Morgunblaðið - 30.08.2013, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Framtíð Evrópu er
eitt stærsta álitaefni
okkar samtíma. Stefn-
ir Evrópa að sam-
bandsríki eða banda-
lagi frjálsra ríkja sem
eiga sér samvinnu á
sviði efnahagsmála?
Margir helstu for-
ystumenn ESB hafa
lýst skoðun sinni, að
stefna beri að sam-
bandsríki. Hver verð-
ur staða Bretlands og Norðurlanda í
nýrri Evrópu? Hver yrði staða Ís-
lands í evrópsku stórríki?
Í ljósi þessara álitaefna er mikill
hvalreki að fá hingað til lands Mörtu
Andreasen, Evrópuþingmann
breska Íhaldsflokksins og fyrrver-
andi aðalendurskoðanda fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins. Hún flytur erindi sem hún
nefnir: Hvert stefnir Evrópa? The
European Union, where is it going?
Ráðstefnan verður í dag, föstudag
30. ágúst, kl. 17 í náttúrufræðihúsi
Háskóla Íslands. Fundarstjóri verð-
ur Björn Bjarnason. Erindið er á
vegum Íslensks þjóðráðs, Heims-
sýnar, Evrópuvaktarinnar, Nei við
ESB, Ísafoldar og Rannsókn-
arstofnunar um nýsköpun og hag-
vöxt. Á laugardagsmorgun verður
Marta Andreasen í Valhöll á vegum
utanríkisnefndar Sjálfstæðisflokks-
ins.
Marta Andreasen varð kunn um
alla Evrópu þegar hún sem endur-
skoðandi framkvæmda-
stjórnar ESB benti á
víðtæka spillingu, bruðl
og misferli. Hún reyndi
að koma ábendingum til
yfirmanna án árangurs.
Kerfið tók til sinna ráða
þegar fjölmiðlar tóku að
fylgjast með baráttu
hennar. Í maí 2002 var
Marta Andreasen rekin
úr starfi fyrir að sýna
ekki nægilega
„… hlýðni og virðingu“.
Hún var kjörin á Evr-
ópuþingið 2009. Marta Andreasen er
af spænsku bergi brotin, fædd í Arg-
entínu árið 1955.
Kate Hoey í fyrra
Þjóðráð eru samtök borgaralega
sinnaðs fólks um fullveldi þjóð-
arinnar. Samtökin héldu sitt fyrsta
málþing í október síðastliðnum þar
sem Kate Hoey, þingmaður Verka-
mannaflokksins og fyrrverandi ráð-
herra í ríkisstjórn Tony Blairs, flutti
magnað erindi um Bretland og Evr-
ópu, sjá www.icewise.is.
Evrópuþingmað-
ur fjallar um
framtíð Evrópu
Eftir Hall Hallsson
Hallur Hallsson
»Hver verður staða
Bretlands og Norð-
urlanda í nýrri Evrópu?
Hver yrði staða Íslands
í evrópsku stórríki?
Höfundur er formaður Þjóðráðs.
Þegar lífkeðju hafs-
ins er raskað með of-
veiði verða ófyrir-
sjáanlegar breytingar
á fiskistofnum. Stofn-
ar, sem til þessa hafa
verið frekar stað-
bundnir, synda um í of-
framboði af æti og séu
þeir harðgerðir og
ágengir fjölga þeir sér
umfram það sem áður
hefur verið. Þetta sést
best á makrílstofninum, sem dreifir
sér nú á æ stærra svæði og þó að
hann hafi tímabundið æti á frumslóð,
þar sem öðrum fiskistofnum hefur
verið útrýmt hér um bil þá er hafið
ferli sem bregðast verður við.
Það sem að Evrópusambandinu
snýr er ekki að vernda makrílstofn-
inn, heldur að hætta ofveiði á öðrum
fiskistofnum og takast á við þau gíf-
urlegu vandamál sem felast í því að
koma fiskistofnum sínum í jafnvægi
aftur. Vandamálið felst ekki síst í því
að halda ágengum stofnum ránfiska
eins og makríls innan skynsamlegra
marka.
Það sem að okkur Íslendingum
snýr er að milljónir tonna af ránfiski
sækja nú inn í lögsöguna og okkur
leyfist ekki að verja ekki þá fiski-
stofna sem fyrir eru ef við ætlum
ekki að gera fiskislóðir umhverfis
landið að þeim sama óskapnaði – og
ördeyðu – sem einkennir hafsvæði
Evrópusambandsins, jafnvel þó að
einhverjir segi að það sé framtíðin.
Það er engin tilviljun,
að sjófuglar á þeirri
fiskislóð, þar sem mak-
ríllinn heldur sig, eru
að veslast upp og eyð-
ast. Það er aðeins yf-
irborðssýn á miklu
stærra vandamáli.
Nú stendur fyrir
dyrum sáttafundur um
makríldeiluna og það er
nauðsynlegt að skoða
vandamálið frá fleiru
en einu sjónarhorni og
það hlýtur að koma í hlut okkar
manna sem reynslan sýnir að kunna
meira um fiskveiðistjórnun en við-
mælendurnir, að opna augu þeirra
fyrir þeim vandamálum sem við
stöndum frammi fyrir. Við hreinlega
verðum að búa aðkomnum fiski-
stofnum umhverfi í samræmi við
aðra stofna.
Makríldeilan
Eftir Kristján Hall
Kristján Hall
» Við ætlum ekki gera
fiskislóðir að sama
óskapnaði og ördeyðu
sem einkennir hafsvæði
Evrópusambandsins,
jafnvel þó að einhverjir
segi að það sé fram-
tíðin.
Höfundur er fyrrverandi
atvinnurekandi.
Fjórtán borð í Gullsmára
Og enn fjölgar í Gullsmáranum.
Fimmtudaginn 22. ágúst var spilað
á 14 borðum.Úrslit í N/S:
Jón Stefánss. – Viðar Valdimarsson 304
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 297
Pétur Antonss. – Friðrik Hermannss. 296
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 288
Ernst Backman – Hermann Guðmass. 285
A/V
Samúel Guðmss. – Jón Hannesson 335
Sigurður Njálss. – Guðm. Sigurjónsson
324
Björn Árnas. – Auðunn Guðmundss. 322
Skarphéðinn Lýðss. – Sverrir Jónsson 316
Haukur Guðmundss. – Stefán Ólafss. 294
Spilað var á 12 borðum í Gull-
smára, mánudaginn 26. ágúst.
Úrslit í N/S:
Jón Stefánsson - Viðar Valdimarss 228
Oddur Jónsson - Katarínus Jónsson 191
Sigurður Björnss. - Stefán Friðbjarnar
190
Haukur Harðarson - Ágúst Helgason 184
A/V
Sigurður Njálsson - Ágúst Sigurðsson 225
Ágúst Vilhelmsson - Kári Jónsson 187
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 186
Gunnar Alexanderss. - Elís Helgason 183
Rétt er að ítreka að allt spila-
áhugafólk er velkomið í Gullsmára.
Sumarbrids
Einhver haustfiðringur er að
koma í spilara en yfir 40 pör
mættu sl. miðvikudag.
Soffía Daníelsdóttir og Her-
mann Friðriksson spiluðu best,
fengu 61,3% skor. Keppnisstjórinn
Vigfús Pálsson og fréttaritarinn
Arnór Ragnarsson krunkuðu sig
saman fyrir leik og náðu öðru sæt-
inu, 59,7%, og Kristján Snorrason
og Birkir Jón Jónsson urðu þriðju
með 59,1%.
Birkir Jón gerði betur með vin-
konu sinni Erlu Sigurjónsdóttur á
mánudeginum en þá sigruðu þau í
20 para tvímenningi með miklum
yfirburðum eða 67,3% skor. Þá
urðu Arngunnur Jónsdóttir og
Guðrún Kr. Jóhannesdóttir í öðru
sæti með 58,3% og Helgi Tóm-
asson og Hannes Sigurðsson
þriðju, einnig með 58,3%.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
25% af gulli og
giftingarhringum
Í tilefni af því að Jens hefur verið
í Kringlunni í 25 ár ætlum
við að lækka verð á öllu gulli og
giftingarhringum um 25%
Módelsmíðaðir
skartgripir
Kringlunni og
Síðumúla 35
Íslenskir steinar
Verð nú 112.425.- parið
Fullt verð 149.900.- parið
Gildir út ágúst 2013
Verð nú 89.175.- parið
Fullt verð 118.900.- parið
Verð nú 102.450.- parið
Fullt verð 136.600.- parið
10p TW.VVS1 demantur
Verð nú 98.925.-
Fullt verð 131.900.-