Morgunblaðið - 13.09.2013, Side 30

Morgunblaðið - 13.09.2013, Side 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 Það var óvenju hressandi að hlusta ný- lega á morgunútvarp Rásar 2. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráð- herra, var þar í spjalli um skil á ársreikn- ingum. Ráðherra nefndi til sögunnar að Bílabúð Benna hefði andmælt því að skila ít- arlegum ársreikningum til opinberr- ar birtingar. Hún benti réttilega á þau sjónarmið Bílabúðar Benna að við teldum vinna gegn samkeppni að keppinautar gætu aflað sér ná- kvæmra upplýsa um reksturinn í gegnum birtingu ársreikninga. „Ég hef samúð með þeim sjón- armiðum,“ sagði ráð- herrann og bætti við: „Ef þetta er vandamál, þá mætti athuga að hafa framsetningu á ársreikningum með öðrum hætti, þannig að það hindri ekki sam- keppni, því ekki viljum við gera það.“ Óneitanlega er upp- örvandi að heyra í stjórnmálamanni sem telur ekki eðlilegt að opinber fyrirmæli vinni gegn heilbrigðri samkeppni. Sjónarmið Bílabúðar Benna Sjónarmið Bílabúðar Benna eru þau að einkafyrirtæki, sem ekki sæk- ir sér fjármagn á almennan markað þurfi ekki að birta opinberlega allar þær upplýsingar úr rekstrinum sem fram koma í ítarlegum ársreikningi. Bílabúð Benna telur nægja að skila samandregnum ársreikningi til op- inberrar birtingar, en þar koma ekki fram jafn miklar upplýsingar. Hins vegar neitar ársreikningaskrá að taka við samandregnum ársreikningi frá fyrirtækinu. Hér á landi verða fyrirtæki að skila ítarlegum ársreikningi þegar eignir fara yfir 862 milljónir króna og rekstrartekjur yfir 1.725 milljónir króna. Annars staðar í Evrópu þurfa eignir að vera yfir 3 milljörðum króna og rekstrartekjur yfir 6 milljörðum til að krafist sé skila á ítarlegum árs- reikningi. Evrópsk fyrirtæki undir þessum mörkum mega skila sam- andregnum ársreikningi. Þetta getur Ragnheiður Elín lag- fært með einu pennastriki. Nóg er að hún láti sömu reglur gilda um birt- ingu ítarlegra ársreikninga hér og annars staðar í Evrópu. Hættulegt samkeppninni Engin rök eru fyrir því að neyða ís- lensk fyrirtæki til að opna bókhaldið fyrir keppinautum eftir þessari til- búnu íslensku reglu. Hér er nálægðin allt of mikil til að hafa þessi lágu við- mið. Það er hreint og beint hættulegt eðlilegri samkeppni að keppinautar geti fylgst náið hver með öðrum á þessum forsendum. Sérstaklega settu þessar íslensku reglur Bílabúð Benna í erfiða stöðu eftir hrunið, þegar nærri öll hin bíla- umboðin voru í eigu fjármálastofn- ana. Bílabúð Benna var eitt af fáum fyrirtækjum sem ekkert þurftu að fá afskrifað og fékk ekkert afskrifað. Það var út í hött að fara að sýna bankamönnum með ítarlegum árs- reikningum hvernig rekstri Bíla- búðar Benna væri háttað, meðan þeir voru að skafa innan úr samkeppn- isfyrirtækjunum til að gera þau sölu- vænleg. Samkeppni er góð Því má ekki gleyma að öll fyr- irtæki, stór sem smá, skila ársreikn- ingum með skattframtali. Ríkisvaldið hefur því allar upplýsingar fyrir skattlagningu og eftirlit. Vart þarf að taka fram að á þeim 38 árum sem Bílabúð Benna hefur verið starfandi hefur ársreikningum ávallt verið skil- að með framtali til skattstjóra. Op- inber birting ársreikninga er annað mál og hefur ekkert með skattskil að gera. Ummæli Ragnheiðar Elínar í út- varpsviðtalinu um mikilvægi sam- keppni lofa góðu fyrir íslenskt fyr- irtækjaumhverfi og íslenska neytendur. Það er einlæg von mín að hún láti verkin tala í þessum efnum. Fátt er jafn arðbært fyrir þjóðfélagið og að samkeppni ríki á sem flestum sviðum. Ráðherra sem styður heilbrigða samkeppni Eftir Benedikt Eyjólfsson » Það er einlæg von mín að ráðherra láti verkin tala í þessum efnum. Fátt er jafn arð- bært fyrir þjóðfélagið og að samkeppni ríki á sem flestum sviðum. Benedikt Eyjólfsson Höfundur er forstjóri. Hinn 5. september sl. birtist grein eftir Leif Magnússon verkfræð- ing í Mbl. Þar fjallar hann um skipulags- löggjöfina í tengslum við hugmyndir um að innanlandsflug leggist af í Vatnsmýrinni. Hann segist ekki finna neitt ákvæði í skipu- lagslögum sem fjalli um skipulags- vald sveitarfélaga. Þetta er réttmæt ábending hjá Leifi. Um eins árs skeið (2011-2012) var ég ritari og lögfræðilegur ráðgjafi skipulagsráðs Reykjavíkur og sat alla fundi þess. Ég er bundinn trúnaði um ummæli einstakra fulltrúa í skipu- lagsráði á fundum þess. Ég vil þó láta þess getið að ég varð aldrei var við annað en að ráðsliðar legðu sig fram um að vinna borg sinni vel. Ég held að ég sé ekki að brjóta neinn trúnað þó ég greini frá því að ég gerði athugasemd á fundum starfshóps um aðalskipulag við þetta orðalag um skipulagsvald borg- arinnar, en þá var einmitt skipulag Vatnsmýrar til umræðu. Ég benti á að það væri í miklu meira samræmi við lögin að tala um skipulagsskyldu borgarinnar. Reykjavíkurborg er skyldug að skipuleggja allt svæði inn- an sinna marka, Vatns- mýrina líka. Það hefur Reykjavíkurborg gert fyrir löngu og ákveðið að þar skuli rísa byggð í nokkuð náinni framtíð. Ekki er reyndar að sjá að borgarfulltrúar hafi nokkurt mark tekið á þessum ábendingum mínum. Þeir tala sífellt um skipulagsvald en ekki skipulagsskyldu. Og kannski er þeim vorkunn. Skipu- lagsskyldan felur náttúrulega jafn- framt í sér vald til að skipuleggja. Það er hins vegar misskilningur hjá Leifi að „skipulagsvaldið“ liggi raun- verulega hjá ríkisvaldinu, þ.e. Skipu- lagsstofnun. Þetta sést best þegar 4. mgr. 10. gr. skipulagslaga nr.123/2010 er skoðuð en þar er fjallað um lands- skipulagsstefnu sem er eins konar skipulagsstefna ríkisvaldsins og gildir fyrir allt landið. Í lagagreininni kem- ur að vísu fram að sveitarfélög skuli taka mið af landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlana eða breytinga á þeim og, eftir því sem við eigi, sam- ræma þær landsskipulagsstefnunni. En síðan segir að telji sveitarstjórn að ekki beri að taka mið af samþykktri landsskipulagsstefnu við gerð skipu- lagsáætlana skuli hún gera rökstudda grein fyrir því og skuli rökstuðning- urinn fylgja með tillögu að skipulags- áætlun þegar hún sé send Skipulags- stofnun. Er varla hægt að skilja þetta á annan veg en þann að ríkisvaldið verði að kyngja vel rökstuddri tillögu sveitarfélags þótt hún stangist á við landsskipulagsstefnu. Borgarstjórn Reykjavíkur mun væntanlega ekki eiga í vandræðum með að rökstyðja uppbyggingu byggðar í stað flugvallar í Vatnsmýri og er ekki að sjá að Skipulagsstofnun eða ríkisvaldið geti gert mikið til að stöðva það að óbreyttri löggjöf. Sér- stök landsskipulagsstefna liggur reyndar ekki fyrir enn en varla verð- ur gengið svo langt í henni að mæla fyrir um að innanlandsflugvöllur höf- uðborgarsvæðisins skuli vera í Vatns- mýri og hvergi annars staðar á höf- uðborgarsvæðinu. Vald og skylda í skipulagsmálum Eftir Einar Örn Thorlacius Einar Örn Thorlacius »Ég held að ég sé ekki að brjóta neinn trún- að þó ég greini frá því að ég gerði athugasemd á fundum við þetta orða- lag um skipulagsvald borgarinnar. Höfundur var yfirlögfræðingur skipulags- og byggingasviðs Reykjavíkur 2011-2012. FALLEGAR HAUSTVÖRUR Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10-18 Skoðaðu úrvalið www.jens.is Síðumúla 35 Kringlunni og Íslensk hönnun og handsmíði - Falleg gjöf Sérsmíðaðir skartgripir með íslenskum náttúrusteinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.