Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2013 HEIMURINN BANDARÍKIN BALTIMORE ðurinnki hermaBanda Manning u 0. júlí fyrar á þriðjudvar sakfelld hann var20 af 22 atriðum sem ýknaákærður fyrir. Hann va nni uaf alvarlegustu ákæru hafa aðstoðað óvini B Eftir er að kveða upp Manning en hann á yfi allt að 136 RÚSSLAN andarísk owden s að yfirgefa flugvöfékk lok ússar veittu honum tíma-Moskvu eftir að R tudaginn 1. ágúst. Hann hafðibundið hæli fimm num síðan í lok júlí. Snowdendvalið á flugvelli n í fylgd Söruh Harrison, fuyfirgaf flugvöllin ki er vitað hvar Snowden heWikiLeaks. Ek n r dvalarleyfi í Rússlanann hevið, en h fu DAN ðrar Bræmestu leiðtoga vikudagin ldauðsföllum í danförnu. Ákæru um að kveða nið ðningsmenn sMo aðiðnd óli ÚRÚGV MONTEV samþykkti dreifingu o öldungade g einnig sam Stuðningsm telja að með því ve að draga tennurnar ú skipulagðri glæpastarf sem þrífst á sölu vím Eitt sinn var reynt að henda Morgan Tsvangirai út um glugga á 10. hæð skrif- stofubyggingar. Hann hefur verið laminn illilega af fylgis- mönnum Mugabe og hand- tekinn oftar en hann kærir sig um að muna. Þrátt fyrir það hefur hinn 61 árs gamli Tsvangirai aldrei sýnt neinn bilbug í baráttu sinni til þess að fella Mugabe, baráttu sem hann hefur tekið þátt í síðan 1999. Persónuleg áföll hafa einnig dunið yfir Tsvangirai sem missti fyrri eiginkonu sína í bílslysi í mars 2009. Barnabarn hans drukknaði þremur mánuðum síð- ar. Í kjölfar kosninganna 2008, þarsem Robert Mugabe, forsetiZimbabwe, náði að knýja fram sigur í forsetakosningum með of- beldi en tapaði meirihluta í þinginu, neyddist hann til að sam- þykkja samkomulag um að gera helsta keppinaut sinn, Morgan Tsvangirai, að forsætisráðherra landsins. Mugabe, sem stundum er kall- aður krókódíllinn, er nú orðinn 89 ára gamall og hefur stjórnað Zim- babwe frá árinu 1980, þegar land- ið fékk sjálfstæði frá Bretum. Undir hans stjórn hefur efna- hagur landsins farið hríðversnandi og Zimbabwe-dollarinn brunnið upp í óðaverðbólgu. Tsvangirai, sem áður var leiðtogi stærstu verkalýðssamtaka Zimbabwe, var eitt sinn einn af helstu vonar- stjörnunum í Zanu-PF, flokki Mu- gabe. Honum ofbauð hins vegar þær aðferðir sem Mugabe beitti til að halda völdum og stofnaði sinn eigin flokk, Movement for Democratic Change (MDC) árið 1999. Samstarfið á milli Mugabe og Tsvangirais hefur verið mjög stirt og sambúðin á milli flokka þeirra erfið. Báðar fylkingar vonuðust því eftir því að niðurstaða kosn- inganna nú yrði skýr og ótvíræð. Stuðningsmenn MDC, flokks Tsvangirais, töldu að nú væri tækifærið til þess að fella Mugabe, enda bentu óformlegar skoðanakannanir til þess að MDC hefði mun meira fylgi en Zanu- PF. Kosningabarátta Mugabe byggðist hins vegar einkum á því að úthúða samkynhneigðum og loforðum um aukinn jöfnuð meðal fátækra. Framliðnir kjósa Mugabe Langar biðraðir mynduðust fyrir utan kjörstaði í Zimbabwe á mið- vikudaginn. Margir kjósendur völdu að vera komnir í röðina fyrir sólarupprás til þess að þeir gætu verið vissir um að þeir fengju að kjósa. Ekki virðast þó allir hafa fengið tækifæri til þess, því að samtökin ZESN, stærsti einstaki eftirlitsaðilinn með kosn- ingunum, hafa nú lýst því yfir að allt að því milljón manns, eða um sjötti hluti kjósenda, á kjörskrá hafi verið fjarlægður af henni og því vísað frá kjörstöðum. Bar einkum á því í borgum Zim- babwe, þar sem Zanu-PF á sér mun færri stuðningsmenn en í sveitum landsins. Ýmsir aðrir hnökrar voru á kjörskránni. Fjöldi framlið- inna var á skrá og sumir kjós- endur á lífi voru skráðir tvisvar eða þrisvar sinnum. Þá hurfu ein- hverjir kassar með atkvæðaseðl- um. Í því samhengi má nefna að einn helsti samstarfsmaður Tsvangirais, Morgan Komichi kosningastjóri MDC, var handtek- inn í aðdraganda kosninganna fyr- ir að tilkynna um það að utan- kjörfundaratkvæði merkt Tsvangirai hefðu fundist í rusla- gámi. Fyrir utan gallaða kjörskrá og horfna atkvæðaseðla má nefna að ríkisfjölmiðlar Zimbabwe beittu sér óspart í þágu Mugabe í að- draganda kosninganna og hleyptu fulltrúum MDC ekki að. „Risavaxinn farsi“ Daginn eftir kosningarnar lýstu talsmenn Zanu-PF því yfir að þeir hefðu „jarðað“ MDC al- gjörlega í bæði forsetakjörinu og í þingkosningunum. Staðfestra úr- slita er nú beðið, en Tsvangirai hefur þegar lýst því yfir að kosn- ingarnar hafi verið marklausar með öllu. Kallaði hann þær „risa- vaxinn farsa“. Hefur hann krafist þess að alþjóðlegir aðilar skoði framkvæmd kosninganna og lýsi þær ólöglegar. Eftirlitsaðilar frá Afríkusambandinu hafa hins vegar sagt að þær hafi farið fram á friðsamlegan hátt og að því sé ekki ástæða til að efast um úrslit- in. Jacob Zuma, forseti Suður- Afríku, hefur tekið í sama streng. Vestræn ríki hafa dregið þann úr- skurð í efa. Óvíst er um framhaldið í Zim- babwe. Heyrst hefur að stuðn- ingsmenn Tsvangirais íhugi að mótmæla framkvæmd kosninganna á götum úti. Slíkt gæti kallað á harkaleg viðbrögð frá Mugabe. Þó að sígi nú á seinni hluta valda- tíma Mugabe hafa kosningarnar nú sýnt og sannað að það má aldrei vanmeta krókódílinn eða hæfileika hans til að lifa af. Krókódíllinn nær alltaf að lifa af FLOKKSMENN ROBERTS MUGABE, FORSETA ZIMBABWE, HAFA LÝST YFIR SIGRI Í KOSNINGUNUM SEM FÓRU FRAM Á MIÐVIKUDAGINN VAR. ÞEGAR HAFA KOMIÐ FRAM ÁSAK- ANIR UM KOSNINGASVIK OG ÓTTAST ER AÐ OFBELDI BRJÓTIST ÚT MILLI FYLKINGA. Morgan Tsvangirai LIFIR AF Í MÓTBYR Hinn 89 ára gamli Robert Mugabe dró ekkert af sér í kosningabaráttunni. Hér er hann ásamt konu sinni, Grace, á fundi með stuðningsmönnum sínum fyrir kosningarnar. Hann hrósar nú sigri en efast er um lögmæti kosninganna. AFP * Ef þú tapar, verður þú að gefast upp. Það voruengin brögð í tafli. Robert Mugabe, hinn 89 ára gamli forseti Zimbabwe, lofaði því daginn fyrir kosningarnar að hann myndi sætta sig við ósigur. Alþjóðamál STEFÁN GUNNAR SVEINSSON sgs@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.