Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Þúsundir Bandaríkjamanna söfnuðust saman í Wash-
ington D.C. á miðvikudag til að minnast þess að fimmtíu
ár eru liðin frá því að mannréttindaleiðtoginn Martin
Luther King Jr. lét þau fleygu orð falla, „Ég á mér
draum“, á tröppunum við Lincoln-minnisvarðann.
Barack Obama Bandaríkjaforseti var meðal þeirra
sem ávörpuðu fjöldann á miðvikudag og sagði m.a. að
King hefði bjargað Bandaríkjunum úr ánauð en ítrek-
aði að fólk þyrfti að vera stöðugt á verði til að halda
draumi King lifandi.
Hálf öld síðan 250 þúsund manns kröfðust frelsis og starfa í Washington
AFP
Bandaríski draumurinn
Lögregluyfirvöld í Ástralíu hafa
handtekið fimm í umfangsmestu
aðgerðum gegn smygli á fólki í
sögu landsins. Rannsókn málsins
hefur staðið yfir í tólf mánuði og
hefur m.a. falið í sér sjö sjálfstæð-
ar rannsóknir á 132 bátsferðum
með flóttafólk til landsins.
Hundruð hælisleitenda hafa lát-
ist í hættulegum bátsferðum til
Ástralíu, í lélegum og yfirfullum
bátum, sem flestir leggja úr höfn í
Indónesíu og Srí Lanka. Mennirnir
sem voru handtekir komu sjálfir til
Ástralíu með bátum smyglara en
þeir eru grunaðir um að hafa safn-
að fólki í bátana og staðið að inn-
heimtu og flutningi fjármuna.
Í málinu styðst lögregla m.a. við
vitnisburð yfir 200 vitna en sam-
kvæmt dagblaðinu The Australian
rukkaði smyglhringurinn hælisleit-
endurna um 3.600-9.000 Banda-
ríkjadollara fyrir ferðina og lofuðu
einkavistarverum um borð.
Smygl á fólki er mikið hitamál í
Ástralíu, þar sem gengið verður til
kosninga 7. september næstkom-
andi. Stærstu flokkar landsins hafa
lofað að herða lög til að draga úr
straumi flóttafólks og Verka-
mannaflokkurinn, sem nú ræður
meirihluta, hefur gert samning við
eyríkin Papúa Nýju-Gíneu og
Nauru um að taka við hælisleit-
endum gegn fjárframlögum frá
Ástralíu.
Stjórnarandstaðan hefur m.a.
lagt til að stjórnvöld kaupi óhaf-
færa indónesíska fiskibáta, til að
koma í veg fyrir að þeir séu notaðir
til að smygla fólki yfir hafið.
Upprættu smyglhring
Fimm handteknir Fleiri en hundrað bátsferðir með
flóttafólk til rannsóknar Mikið hitamál í Ástralíu
Rússneski listmálarinn Konstantin
Altunin hefur flúið til Frakklands og
sótt um pólitískt hæli. Lögrega í
Sankti Pétursborg réðst á þriðjudag
inn í hið nýopnaða Museum of the
Authorities og gerði m.a. upptækt
málverk eftir Altunin, sem sýnir for-
setann Vladimir Pútín og forsætis-
ráðherrann Dmitry Medvedev í kven-
mannsnærfötum.
Altunin sagðist í gær hafa flúið
Rússland um leið og hann heyrði að
sýningu hans hefði verið lokað á þriðjudagskvöld og að skipuleggjendur
hennar hefðu verið handteknir af lögreglu og yfirheyrðir fram á nótt.
Hann sagði lögregluna hafa lýst sýningunni sem „öfgafullri“ og að hann
óttaðist að ákæra yrði lögð fram á hendur honum. Þá sagðist hann hafa átt
von á því að yfirvöld sæju húmorinn í verkunum, sem sýndu m.a. Lenín og
Stalín, og að viðbrögð þeirra hefðu komið honum verulega á óvart.
RÚSSLAND
Rússneskur listamaður óskar hælis í París
Verkið sem lögregla lagði hald á.
Utanríkisráðuneyti Írans hefur
skipað Marzieh Afkham talsmann
ráðuneytisins en hún verður fyrsta
konan til að sinna því starfi. Af-
kham hefur starfað hjá ráðuneyt-
inu í nærri þrjá áratugi og m.a. far-
ið fyrir fjölmiðla- og
almannatengslamálum síðan 2010
en ráðning hennar hefur engu að
síður verið harkalega gagnrýnd af
íhaldssömum klerkum og þing-
mönnum.
„Þeir sem gagnrýna þessa
ákvörðun verða að skilja að sér-
fræðiþekking hennar var það eina
sem skipti máli við útnefninguna,“
sagði fráfarandi
talsmaður ráðu-
neytisins, Abbas
Araqchi, í sam-
tali við ISNA-
fréttastofuna.
Araqchi sagði
á þriðjudag að
verið væri að búa
aðra konu undir
að verða fyrsti
sendiherra Írans en fréttir hafa
borist af því að Hassan Rowhani,
forseti landsins, hafi hvatt embætt-
ismenn til að ráða konur í háar
stöður.
ÍRAN
Fyrsti kvenkyns talsmaður ráðuneytisins
Hassan Rowhani
Lækjargötu og Vesturgötu
www.gilbert.is
FYRIR ERFIÐUSTU AÐSTÆÐUR
SIF BJÖRGUNARÚRIÐ
ÍSLENSKT 1000 METRA VATNSHELT OFURÚR