Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Aðeins er tímaspursmál hvenær Kolbeinsey, nyrsti punktur Íslands, hverfur í sæ en það mun hins vegar ekki hafa nein áhrif á efnahags- lögsögu Íslendinga. Þetta segir Tómas H. Heið- ar, þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins. Sigmaður Landhelgisgæslunnar seig niður í eyjuna á miðvikudag og skoðaði aðstæður. Ekki var hægt að sjá þess merki að þar hefði verið steyptur þyrlupall en áhöfn varðskipsins Óðins og starfsmenn Vita- og hafnamálastofnunar byggðu hann árið 1989 að því er segir í tilkynn- ingu frá Landhelgisgæslunni. Undirstöður eyj- unnar hafa lengi verið afar rýrar. Tómas segir að tilraunum til að steypa þyrlupall í eynni hafi verið hætt á sínum tíma, bæði af þeirri ástæðu að menn sáu fram á að hann dygði ekki og vegna þess að hugsanlega yrði litið á klettinn sem manngerða eyju sem hefði enga hafréttarlega þýðingu. Samningur sem var gerður á milli Íslands annars vegar og Danmerkur og Grænlands hins vegar árið 1997 um afmörkun hafsvæðisins á milli Íslands og Grænlands tryggi hins vegar að lögsaga Íslands breytist ekki hver sem örlög Kolbeinseyjar verða. „Engin bein tilvísun er í samningnum til Kolbeinseyjar og því ljóst af samningnum sjálf- um að mörk efnahagslögsögu Íslands og Græn- lands munu standa óhögguð þótt kletturinn hverfi,“ segir Tómas. Lögsaga breytist ekki þótt eyja hverfi  Kolbeinsey heldur áfram að sökkva í sæ  Sigmaður frá Landhelgisgæslunni kannaði eyjuna í vikunni  Samningur við Dani og Grænlendinga tryggir óbreytta lögsögu þó að kletturinn hverfi Klettur Flogið var yfir Kolbeinsey í gæslu- og eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar á miðvikudag. Á hverfanda hveli » Kolbeinsey liggur 105 kílómetra norðan við land, 74 km norðvestur af Gríms- ey. » Eyjan var fyrst mæld á 17. öld og var þá sögð 100 metra breið og 700 metra löng. Árið 1903 var hún orðin helmingi minni. » Árið 2001 var kletturinn mældur og var þá aðeins 90 fermetrar að stærð. » Fimm árum síðar kom í ljós að hluti af þyrlupallinum sem var steyptur undir lok 9. áratugarins var hruninn. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Heilbrigðisráðherra ætlar að funda með starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja (HSVE) í næstu viku. Forstöðumaður stofnunarinnar tilkynnti á mið- vikudag að skurð- stofu stofnunar- innar yrði lokað 1. október í sparnað- arskyni. „Ráðuneytið var með vinnuhóp um fjármál og starf- semi stofnunarinn- ar sem skilaði til- lögum í ágúst. Þar var ekki gert ráð fyrir að loka skurðstofu eða fæðingar- deild heldur hlífa þeim. Það var hins vegar tillaga forstöðumannsins að ein- faldast væri að fara þessa leið sem hann var að tilkynna. Það ber að und- irstrika að þetta er ákvörðun forstöðu- mannsins sem hefur það verkefni að reka stofnunina,“ segir Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra. Hann segir að lengi hafi legið fyrir að HSVE hafi verið rekin með við- varandi halla sem forstöðumanni hennar hafi ekki tekist að vinna bug á. Ríkisendurskoðun hafi ítrekað bent á að á því þurfi að taka. Tilkynningin um lokun skurðstof- unnar vakti hörð viðbrögð í bæjar- ráði Vestmannaeyjarbæjar. Elliði Vignisson bæjarstjóri sagði meðal annars í Morgunblaðinu í gær að taka þyrfti tillit til sérstakra að- stæðna í Eyjum því þær gætu ein- angrast fyrirvaralítið. Kristján Þór segir að fráföll í sjúkraflugi séu ekki öðruvísi en á öðr- um stöðum á landinu. Skurðstofan í Vestmannaeyjum hafi verið lokuð undanfarnar þrjár vikur án þess að sérstök umræða hafi verið um það. Spurður að því hvort að ráðuneyt- ið ætli með einhverjum hætti að skerast í leikinn, og tryggja að skurðstofunni verði ekki lokað, seg- ist Kristján Þór fyrst ætla að ræða við starfsfólk HSVE áður en hann leggi fram einhverjar hugmyndir að úrlausn. Lokun ekki í tillögum vinnuhópsins Niðurskurður HSVE hefur þurft að skera niður um 70-80 milljónir.  Ákvörðun um að loka skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja var forstöðumannsins, segir heilbrigðisráðherra  Fundar með starfsfólki í næstu viku  Hefur verið lokuð í rúmar þrjár vikur Kristján Þór Júlíusson Um 20 bresk ungmenni eru nú stödd hér á landi, en þau eru frá skólanum The King’s School og New College for the blind and visually impaired í Worcester. Sum barnanna hafa fulla sjón en önnur eru sjónskert og jafnvel alblind. Þau hafa ferðast um Ísland og fengu í gær að skoða Ís- landskortið í Ráðhúsi Reykjavíkur með fing- urgómunum. Júlíus Vífill Ingvarsson borg- arfulltrúi tók á móti þeim. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fá að kynnast fjöllum og fjörðum Íslands Blindir nemendur fengu að þreifa á Íslandskortinu í Ráðhúsinu Óendurskoðaður árshlutareikn- ingur Reykjavík- urborgar fyrir tímabilið frá jan- úar til júní 2013 var lagður fram í borgarráði í gær. Rekstrarniður- staða samstæðu Reykjavíkur- borgar, A- og B- hluta, var jákvæð um 1.819 millj- ónir króna en áætlun gerði ráð fyr- ir jákvæðri niðurstöðu um 416 milljónir. Rekstrarniðurstaðan er því 1.403 milljónum betri en áætlun gerði ráð fyrir. Viðsnúningurinn er vegna þess að tekjur aukast en þær voru 1.978 milljónum umfram áætlun. Niðurstaðan sýnir að rekstur samstæðunnar er að styrkjast. Til A-hluta telst starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum en til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru að hálfu eða meirihluta í eigu borgarinnar. Afkoman betri en áætlað var  Sex mánaða upp- gjör frá borginni Reykjavík Rekstur borgar styrkist. Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja hefur verið í fjár- kröggum um nokkurt skeið. Í mars veitti velferðarráðuneytið stofnuninni 15 milljón króna aukaframlag til þess að hún gæti haldið áfram að kaupa lyf. Lyfjaheildsalar höfðu lokað fyrir viðskipti við hana vegna skulda hennar við þá. Gunnar Gunnarsson for- stöðumaður sagði við blaðið í gær að flestar fæðingar færð- ust til Reykjavíkur við lokun skurðstofunnar. Lokuðu á lyf HALLAREKSTUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.