Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Blaðsíða 38
Ef þú fengir að eiga fataskáp einhvers, hver myndi það vera
og af hverju?
Chloe Sevigny, hún er ein af fáum, tel ég, sem hefur tekist að
vera klassísk, rokkuð, rómantísk og ögrandi og það stundum allt
á sama tíma. Ég elska stílinn hennar og hvernig henni tekst að
blanda saman merkjavöru og eitthverju úr t.d. H&M.
Áttu þér uppáhalds flík?
Ég keypti mér „biker“ leðurjakka í Zöru fyrir sex árum
og ég er ekki ennþá komin með leið á honum. Hann passar
eitthvern veginn við allt og verður bara flottari með hverju
árinu.
Hver var fyrsta hönnunarflíkin sem þú keyptir þér?
Ætli það hafi ekki verið kjóll frá Wood Wood sem ég
keypti mér fyrir tíu árum en þá var ég nýbúin með förðun-
arnámið og var að reyna að koma mér áfram sem sminka
og átti því engan pening og þótti þetta vera þvílík kaup.
Þessi kjóll hangir ennþá í skápnum mínum í dag.
Hver er uppáhaldsverslunin þín?
Guð... Þær eru svo margar, það fer doldið eftir hverju ég
er að leita, en ætli ég kíkja ekki oftast í KronKron, GK,
Kiosk og Einveru.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst
þátt í?
Úff... Þau voru ansi mörg þegar ég var yngri. Ætli það
versta hafi ekki verið melluböndin og útvíðu flauelsbux-
urnar þegar ég var 12-13 ára.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó þú eigir nóg af því?
Peysur. Langar alltaf í fullt af hlýjum peysum á haust-
in og svo þegar það fer að vora langar mig í nýjar
þynnri peysur fyrir sumarið.
Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að
nota?
Í rauninni ekki. Finn mér yfirleitt tækifæri til að nota
allar flíkurnar mínar, stundum getur þó alveg liðið ár
þangað til ég nota hana næst.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna?
Rakagefandi andlitskrem, góður maskari (muna að
skipta honum út reglulega), varasalvi með smá lit og
baugahyljari og þá ertu tilbúin fyrir allar aðstæður. Svo
er ekki verra að hafa einn flottan varalit líka til að geta
breytt aðeins til.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð
eða mottó, þegar kemur að fata-
kaupum?
Festast ekki í einhverjum tískulit-
um þegar ég er að kaupa mér föt.
Maður er fljótur að fá leið á þeim.
Ef þú fengir aðgang að tímavél
sem gæti flutt þig aftur til árs að
eigin vali og þú fengir dag til að
versla, hvaða ár myndirðu velja
og hvert færirðu?
Ég myndi fara til Parísar í kring-
um 1930, rétt fyrir seinni heims-
styrjöldina. Ég elska tískuna í París
og sérstaklega á þessum tíma.
LANGAR Í FATASKÁP CHLOE SEVIGNY
Heillast af
Parísar-
tískunni 1930
Topshop 10.990 kr. Morgunblaðið/Kristinn
Anna myndi vilja
að eiga fataskáp
Chloë Sevigny
Anna Kristín með Emblu dóttur sinni.
ANNA KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR ER SJÁLFSTÆTT STARFANDI
FÖRÐUNARFRÆÐINGUR SEM HEFUR MEÐAL ANNARS FARÐAÐ FYRIR
AUGLÝSINGAHERFERÐIR NIKITA, KRONKRON OG HOPPÍPOLLA--
TÓNLISTARMYNDBAND SIGUR RÓSAR. ÞAÐ ER NÓG AÐ GERA HJÁ
ÖNNU ÞVÍ ÁSAMT ÞVÍ AÐ FARÐA STARFAR HÚN SEM FLUGFREYJA
OG ER LISTNÁMSNEMI VIÐ IÐNSKÓLANN Í HAFNARFIRÐI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Flottur leðurjakki
er klassísk eign.
París rétt fyrir seinni
heimsstyrjöldina er
uppáhalds tískutímabil.
AFP
*Föt og fylgihlutir Steinunn Björg hannar fyrir undirfatadeild verslunarkeðjunnar H&M í Svíþjóð »40