úr sögunni. Þá hefur náðst að staðla ýmsar pakkningarnar og fyrir vikið eru hillumerkingar orðnar algengari t.d. á áleggi og þess háttar vörum. End- anlegt verð er því nú sýnilegra og ekki þarf að reikna það út frá afslátt- arprósentum. Þess vegna eiga meðvit- aðir neytendur auðveldara með að gera verðsamanburð milli verslana.“ Verðskannar þurfa að virka Til þess að þetta fyrirkomulag sé sem skilvirkast þurfa verðskannar vita- skuld að virka og vera læsilegir. Tryggvi hvetur neytendur til að hafa samband við Neytendastofu sé þeim málum ábótavant og senda ábend- ingar t.d. í gegnum heimasíðu stofn- unarinnar. Hann minnir fólk einnig á að fylgj- ast vel með því hvort munur sé á verði í hillu og á kassa. Þar sé pottur stundum brotinn. „Þessar upplýsingar þurfum við að fá, annars virkar sam- keppnin ekki.“ ÁHRIF BANNS VIÐ FORVERÐMERKINGUM Á KJÖTVÖRU Neytendur þurfa ekki lengur að reikna sig til verðsins BANN VIÐ FORVERÐMERKINGUM Á KJÖTVÖRU FRÁ 2011 HEFUR HAFT JÁKVÆÐAR AFLEIÐINGAR FYRIR NEYTENDUR AÐ ÞVÍ LEYTI AÐ NÚ ÞARF FÓLK EKKI LENGUR AÐ REIKNA SIG TIL VERÐSINS VEGNA ALLS KONAR TILBOÐA. ÞETTA ER ÁLIT NEYTENDASTOFU. STOFNUNIN HEFUR HINS VEGAR EKKI FORSENDUR TIL AÐ META ÁHRIF BANNSINS Á VÖRUVERÐ. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Verðmerkingar þar sem neytendur þurftu að reikna afslátt sjálfir eru úr sögunni. Morgunblaðið/G.Rúnar Verðskönnun hefur færst í vöxt í verslunum. Morgunblaðið/Kristinn Tryggvi Axelsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.