Morgunblaðið - 30.08.2013, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.08.2013, Qupperneq 24
STYKKISHÓLMUR DAGA HRINGFERÐ 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Biðlistinn er langur og 95% skjól- stæðinga okkar eru fólk sem á langa veikindasögu að baki. Verkir í baki eru mörgum mikil þjáning og er þetta eitt stærsta heilbrigðisvanda- mál þjóðarinnar,“ segir Jósep Blön- dal, yfirlæknir á St. Franciskusspít- alanum í Stykkishólmi. Um tuttugu ár eru síðan deildin á sjúkrahúsinu í Hólminum, sem sinnir fólki sem er veikt í baki eða með hálsverki hóf starfsemi. Rúmin þar eru þrettán, en í sparnaði síð- ustu ára hafa stundum aðeins níu verið opin. Þeim sem koma í með- ferð er forgangsraðaðið, hámarks- bið eftir meðferð er tvö ár en nýlega voru 315 manns á biðlista og 210 biðu mats. Að frumkvæði Jóseps Alls fóru um 220 sjúklingar í gegnum meðferð á deildinni á sjúkrahúsinu í fyrra, þar sem að auki eru fjórtán rúm á almennri sjúkra- og legudeild. Sjúkrahúsið í Hólminum og starfsemi þar er hluti af Heilbrigðisstofnun Vesturlands – en heimamönnum er hins vegar tamt að kenna stofnunina við St. Franciskussystur, en Franc- iskusreglan lét á sínum tíma reisa sjúkrahúsið og stóð lengi að rekstri þess. Háls- og bakdeildin var sett á laggirnar að frumkvæði Jóseps og Luciu de Korte sjúkraþjálfara. Jós- ep er menntaður skurðlæknir, nam sérgrein sína í Svíþjóð og starfaði síðar sem sjúkrahús- og heilsu- gæslulæknir á Patreksfirði. Árið 1990 réði hann sig til starfa sem sjúkrahúslæknir á Franciskusspít- alanum. Mikil breidd í aðferðafræði „Áhugi minn í læknisfræðinni beindist smám saman að því að geta sinnt meðferð verkja í hreyfikerfi og því aflaði ég mér menntunar á því sviði, fyrst í Bretlandi, það eru greiningar- og meðferðaraðferðir, sem voru þróaðar af miklum frum- kvöðli, lækninum James H. Cyriax,“ segir Jósep sem hefur haldið þekk- ingu sinni við því að sækja námskeið og fyrirlestra í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Belgíu og víðar. Þá hafa sjúkraþjálfarar teymisins einnig sótt aukna þekkingu og þjálfun til útlanda og breiddin í aðferðafræði deildarinnar er mikil. „Símenntun skiptir miklu og við höfum þróað aðferðir okkar heil- mikið í gegnum árin, þótt grunngerð starfseminnar sé hin sama,“ segir Jósep. Hann leiðir starf fagteymis þar sem læknir, fimm sjúkraþjálf- arar og tveir hjúkrunarfræðingar, annar með sérmenntun í geð- hjúkrun, auk aðstoðarfólks á skurð- stofu, vinna sem ein heild. Starfsemi bakdeildarinnar er í rúmgóðu og björtu rými í sjúkrahúsinu, í að- stöðu sem áður hýsti meðal annars prentsmiðju St. Franciskussystra. Þjálfun og breyttur lífsstíll Áður en sjúklingar koma í með- ferð í Hólminum er farið heildstætt yfir þeirra mál og metið hvað hentar best. „Stundum þarf í upphafi að lina þjáningar sjúklinganna meðan þeir bíða eftir innlögn með spraut- um. Við reynum samt að halda slíku í lágmarki. Sjúkraþjálfun og breytt- ur lífsstíll eru kjarnaatriði í okkar starfi,“ segir Jósep. Það kostar samfélagið mikið að fólk þurfi að bíða eftir meðferð um lengri eða skemmri tíma. Því leggur Jósep áherslu á mikilvægi þess að deildin verði efld og innan velferð- arráðuneytisins er vilji til slíks. Svigrúm sé hvað aðstöðuna varðar til að taka inn allt að sautján sjúk- Þjálfa nýja vöðva til átaka  Bakveikum sinnt á sjúkrahúsinu í Sykkishólmi  220 sjúklingar á ári  Langir biðlistar  Þróuð meðferð Morgunblaðið/Styrmir Kári Aðstaða Vel er búið að bakdeildinni og sjúkraþjálfunin er í þeim hluta sjúkrahússins þar sem eitt sinn var prentsmiðja St. Franciskussystra. Í hnotskurn » Verkir í baki eru eitt mesta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar. Bið eftir meðferð getur tekið tvö ár. » Læknir leiðir starf teymis sjúkraþjálfara og hjúkr- unarfræðinga. » Styrkjandi æfingar og nýr lífsstíll. Langvarandi verkir í baki geta leitt til andlegra sjúkdóma.  Á dögunum var í Leir 7 við Aðalgötu 20 í Stykkishólmi opnuð sýningin Í orði og á borði. Þetta er fimmta sýningin af sjö í sýningarröðinni Matur er manns gaman á vegum Leirs 7 og nú sýna Sigrún Ó. Einarsdóttir og Kristín Ísleifs- dóttir glerverk og keramik. Sigrún stofnaði glervinnustofuna Gler í Bergvík með Søren Larsen 1982, en síðan 2003 hefur hún rekið hana ein. Hún hefur unnið jöfnum höndum að myndlist og nytjalist. Kristín útskrifaðist frá Tokyo Designers College í Japan 1979 og hefur starfað sem myndlistarmaður og hönnuður síðan. Hún hefur haldið sjö einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Kristín hef- ur kennt myndlist við ýmsa skóla. Íslensk matarmenning og þá einkum tenging hennar við tungumálið er þeim Kristínu og Sigrúnu ofarlega í huga við gerð verkanna á sýningunni í Stykk- ishólmi sem stendur til 16. september. sbs@mbl.is Matur Borðbúnaður úr leir og gleri hefur tengsl við matarmenninguna sem get- ur þegar allra best tekst til verið heilmikið kúnstverk út af fyrir sig. Listin sýnir tengsl tungumáls og matarmenningarinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.