Morgunblaðið - 30.08.2013, Síða 27

Morgunblaðið - 30.08.2013, Síða 27
FRÉTTIR 27Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14 FRÍAR SJÓNMÆLINGAR Á HAMRABORGARHÁTÍÐINNI Á MORGUN KL. 11-16 Komdu og fáðu fría sjónmælingu Bjóðum upp á grillaðar pylsur og svaladrykk TRAUST OG GÓÐ ÞJÓNUSTA Í 17 ÁR FRÉTTASKÝRING Kristinn Ingi Jónsson kij@mbl.is Gengi krónunnar hefur verið mun stöðugra það sem af er sumri en seinasta sumar. Þá hefur gengið ekki styrkst yfir sumarmánuðina, eins og undanfarin ár, heldur þvert á móti veikst gagnvart myntum helstu viðskiptalanda Íslands. Hætta er á því að yfirvofandi kjarasamningar sem og minni straumur ferðamanna til landsins muni skila sér í enn frekari geng- isveikingu krónunnar þegar líða tekur á veturinn. Undanfarin ár hefur gengi krón- unnar styrkst allverulega á sumrin vegna aukins gjaldeyrisinnstreymis samhliða auknum ferðamanna- straumi, en sérfræðingar á gjald- eyrismarkaði hafa talað um árstíða- sveiflu krónunnar í þessu sambandi. Krónan veiktist í sumar Athygli vekur að gengishækkun krónunnar hefur ekki látið á sér kræla þetta sumarið en sem dæmi hefur krónan veikst sem nemur 4,5% gagnvart evru síðan í byrjun maímánaðar en hún styrktist um 6,6% gagnvart evru seinasta sumar. Þess í stað hefur krónan haldist nokkuð stöðug. Virkari inngrip Seðlabankans Jón Bjarki Bentsson, hagfræðing- ur hjá greiningardeild Íslands- banka, segir nokkrar ástæður vera fyrir þessu. „Ein er sú að gjald- dögum af erlendum lánum var að hluta til stillt upp á móti þessu flæði í sumar. Til dæmis var gjalddagi er- lends láns Kópavogs framlengdur að hluta fram á haustið og hafði þá væntanlega minni áhrif á krónuna í vor.“ Að mati Jóns gæti breytt stefna Seðlabankans líka hafa haft áhrif. „Bankinn hefur lýst því yfir að hann ætli að vera virkari á mark- aði með það að augnamiði að draga úr sveiflum á gengi krónunnar. Sú yfirlýsing hefur haft þau áhrif að menn hafa síður búist við sumar- styrkingunni þetta árið og eru þá ekki eins áhugasamir um að selja gjaldeyri.“ Það sé hins vegar áhyggjuefni að bankinn sé ekki að safna í gjaldeyr- isforðann – með kaupum á gjaldeyri – til að standa gegn hugsanlegri veikingu krónunnar í haust. Orri Hauksson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segir það ánægjuefni hvað Seðlabankinn hef- ur náð að halda genginu stöðugu í ár miðað við oft áður. „Það var skrítið að vera innan gjaldeyris- hafta, þar sem Seðlabankinn hafði öll þau tæki sem hann þurfti til að halda genginu stöðugu, en að búa samt við miklar sveiflur. Núna virð- ist það ganga betur.“ Stór áhættuþáttur Eftir sem áður eru áhættuþættir margir en að mati Orra eru yfirvof- andi kjarasamningar sá langstærsti. „Ef samið verður um ríflegar launa- hækkanir munu þær klárlega setja þrýsting á gengi krónunnar. Verð- bólgan mun þá aukast og launa- hækkanirnar hverfa.“ Jón Bjarki segir hætt við því að það verði þrýstingur til gengisveik- ingar þegar líða fer á haustið. „Nú eru að koma inn miklar gjaldeyr- istekjur vegna ferðamanna. Það mun draga hratt úr þeim í sept- ember og svo áfram með haustinu. Ég tel það líklegra en ekki að geng- ið muni veikjast á næstu misser- um.“ Hann telur þó að ýmsir þættir vegi á móti hugsanlegri veikingu krónunnar. „Bein skuldsetning sveitarfélaganna í erlendri mynt er minni en áður. Þau eru búin að greiða hratt af erlendum skuldum og er ekki mikið um stóra gjalddaga hjá þeim næsta kastið. Heilt yfir er minni þrýstingur vegna gjalddaga framundan en var í fyrra.“ Þá standi vonir til að gjaldeyristekjur af sjávarútveginum aukist í vetur vegna meiri kvóta, sem hefur áhrif til gengisstyrkingar. „Afurðaverðið er líka að sækja í sig veðrið,“ bendir hann jafnframt á. Hætta á að krónan veikist í vetur  Gengi íslensku krónunnar hefur verið mun stöðugra það sem af er sumri en undanfarin ár  Sumarstyrkingin hefur ekki látið á sér kræla  Yfirvofandi kjarasamningar stór áhættuþáttur Virkur á markaði? » Seðlabankinn boðaði í maí virkari inngrip á gjaldeyris- markaði með það að markmiði að draga úr gengissveiflum. » Síðan þá hefur bankinn grip- ið átta sinnum inn í milli- bankamarkaðinn með gjald- eyri. » Bankanum hefur hins vegar ekki tekist að auka óskuldsett- an hluta gjaldeyrisforðans, eins og hann ætlaði að gera. Gengisþróun evrunnar gagnvart krónu 180 170 160 150 140 jan . ‘1 2 ap r. ‘1 2 ok t. ‘ 12 jan . ‘1 3 ap r. ‘1 3 júl . ‘1 3 ok t. ‘ 13 júl . ‘1 2 Miðgengi Heimild: Landsbankinn Jón Bjarki Bentsson Orri Hauksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.