Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Síða 9
4.8. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki Dreymir þig nýtt eldhús! Hjá þaulvönum starfsmönnum GKS færðu sérsmíðað eldhús og allar innréttingar sem hugurinn girnist. Við bjóðum framúrskarandi þjónustu og gæðasmíði alla leið inn á þitt heimili. „Þetta byrjaði allt þegar ég var sex ára, á síðustu öld, árið 1999, að mamma sendi mig í Ölver. Hún ætlaði svo bara að sækja mig ef ég væri grátandi í marga daga,“ segir Agnes, en þess þurfti ekki. „Ég varð bara ástfangin af staðnum. Svo var maturinn svo góður þarna, að ég sagði alltaf öllum að uppáhaldsmaturinn minn væri Ölversmatur, ekki jólamaturinn hjá mömmu!“ segir hún og hlær. Sumarbúðirnar, sem eru reknar af KFUM og K, eru undir Hafnarfjalli, rétt hjá Borg- arnesi. Þar dvelja stúlkur á aldrinum sex til fimmtán ára, yfirleitt 45 saman í viku í senn. Margt skemmtilegt er í boði eins og rat- leikir, brennó, kvöldvökur, hæfileikakeppni, hárgreiðslukeppni og gönguferðir. Einnig eru bænastundir kvölds og morgna og mikið sungið. Þegar Agnes hafði verið þar sem barn fór hún ásamt vinkonum sínum í unglingaflokk. „Það var alveg grátið þarna síðustu tvö sumrin, stanslaust næstum því, við vorum svo miður okkar yfir að þetta væru seinustu sumrin okkar,“ segir Agnes og skellihlær af tilhugsuninni. „Við grétum í alvöru, það var mjög fyndið.“ Þegar hún var sextán og sautján var hún sjálfboðaliði þar og fékk svo vinnu sem flokksforingi átján ára. Þar hefur hún svo starfað síðustu fjögur sumur. „Þetta er bara ólýsanlega gaman, líka af því að þeg- ar ég var lítil leit ég svo upp til foringjanna, og hugsaði að ég ætlaði að verða foringi einn góðan veðurdag,“ segir hún. „Það er gaman að vera núna fyrirmynd, og svo hefur þetta hjálpað mér að þroskast og að geta talað fyrir framan hóp,“ segir Agnes. Agnes hefur líkað starfað í fiski á Vopna- firði og hjá Póstinum um jólin, en hún varð stúdent í fyrra úr Menntaskólanum í Reykjavík. Hún notaði árið til ferðalaga en hyggst setjast á skólabekk í haust í Háskóla Íslands. Á sumrin mun hún halda áfram að vinna í Ölveri. „Þetta er fimmtánda sumarið mitt í röð. Ég ætla að halda áfram þarna, ég get einhvern veginn ekki sleppt því.“ Agnes grét í Ölveri sem unglingur, taldi það síðasta skipti sem hún yrði í sumarbúðum. Morgunblaðið/RAX AGNES ÞORKELSDÓTTIR FÓR FYRST SEX ÁRA Í ÖLVER. EFTIR AÐ HÚN ÓX UPP ÚR ÞVÍ AÐ DVELJA ÞAR HÓF HÚN STÖRF SEM FORINGI. HÚN GETUR EKKI HUGSAÐ SÉR SUMAR ÁN ÖLVERS. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í sumarbúðir í fimmtán ár Við erum hálfgerðir veislustjórar á þessari hátíð,“ segirGunnar Helgason annar af tvíeykinu Gunni og Felix enþeir félagar verða á sínum stað á Neistaflugi, útihátíð fyrir fjölskylduna. „Þarna getur maður verið öruggur með börnin sín. Þeir tóku fjölskyldustefnu á þessa hátíð og hún hefur tekist gríðarlega vel. Þarna er alltaf gaman að vera,“ segir Gunni en hann er staddur í fríi þessa dagana – tölvulaus. „Tölvan mín hrundi daginn sem ég fór í frí. Það er æðislegt.“ Skemmtileg stemning og allir taka þátt Þeir félagar eru að alla helgina, heimsækja götugrillin, stjórna og taka þátt í dagskrá á stóra sviðinu á föstudagskvöld, laug- ardag og sunnudag og ljúka svo leik á kvöldvökunni á sunnu- dagskvöldinu. „Við heimsækjum öll hverfin og í þetta sinn er Eyþór Ingi með okkur, nýgiftur og flottur. Verðum á pallbíl og Dúndurfréttum. Það eru félagar í BRJÁN í Neskaupstað sem hafa staðið að hátíðinni frá upphafi. Fótbolti með brunaslöngur „Á Neistaflugi eru alltaf góðar barnaskemmtanir. Persónulega er ég mikill aðdáandi brunaslöngubolta sem er þannig að þetta er fótbolti þar sem markvörðurinn er með brunaslöngu. Við Felix spilum með fámennara liðinu og þarna verða þúsund manns og allir rennandi blautir en góðir. Svo veislustýrum við Brekkusöngnum á sunnudag. Þar er Hlynur Ben í essinu sínu. Falin perla á Austfjörðum sá gæi. Gerir þetta ofboðslega vel. Og svo endar þetta á risaflug- eldasýningu. Þetta er í raun hátíð sem er alhliða fjölskyldu- skemmtun. Algjörlega frábær hátíð og við erum ekki mikið að slaka á þessa helgina. Brosum bara hringinn.“ við fengum að vera í dómnefnd um flottustu skreytinguna í hverfinu og það verður mikið fjör. Svo höldum við niður í bæ þar sem við tökum á móti skrúðgöngunni og stýrum skemmt- un kvöldsins. Þetta kvöld er alltaf mjög skemmtilegt og allir klæddir í liti síns hverfis. Það myndast skemmtileg stemning þarna og allir taka þátt.“ Neistaflug hefur verið haldið um verslunarmannahelgina frá árinu 1993. Þetta er því 21. hátíðin og hefur aldrei verið glæsi- legri. Neistaflug er sannkölluð fjölskylduhátíð og boðið er upp á mikla dagskrá fyrir fólk á öllum aldri frá fimmtudegi til sunnudags. Börnin fá sitt og meðal þeirra sem sprella fyrir þau eru auk Gunna og Felix þau Skoppa og Skrýtla, Tóti tann- álfur og Jósafat mannahrellir, Bína og Búri, Ingó töframaður og Eyþór Ingi Eurovision-stjarna. Hinir eldri geta svo farið á tónleika með hljómsveitum eins og Sálinni, SúEllen, Buffinu og Gunnar Helgason, leikari og rithöfundur. Morgunblaðið/Styrmir Kári Öruggur með börnin sín á Neistaflugi FÉLAGARNIR GUNNAR HELGASON OG FELIX BERGSSON – GUNNI OG FELIX – TAKA ÞÁTT Í ÚTIHÁTÍÐINNI NEISTAFLUGI Í NESKAUPSTAÐ Í 14. SKIPTIÐ Í RÖÐ ÞESSA VERSLUNARMANNAHELGINA. ÞÁTTTAKA ÞEIRRA FÉ- LAGA Í HÁTÍÐINNI HÓFST ÁRIÐ 2000 OG HEFUR STAÐIÐ ÓSLITIÐ SÍÐAN. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is GUNNAR HELGASON Á LEIÐ AUSTUR Felix Bergsson, leikari og söngvari. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.