Morgunblaðið - 13.09.2013, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. S E P T E M B E R 2 0 1 3
213. tölublað 101. árgangur
STAÐAN
ÓBREYTT Á
TOPPNUM
KVÓTINN,
STÖRFIN, OG
VERÐMÆTIN
ÞRIÐJA SVIÐS-
VERK BRAGA
FRUMSÝNT
SJÁVARÚTVEGUR 16 SÍÐUR MAÐUR AÐ MÍNU SKAPI 48ÁFRAM BARÁTTA ÍÞRÓTTIR
ÁRA
STOFNAÐ
1913
Morgunblaðið/Ásdís
Vær Börn láta stundum bíða eftir sér.
Tveggja barna móðir á Höfn í
Hornafirði vill vera flutt í burtu af
staðnum ef hún verður ólétt í þriðja
sinn. Ástæðan er mikil fjarlægð frá
næsta skráða fæðingarstað og að
engin ljósmóðir er á staðnum.
Konan fæddi yngra barn sitt í
Reykjavík í júlí síðastliðnum og
hafði þá beðið í mánuð inni á ætt-
ingja eftir fæðingunni. „Ég fór til
Reykjavíkur þegar ég var komin 38
vikur á leið og fæddi þegar það
vantaði einn dag upp á að ég væri
komin 42 vikur. Það sem bjargaði
mér fjárhagslega er að ég gat verið
heima hjá systur minni.“ Fjárhags-
aðstoð er lítil fyrir þær konur sem
þurfa að dvelja lengi fjarri heimili
sínu vegna fæðingar en heilbrigð-
isráðherra segir að verið sé að
skoða hvernig hægt sé að koma til
móts við þær. »16
Beið í mánuð í
Reykjavík eftir
fæðingunni
Borgin
» Fíkniefnaakstursbrot hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
eru 493 það sem af er ári.
» Oft er um sömu ökumenn að
ræða en alls hefur lögreglan
stöðvað 375 einstaklinga.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Fjöldi ökumanna heldur áfram að aka
undir áhrifum áfengis- eða vímuefna
þrátt fyrir að hafa áður verið sviptur
ökuréttindum fyrir sömu sakir.
Fíkniefnaakstur í umdæmi lögregl-
unnar á Suðurnesjum hefur færst
mikið í aukana það sem af er ári og
hefur sami ökumaðurinn meðal ann-
ars verið stöðvaður níu sinnum fyrir
að aka undir áhrifum í ár.
Samkvæmt tölum rannsóknar-
nefndar umferðarslysa var einn og
sami einstaklingurinn stöðvaður
þrettán sinnum í fyrra vegna gruns
um að hann hefði ekið undir áhrifum
áfengis eða ávana- og fíkniefna.
Einn af hverjum fjórum sem biðu
bana í umferðarslysum hér á landi á
árunum 2006 til 2011 lést í slysum
sem rekja má til aksturs undir áhrifum
áfengis eða lyfja, skv. tölum nefndar-
innar. Í sjö tilfellum fórust aðrir en
ökumaðurinn sem olli slysinu.
Ágúst Mogensen, rannsóknarstjóri
umferðarslysa hjá nefndinni, segir að
skoða ætti önnur úrræði en aðeins þau
að stöðva ökumenn og svipta þá öku-
réttindum.
MKæra sig kollótta »6
Stoppaður þrettán sinnum
Oft sömu einstaklingarnir sem keyra undir áhrifum vímuefna Um fjórðungur
banaslysa í umferðinni á fimm ára tímabili rakinn til ölvunar- eða fíkniefnaaksturs
Morgunblaðið/G.Rúnar
Laugavegur Hluti Laugavegar frá
Snorrabraut að Skólavörðustíg.
„Fyrst og fremst er verið að greina
hvað hægt er að lagfæra á svæðinu
eins og til dæmis aðgengismál. Það
þarf ekki að vera að róttækar breyt-
ingar þurfi til að fegra og bæta um-
hverfið,“ segir Ólöf Örvarsdóttir,
sviðsstjóri umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjavíkurborgar, um hönn-
un á Laugavegi frá Snorrabraut til
Skólavörðustígs.
Samþykkt voru drög að forsögn á
fundi umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjavíkurborgar.
Laugavegurinn mun því að öllum
líkindum fá breytta ásýnd. Í hönn-
unarvinnunni sem fram fer núna er
meðal annars viðhaldsþörfin greind,
kannað hvort breyta þurfi bíla- og
hjólastæðum, sem og hvort bæta
megi aðgengi fatlaðra, svo fátt eitt
sé nefnt.
Unnið er í samvinnu við hina
ýmsu hagsmunaaðila á svæðinu eins
og íbúa, fasteigna- og fyrirtækja-
eigendur og hagsmunaaðila í mið-
borginni.
Tillaga um breytingar verður
kynnt á næsta ári. thorunn@mbl.is
Vilja bæta Laugaveginn
Breytingar ekki endilega róttækar, segir sviðsstjóri
Fyrirtækið Hringrás í Klettagörðum í Reykjavík
tekur á móti brotajárni og málmum, þar með tal-
ið gömlum bílum, rafgeymum, spilliefnum, hjól-
börðum og gömlum raftækjum svo nokkuð sé
nefnt af úrgangi neysluþjóðfélagsins.
Hringrás flokkar efnin og endurvinnur og
sendir til frekari vinnslu. Ásmundur Einarsson,
umhverfis- og gæðastjóri Hringrásar, segir að
hjólbarðar séu kurlaðir og vírinn skilinn frá
gúmmíinu. Þeir eru geymdir á brunahólfuðu
svæði. Nú er farið að endurvinna raftæki hjá
Hringrás, spilliefnin eru fjarlægð og íhlutirnir
flokkaðir. Sumt er endurnýtt hér og annað flutt
út. Heldur dró úr framboði af efni til endur-
vinnslu eftir hrun en það er aftur að aukast.
Stöðug hringrás efna í endurvinnslu
Morgunblaðið/Ómar
Alls voru
1.522 konur á
aldrinum 25-34
ára án vinnu í
júlí síðast-
liðnum en 944
karlar.
Atvinnu-
lausar konur á
þessum aldri
voru lang-
fjölmennasti
hópur fólks án vinnu í júlí, sé heild-
arfjöldinn sundurgreindur eftir
kyni og aldri.
Flestar konur sem eru án vinnu á
höfuðborgarsvæðinu eru skil-
greindar sem verkakonur, eða alls
583 konur. »4
Margar 25-34 ára
konur án atvinnu
Atvinnuleysi Ungar
konur vantar vinnu.
Veðurstofa Íslands hefur sent frá sér
svokallað veðurapp sem gerir notend-
um snjallsíma kleift að skoða veður-
spár á auðveldan hátt. Appið sýnir
m.a. viðvaranir Veðurstofunnar og
einnig er hægt að fá viðvaranir um ill-
viðri sendar í símann.
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið
Stokkur Software smíðaði appið fyrir
Veðurstofuna. Hægt er að nálgast
það í gegnum Play Store fyrir Andro-
id-síma þar sem það heitir „Veður“.
Ferðamenn geta því verið betur
upplýstir um veðurspá og þar með
minnka væntanlega líkur á að þeir
lendi í vandræð-
um á fjöllum.
Geri þeir það
hins vegar getur
annar nýr ís-
lenskur tækni-
búnaður hugsan-
lega komið þeim
til bjargar. Með
búnaðinum má
miða út farsíma
úr þyrlu. Búnað-
urinn sannaði gildi sitt í fyrrakvöld
við leit að manni sem var villtur á
Hrútsfjalli. »12
Veðurapp og búnaður
sem miðar út GSM-síma
Miðun Símamerki
miðað úr þyrlu.