Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2013
Auk Þríhnúka og Bláa lónsins er
eiginlega bara rukkað fyrir aðgang
að náttúruperlu við Kerið en þar
kostar aðgangurinn aðeins 2 evrur,
sem flestir Íslendingar ættu að
ráða við. Það var byrjað að rukka
við Kerið í vor og verður áhugavert
að fylgjast með þeirri þróun. Ragn-
heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, hefur lýst því
yfir að hún hafi áhuga á að skoða
gjaldtöku við vinsælustu ferða-
mannastaði landsins og því fylgjast
margir með því hvernig reynslan af
þessari gjaldtöku verður við Kerið.
Þeir sem sjá um sig ofan í eld-
fjallið við Þríhnúka eru ekki með
neinar séraðgerðir til að Íslend-
ingar geti komist að þessu náttúru
undri, en öllum þeim sem hafa
kunnáttu og búnað er áfram frjálst
að síga sjálfir niður sér að kostnað-
arlausu.
Kostar aðeins 416 krónur
í Bláa lónið
Verð á heimsókn í Bláa lónið hefur
hækkað mikið og hafa stjórnendur
staðarins brugðið á það ráð að selja
kort á lágu verði þannig að Íslend-
ingar geti áfram sótt staðinn. Verð
fyrir eina heimsókn kostar 6.400
krónur en einstaklingskort yfir
vetrarmánuðina, það er 9 mánuði
ársins, kostar aðeins 15.000 krónur.
Þannig að ef maður fer einu sinni í
viku í Bláa lónið allan tímann þá
kostar hver ferð ekki nema 416
krónur og ef kortið er ekki notað
nema tvisvar í mánuði væri hvert
skipti á krónur 832, sem verður að
teljast ansi gott og viðráðanlegt
fyrir heimamenn. Fjölskyldukort,
fyrir tvo fullorðna og börn yfir
sama tíma, kostar aðeins 20.000
krónur. Þá er verðið fyrir fullorð-
inn komið niður í 213 krónur ef far-
ið er einu sinni í viku og börnin fá
frítt.
Það kostar 2 evrur að kíkja á Kerið.
Morgunblaðið/Ómar
Séraðgerðir
fyrir
Íslendinga
Ferð í Bláa lónið er bæði góð og dýr.
Morgunblaðið/RAX
Ísland er alltaf að verða vinsælli
valkostur ferðamanna og eftir
hrunið er eðlilegt að menn
sem stýra sölu á þjónustu
hækki verð hennar og kanni
hvort hægt sé að fá meira inn
fyrir kostnaði.
Í ár varð 20,9% aukning á
ferðamönnum í júnímánuði frá
því í fyrra.
Þegar litið er til fjölda ferða-
manna í júnímánuði á því tólf
ára tímabili (2002-2013) sem
Ferðamálastofa hefur haldið úti
talningum má sjá að þeim hefur
fjölgað úr 32 þúsund árið 2002
í 90 þúsund árið 2013 eða um
58 þúsund ferðamenn. Aukn-
ingin milli ára hefur verið að
jafnaði 10,1% en sveiflur milli
ára hafa verið miklar.
Vegna mikillar eftirspurnareftir hótelgistingu um landallt hefur verðið hækkað
þannig að víða kostar næturgisting
á bilinu 30-50.000 krónur. Þegar
það kostar orðið 6.400 krónur að
kíkja í Bláa lónið og 37.000 krónur
að fá að síga ofan í Þríhnúka má
fara að spyrja sig hvort verðbólga
í ferðamannabransanum sé farin að
valda því að Íslendingar geti ekki
notið náttúruperla sinna, aðeins út-
lendingar?
Alþekkt eru dæmi utan úr heimi
þar sem þjóðir með veikan gjald-
eyri hafa ekki efni á að heimsækja
þekktustu perlur eigin lands vegna
þess að verðið er svo hátt. Þannig
var það við fall múrsins árið 1989
að víða gátu Austur-Evrópubúar
ekki lengur farið í miðbæ sinna
eigin borga þar sem verðið þar var
svo hátt að menn höfðu ekki efni á
kaffibolla þar þótt túristunum
þætti verðið lágt.
Það má ekki gleyma því að kost-
irnir við aukinn straum ferða-
manna til landsins eru án nokkurs
vafa miklu fleiri en gallarnir.
Gjaldeyristekjurnar streyma inn og
fullt af vel launuðum störfum býðst
ungum og kraftmiklum Íslend-
ingum í ferðamannabransanum.
Aðgengi að sumum stöðum er orð-
ið miklu betra. Og hugsanlega eng-
inn farið út í það að koma upp
þessari sigaðstöðu við Þríhnúka ef
ekki væri fyrir þann fjölda út-
lenskra ferðamanna sem er tilbú-
inn að borga hið háa verð fyrir sig-
ið.
Er það veðrið eða verðið?
Í samtali við Magneu Guðmunds-
dóttur hjá Bláa lóninu segir hún að
verðhækkunin hafi ekki haft áhrif
á aðsóknina. Aðspurð hvers vegna
þau hækki þá ekki bara verðið enn
meira segir hún að þau vilji hafa
verðlagninguna í samræmi við
verðskrá spa staða heima og er-
lendis. Aðspurð hvort aðsókn Ís-
lendinga hafi ekki minnkað segir
hún hana vera nokkuð jafna, „það
má eiginlega segja að heimsókn Ís-
lendinga sé frekar háð veðri en
verði“.
Niður í eldfjallið
Í samtali við Björn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóra Þríhnúka, segist
hann ekki telja Íslendinga vera
neinar hornrekur í eigin landi.
„Það er ekki víða á Íslandi sem er
tekið gjald fyrir aðgang að ein-
hverjum svæðum. Ég held það sé
nú bara í Bláa lónið og svo kannski
hjá okkur,“ segir Björn. „En við
erum ekki að selja aðgang að
staðnum heldur aðgang að búnaði
og tækjum.
Sig í Þríhnúka var ekki mögu-
leiki nema fyrir þá fáu sem hafa
búnað og þekkingu til þess á land-
inu, sem eru kannski 20-30 manns.
Með þessum framkvæmdum okkar
er verið að bjóða upp á þann
möguleika að allir geta skoðað
þetta.
Hinn valkosturinn væri að bjóða
ekki upp á þetta. Okkar fram-
kvæmdir stoppa ekki neinn sem
það kann, að fara ofan í gjaldlaust
á eigin vegum og með eigin búnaði.
Ég held að fjöldi ferðamanna við
vinsælustu náttúruperlur landsins
sé líklegri til að fæla Íslendinga
frá þeim stöðum yfir háannatímann
á sumrin heldur en verðlag,“ segir
Björn.
Víðast jafnvægi í verðlagi
Þegar verð er skoðað á jeppaferð-
um sýnir það sig að samkeppnin
tryggir að það er hægt að komast í
sanngjarnt verð, þótt verð fyrir
sumt sé himinhátt.
Sömu sögu er að segja þegar
möguleikar á snorkli eru skoðaðir
en þar er verðið frá um 13.000
krónum og getur varla talist neitt
okur.
Enn sem komið er má segja að
möguleikar Íslendinga til að njóta
lífsins í landi sínu hafi aukist með
vaxandi ferðaþjónustu og vandræði
af hækkandi verði séu ekki komin
að þolmörkum.
Þangað til í fyrra var það ekki mögulegt fyrir íslenskan almenning að síga niður í eldfjallið við Þríhnúka en vegna aukins áhuga ferðamanna á Íslandi hafa athafna-
menn komið upp kostnaðarsamri aðstöðu við eldgíginn og síga þar niður með túrista, íslenska sem erlenda, aðallega erlenda samt, enda verðið ennþá nokk hátt.
Morgunblaðið/Golli
Íslendingar hornrekur
í eigin landi?
ÖRT HÆKKANDI VERÐ Á ALLRI ÞJÓNUSTU YFIR AÐALFERÐAMANNATÍMANN HEFUR VAKIÐ
SPURNINGAR UM HVORT AÐEINS FERÐAMENN GETI NOTIÐ NÁTTÚRUPERLA LANDSINS?
EKKI ER AÐ SJÁ AÐ SLÍKAR ÁHYGGJUR SÉU ENN SEM KOMIÐ ER RÉTTMÆTAR.
FERÐAMENN
* Það má eiginlega segja að heimsókn Íslendinga í Bláalónið sé frekar háð veðri en verði.
Magnea Guðmundsdóttir
Þjóðmál
BÖRKUR GUNNARSSON
borkur@mbl.is