Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Qupperneq 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2013, Qupperneq 44
Í slenska sumarið er stutt og stendur fyrir sínu. Og þótt aldrei sé á vísan að róa þegar sumarveðrið er annars vegar, er auðvelt að gera gott úr flestum tilbrigðum þess. Far- fuglar koma og fólkið skiptir um ham. Við- fangsefnin og áhugamálin gera það líka. Viðhorfin snarbreytast, verða bæði mildari og mót- tækilegri en endranær. Óskaplega mikilvægar og voðalega óvinsælar Stjórnmálamenn af öllum gerðum og flokkum barma sér yfir því að þurfa að „taka óvinsælar ákvarðanir“, í þágu hagmuna þjóðarinnar sjálfrar, þegar til lengri tíma sé horft. Þarna eru sem sagt á ferðinni góðar ákvarðanir og nauðsynlegar og jafnvel bráðnauðsyn- legar, en samt eru þær skilgreindar sem óvinsælar ákvarðanir. Enda eru þær það gjarnan. Það er þá væntanlega vegna þess að „þjóðin“ áttar sig ekki á ágæti þeirra eða nauðsyn og hún horfir einkum til þeirra stundaróþæginda sem þeim fylgja, rétt eins og barn sem foreldri fer með til tannlæknis. En þótt þetta sé freistandi greining fyrir stjórnmálamenn allra tíða þá má vera að stundum fái „þjóðin“ á til- finninguna að hin bráðnauðsynlega og góða ákvörðun sé í rauninni hvorugt. Hin miklu skammtíma- óþægindi sem eiga að réttlæta hinn langvarandi bata séu því alls ekki réttlætanleg. Óvinsældir góðra og nauðsynlegra ákvarðana eiga hugsanlega aðra skýr- ingu. Stjórnmálamenn hafa svo lengi tekið svo marg- ar vitlausar ákvarðanir eða látið hjá líða að taka þær réttu að þeir standa eins og óvænt frammi fyrir því að þurfa að taka nauðsynlega en „óvinsæla ákvörð- un“. Það er því ekki ákvörðunin sjálf sem er óvinsæl heldur fremur tómlætið og dugleysið sem leiddi til þess að hún varð óhjákvæmileg. En þessi hugleiðing er sett fram í tengslum við upphafsorðin vegna þess að um hásumar verða óhjákvæmilegar og nauðsyn- legar ákvarðanir ekki eins óvinsælar og þær myndu verða endranær. Íslendingar eru þannig innréttaðir þegar dagur er lengstur, að þá er lag. Líka fyrir stjórnmálamenn. Það er ekkert sérstakt heiti til yfir þetta fyrirbæri sumarsins. En við þekkjum lýsinguna á hinu gagnstæða og hún staðfestir kenninguna. Það er skammdegisgeð þjóðarinnar. Það er árvisst og undantekningarlaust að það geisa skammdegisdeilur. Blöð og bloggheimar fyllast þá af greinum og a.m.k. blöðin þurfa oft að biðja höfunda aðsendra greina að slá af stærstu fullyrðingum fyrir birtingu. Og af því að höfundurinn er í skammdegisskapinu sínu þá tek- ur hann því illa. Fordæmir „ritskoðunartilburði“ og yfirgang þeirra sem ætla að birta greinina hans, hon- um að kostnaðarlausu og það þótt þeir séu algjörlega ósammála öllu því sem í henni stendur. Á sumrin berast fáar greinar sem þyrftu snyrtingu fyrir birtingu. En hendi slíkt er öllum ábendingum undantekningarlaust tekið af ljúfmennsku og jafnvel þakklæti. Henni liggur ekkert á Ný ríkisstjórn tók við völdum í landinu 23. maí s.l., einmitt þegar sást til sumars. Miðað við þá stjórn- málalegu eymd, sem grúft hafði yfir, þá var tilfinn- ingin við stjórnarskiptin líkust því þegar vetrarþokan grá lætur loks undan síga. Nýja ríkisstjórnin hefur farið hægt af stað. Ef til vill bendir það til þess að hún þurfi ekki á næstunni að taka eða kynna neinar ákvarðanir sem einhverjir yrðu ósáttir við, þó ekki væru það aðrir en pólitískir andstæðingar. Vissulega er ekki alltaf farsælast að vaða sem fyrst í verk, þótt stundum sé það eina aðferðin sem dugar. Æskilegast er að menn hafi mótaða stefnu og einbeittan vilja til að framfylgja henni. Sjálfsagt er að stofna til um- ræðna og ágreinings um slíka stefnu og stuðla að op- inni, fræðilegri og hreinskilinni umræðu. Ágreinings- Mýtan um 100 dagana er gagnleg þótt hún sé mýta * „Sagt er að skipt hafi sköpumhvað Franklín Roosevelt gerðifyrstu 100 dagana í embætti. Því er gjarnan slegið föstu í framhaldinu að ný stjórnvöld hafi aðeins 100 daga til að koma því fram sem þarf.“ Reykjavíkurbréf 02.08.13 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2013
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.