Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 43
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Hannes Þorsteinsson, ritstjóriog þjóðskjalavörður, fædd-ist á Brú í Biskupstungum
30.8. 1860. Hann var sonur Þorsteins
Narfasonar, b. þar, og k.h., Sigríðar
Þorsteinsdóttur, systur Steinunnar,
móður Tómasar Guðmundssonar
skálds.
Bróðir Hannesar var Þorsteinn
hagstofustjóri, faðir Hannesar, að-
alféhirðis Landsbankans, og Geirs,
forstjóra Ræsis um langt árabil.
Systir Hannesar var Jóhanna,
móðir Óskars Gíslasonar ljósmynd-
ara og amma leikaranna Ævars
Kvaran og Gísla Alfreðssonar.
Eiginkona Hannesar var Jar-
þrúður Jónsdóttir, dóttir Jóns Pét-
urssonar, alþm. og háyfirdómara, og
Jóhönnu Sofíu Bogadóttur.
Í ævisögu séra Árna Þórarins-
sonar greinir hann frá því hvernig
Hannes rakti ættir skólapilta í
Reykjavík er hann hitti þá af tilviljun,
og hvernig þeir þá ákváðu að útvega
honum styrki til náms. Hann lauk
stúdentsprófi frá Lærða skólanum
1886 og guðfræðiprófi frá Prestaskól-
anum 1888. Hann var kennari 1888-
91, dósent í íslenskri sögu við Há-
skóla Íslands frá stofnun skólans
1911 og heiðursdoktor Háskóla Ís-
lands frá 1925.
Hannes var málsmetandi stjórn-
málamaður og fræðimaður. Hann
festi kaup á hinu fræga blaði, Þjóð-
ólfi, 1891, var ritstjóri þess 1882-1909
og þingmaður heimastjórnarmanna
1901-1911.
Þjóðólfur var lengst af málgagn
Hannesar Hafstein og Heimastjórn-
arflokksins. En 1908 tók Hannes
Þorsteinsson afstöðu gegn Uppkast-
inu og misstu þá heimastjórnarmenn
helsta málgagn sitt.
Hannes bjó lengst af í sínu stóra,
glæsilega timburhúsi sem enn stend-
ur á horni Lindargötu og Klapp-
arstígs, nú nýuppgert. Hann var
þjóðskjalavörður frá 1924 og til
dauðadags 10.4. 1935.
Hannes samdi fjölda ævisagna
lærðra manna, sá um fjölda merkra
útgáfna og var líklega einn helsti ætt-
fræðingur þjóðarinnar, fyrr og síðar.
Sjálfsævisaga hans kom út löngu
eftir hans dag.
Merkir Íslendingar
Hannes Þorsteinsson
90 ára
Jósúa Magnússon
Júlíana Guðmundsdóttir
85 ára
Díana Þórunn
Kristjánsdóttir
Einar S. Mýrdal Jónsson
Ólafur Skúli Eysteinsson
80 ára
Erna Hvanndal
Hannesdóttir
Guðrún Ármannsdóttir
Gunnhildur
Alexandersdóttir
Hans Þorvaldsson
Sigurður Sveinbjörn
Bjarnason
Þór Steinberg Pálsson
70 ára
Erla Lárusdóttir
Finnbogi Höskuldsson
Jóna Sigríður Jónsdóttir
Kristín Friðbertsdóttir
Rósa Helgadóttir
Sigfús Lárusson
60 ára
Guðjón Pétur Pétursson
Halldór Ármann Eiðsson
Hróðný Bogadóttir
Kristófer Bjarnason
Marinó Bjarnason
Ólafur Sigurðsson
Smári Kjartan Kjartansson
Þórarinn Þorláksson
50 ára
Anna Birna Jamison
Anna Elín Óskarsdóttir
Ársæll Baldursson
Björn Þórisson
Erna Sigríður
Sigurðardóttir
Harpa Svavarsdóttir
Ingimar Guðmundsson
Lilja Magnúsdóttir
Sigríður Baldursdóttir
Sigurður Lárus F.
Sigurðsson
Unnsteinn Rúnar Kárason
Valborg Guðrún
Guðjónsdóttir
Þórey Jónsdóttir
40 ára
Greta Jessen
Guðrún Vilborg
Eyjólfsdóttir
Helgi Þór Emilsson
Ingibjörg Eydís
Ingimarsdóttir
Laleet Abreo Sverrisson
Ragnheiður Garðarsdóttir
Rúnar Skarphéðinn
Símonarson
Sabina Zutic
30 ára
Arnar Hákonarson
Eleonora Bergþórsdóttir
Elva Rut Þorleifsdóttir
Guðrún Margrét
Einarsdóttir
Halldór Halldórsson
Kristján Helgi Hafsteinsson
Ragnar Örn Gunnarsson
Sandra Björg Stefánsdóttir
Sigurður Borgar
Arnaldsson
Stefán Valur Jónsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sverrir ólst upp á
Álftanesi, er þar búsettur,
hefur stundað verslunar-
störf og verið snókerdóm-
ari.
Systkini: Elín Hrund, f.
1974; Sigurjón Friðrik, f.
1976; Garðar, f. 1981, og
Ísak, f. 1988.
Foreldrar: Garðar Agnar
Garðarsson, f. 1956, vél-
stjóri, og Bára Sigurjóns-
dóttir, f. 1956, ráðgjafi á
Vogi. Þau eru búsett á
Álftanesi.
Sverrir I.H.
Garðarsson
30 ára Hjördís ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett,
stundar nám sem fé-
lagsliði hjá Mími – sí-
menntun og starfar á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Maki: Egill Halldórsson, f.
1982, sjómaður.
Dóttir: Aðalheiður Daðey
Egilsdóttir, f. 2008.
Foreldrar: Aðalheiður
Hagar Haraldsdóttir, f.
1955, sjúkraliði, og Hörð-
ur Þórsson, f. 1955, húsa-
smiður.
Hjördís Ósk
Harðardóttir
30 ára Skúli ólst upp á
Akureyri, er þar búsettur,
lauk prófum í viðskipta-
fræði frá HA og starfar
hjá Höldi.
Maki: Hulda Frímanns-
dóttir, f. 1983, kennari.
Börn: Manúela Skúladótt-
ir, f. 2008, og Birnir
Skúlason, f. 2011.
Foreldrar: Eyjólfur
Ágústsson, f. 1951, bíla-
sali, og Sigríður Sigurð-
ardóttir, f. 1955, skrif-
stofumaður.
Sigurður Skúli
Eyjólfsson
henni veturlangt öll mín fram-
haldsskólaár, ásamt frænkum mín-
um sem einnig komu af lands-
byggðinni til náms.
Amma Sigga átti stórt hús við
Sunnubrautina í Vesturbæ Kópa-
vogs. Þau afi höfðu eignast fimm-
tán börn og rekið hænsnabú á
bernskuárum bæjarins. Ég minn-
ist þessara ára með hlýhug og
þakklæti. Þarna var oftast glatt á
hjalla hjá stórri fjölskyldu og
amma ótrúlega dugleg að annast
okkur unga fólkið. Við vorum sam-
heldinn hópur og sumir ættingj-
anna eru enn mínir bestu vinir.“
Lilja lauk verslunarprófi frá VÍ,
stúdentsprófi þaðan 1993, lærði
ensku í London og spænsku hjá
fransk-spænskri fjölskyldu í Mad-
rid, þar sem hún var au pair, og
var skiptinemi í Minneapolis í
Minnesota í Bandaríkjunum 1996.
Lilja stundaði nám í landfræði
við HÍ í þrjú ár, og á reyndar
ólokið lokaritgerð frá því námi,
sem hún lýkur við í ársbyrjun
2014. Hún stundaði síðan nám í
kerfisfræði við Århus Købmands-
skole í Danmörku og útskrifaðist
þaðan 2001.
Á skólaárunum var Lilja heima
á Hvolsvelli á sumrin, vann hjá
Sláturfélagi Suðurlands í tvö sum-
ur og önnur tvö á Hótel Hvols-
velli.
Þegar Lilja og eiginmaður
hennar komu heim frá Danmörku,
2002, bjuggu þau fyrst á Holtsgöt-
unni í Reykjavík en fluttu í Kópa-
voginn, við Fossvogsdal, 2005, og
hafa búið þar síðan.
Lilja vann hjá sýslumanninum í
Kópavogi 2002-2003. Þá hóf hún
störf hjá Embætti landlæknis og
hefur starfað þar síðan á heil-
brigðisupplýsingasviði.
Verkefnisstjóri upplýsinga-
kerfa hjá Landlækni
Í byrjun vann Lilja við Slysa-
skrá Íslands en síðan hefur hún
unnið í gagnagrunnum og upplýs-
ingakerfum embættisins. Verkefni
hennar eru margbreytileg, m.a.
söfnun og úrvinnsla á gögnum frá
öllum heilsugæslustöðvum lands-
ins, uppbygging og þróun nýrra
úrvinnslukerfa, gæðaeftirlit og töl-
fræði.
Lilja var gjaldkeri foreldra-
félags leikskólans í Grænatúni
2008-2010, er þar starfandi gjald-
keri frá 2013 og hefur setið í
stjórn starfsmannafélags Embætt-
is landlæknis.
Ferðast og kynnast
eigin landi
Helstu áhugamál Lilju eru
ferðalög, ljósmyndun, göngutúrar,
ýmis tæknimál og kvikmyndir:
„Á síðustu árum höfum við lagt
áherslu á að kynna landið fyrir
sonum okkar og höfum sjálf grætt
mikið á því. Við höfum þá fengið
sumarbústaði víðs vegar um land-
ið, dvalið á hverjum stað í ein-
hvern tíma og verið dugleg að
ferðast um nágrenni þeirra. Við
fórum t.d. á Vestfirðina síðasta
sumar og gistum þá á Súðavík, og
nú í sumar fórum við í góða veðrið
á Austurlandi.“
Lilja hefur tekið ljósmyndir frá
því á barnsaldri og er því oftast á
bak við myndavélina þegar teknar
eru myndir af fjölskyldunni.
Fjölskylda
Eiginmaður Lilju er Sigurður
Ólafsson, f. 20.12. 1968, hús-
gagnabólstrari. Foreldrar hans
eru Ólafur Jóhann Sigurðsson, f.
19.6. 1950, vélvirki, og Ólöf Ragn-
arsdóttir, f. 16.6. 1948, kennari.
Synir Lilju og Sigurðar eru
Kristófer Óli, f. 2.11. 2004, og
Ólafur Jóhann, f. 29.5. 2010.
Bróðir Lilju er Ingólfur Einar
Kjartansson, f. 22.4. 1978, við-
skiptafræðingur en kona hans er
Inga Sigurðardóttir kennari og
eru synir þeirra Kjartan, f. 2006,
Þórir, f. 2008, og Brynjar, f. 2010.
Foreldrar Lilju eru Kjartan
Einarsson, f. 22.11. 1953, hús-
gagnabólstrari, og Katrín Val-
gerður Ingólfsdóttir, f. 19.8. 1952,
ritari.
Úr frændgarði Lilju Bjarklindar Kjartansdóttur
Lilja Bjarklind
Kjartansdóttir
María Jóhannesdóttir
b. Dýrfinnustöðum í Skagafirði
Runólfur Þórbergur Jónsson
(dó ungur)
Sigríður Sólveig Runólfsdóttir
húsfr. í Kópavogi
Ingólfur Hannesson
hænsnabóndi í Kópavogi
Katrín Valgerður Ingólfsdóttir
ritari í Reykjavík
Margrét Jóhannsdóttir
húsfr. á Stóra-Hálsi í Grafningi
Hannes Gíslason
b. á Stóra-Hálsi í Grafningi
Ingibjörg Guðmundsdóttir
húsfr. í Miðfirði (dó ung)
Gunnlaugur Eiríksson
b. í Miðfirði
Margrét J. Gunnlaugsdóttir
húsfr. í Reykjavík
Einar Guðjónsson
fisksali í Rvík
Kjartan Einarsson
húsgagnabólstrari í Rvík
Guðmundína S. Jónsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Guðjón Sigurðsson
verkam. á Ísafirði
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
REGATTA 8
25% afsláttur
Kr. 467.500,-
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • fastus@fastus.is • www.fastus.is
Tilboð gilda til og með 31. ágúst eða á meðan birgðir endast.
Njóttu lífsins
Hafðu samband
og við hjálpum þér
að finna rafskutlu
við hæfi
Fastus býður uppá fjölbreytt úrval af rafskutlum
Meðfærilegar í notkun • Einfaldar stillingar
NEO 8
25% afsláttur
Kr. 345.000,-