Morgunblaðið - 13.09.2013, Page 35

Morgunblaðið - 13.09.2013, Page 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 ✝ Ásgerður LiljaHolm fæddist á Syðra-Mallandi í Skefilsstaðahreppi á Skaga 22. októ- ber 1933. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 27. ágúst 2013. Hún var dóttir hjónanna Fann- eyjar Margrétar Árnadóttur frá Víkum á Skaga, f. 26. nóvember 1899, d. 2. ágúst 1969, og Boye Thomsen Holm frá Kolding í Danmörku, f. 6. september 1873, d. 8. október 1948. Systk- ini Ásgerðar Lilju: Ingvaldur Valgarður Holm Einarsson, f. 7. október 1922, d. 1. október 2008, Alexandrína Ágústa Ein- arsdóttir Woodham, f. 10. ágúst 1926, drengur Holm, f. 7. nóv- ember 1929, d. 7. nóvember 1929, Árni Hilmar Boye Holm, hannesar eru: Gísli Bogi, maki Ásta Bára Pétursdóttir og á Gísli tvö börn frá fyrra sam- bandi, tvo tengdasyni og þrjú barnabörn: Eyþór Holm, maki Þóra Guðný Birgisdóttir og á Eyþór fjögur börn frá fyrra hjónabandi, eina tengdadóttur, einn tengdason og fjögur barnabörn: Sigurður Baldvin, maki Ágústa Guðrún og eiga þau fjögur börn, þrjár tengda- dætur, einn tengdason og sex barnabörn: Hinrik Máni, maki Valborg Stefanía Karlsdóttir og eiga þau tvo syni. Ásgerður Lilja og Jóhannes Helgi hófu búskap í Grímsgerði í júlí 1955 og voru með hann í fimmtíu ár eða þar til í sept- ember 2005 að þau flytja í Skessugil 7 á Akureyri. Útför Ásgerðar Lilju fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 13. september 2013, og hefst athöfnin kl. 13.30. f. 22. nóvember 1930, d. 4. desem- ber 2007, Stefán Leó Holm, f. 22. nóvember 1930, Karl Thomsen Holm, f. 16. sept- ember 1935, Krist- inn Thomsen Holm, f. 14. maí 1937; og Júlíus Hinrik Holm, f. 3. sept- ember 1942, d. 28. júlí 1943. Ásgerður Lilja giftist 3. júlí 1955 Jóhannesi Helga Gíslasyni frá Grímsgerði, Hálshreppi í Fnjóskadal, f. 9. desember 1930. Hann var sonur hjónanna Gísla Jónssonar, f. 25. febrúar 1891, í Hrísgerði, Hálshreppi, d. 19. júní 1982, bónda í Grímsgerði, og Þóreyjar Jóhannesdóttur, f. 13. febrúar 1891, á Melum, Hálshreppi, d. 19 júní 1988. Synir Ásgerðar Lilju og Jó- Hún mamma er dáin. Einhvern veginn var það svo að maður átti von á því en skellurinn var jafn stór þegar að því kom. Það var erf- itt að sjá þig ekki geta gert allt það sem þú varst vön að gera alla daga, þú hélst samt áfram að gera það sem þú varst vön en fórst hægar yfir og það pirraði þig. Maður kom aldrei að tómum kof- unum hjá þér þegar maður kom í heimsókn og eldhúsborðið svign- aði undan kræsingunum. Ég man þá daga í sveitinni er við bræð- urnir vorum úti að leika og ef ein- hver meiddi sig þá var koss á bágt- ið og klapp á kollinn allt sem þurfti til að laga það. Þú varst svo ánægð þegar þú og pabbi fluttuð í Skes- sugilið að þú ljómaðir eins og sól- in. Þú varst svo stolt af barna- börnunum í afmælinu sem þú komst á Svalbarðseyri aðeins viku áður en þú fórst á sjúkrahúsið. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Minning þín lifir um allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem við fjölskyldan áttu saman og ég veit að nú líður þér vel innan um alla hina englana. Þinn elskulegi sonur, Sigurður Baldvin. Hún amma mín hafði stórt hjarta og stóran og hlýjan faðm sem ætíð beið manns þegar komið var í heimsókn til hennar. Aldrei vantaði heldur kræsingarnar hjá henni, flatbrauð með hangikjöti, kornflexkökur, heimabakað brauð, rúlluterta, mömmukökur en svo mætti lengi telja. Þegar ég var yngri og fór í sveitina ásamt elsta bróður mínum og frændum þá var amma alltaf búin að birgja sig upp af mat. Svo mikið borð- uðum við og kom það fyrir að ég fór heim, kannski eftir átta daga dvöl í Grímsgerði, alveg tveimur kílóum þyngri. Slíka matarást höfðum við frændsystkinin á henni að hún var komin með sérstakt kall sem hún notaði til að kalla á okkur í mat. Þetta kall heyrðist langar leiðir því við vorum úti um allar trissur í sveitinni, svo frjáls vorum við þar. Amma hafði alveg ótrúlega þol- inmæði gagnvart okkur barna- börnunum. Við vorum oft fjögur upp í sex stykki kannski í vikutíma eða lengur í sveitinni. Alltaf var hún jafnglöð að fá okkur. Amma var mikil hannyrðakona, hún var alltaf með eitthvað í hönd- unum. Ófáum stundum eyddum við saman fyrir framan sjónvarpið að horfa á Leiðarljós og hekluð- um. En sá tími var henni heilagur því þetta var uppáhaldsþátturinn hennar. Hún heklaði mikið og það sem ég held mest upp á er skírn- arkjóllinn sem hún heklaði fyrir mig, en börnin mín tvö eru skírð í honum. Þegar ég lít til baka og hugsa um allan þann tíma sem ég eyddi með ömmu þá voru þær stundir sem við eyddum í eldhúsinu í Grímsgerði og Skessugili þær dýrmætustu. Þar sátum við löngum stundum, borðuðum, spjölluðum og hlógum. Takk, elsku amma mín, fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, allt sem þú kenndir mér og hreinlega bara fyrir að vera amma mín. Guð blessi þig og varðveiti. Þín sonardóttir, Eydís Ösp Eyþórsdóttir. Ásgerður Lilja, hún amma mín, hafði stærsta og fordómalausasta hjarta sem til hefur verið á þessari jörð og besta og hlýjasta faðmlag sem ein manneskja getur gefið. Hún var ávallt til staðar á hvaða tíma sólarhrings sem er, hvort sem var í eigin persónu í sveitinni, í gegnum síma eða í næsta her- bergi við mann. Hún dæmdi aldrei neinn, gaf öllum tækifæri, kom fram við alla eins og hún vildi láta koma fram við sig og gaf mikið af sér. Mér er minnisstætt þegar ég kom óvænt í sveitina með Mána frænda og amma vissi upp á hár hvað væri í vændum. Ég var þreyttur og sagðist ætla strax í rúmið. Hún tók þéttingsfast utan um mig þegar við heilsuðumst, ég fann ómælda hlýju frá henni og hún hvíslaði í eyrað á mér að allt yrði í lagi. Daginn eftir vaknaði ég við hrærivélina á fullum krafti frammi í eldhúsi, eins og oft áður. Þegar ég kom fram var eldhús- borðið í Grímsgerði hlaðið alls konar kræsingum. Amma mín stóð við eldavélina, ég kyssti hana góðan daginn og settist í hornið mitt. Amma fann og vissi að eitt- hvað hvíldi þungt á mér sem ég gat ekki komið orðum að og hún hjálpaði mér að létta af mér. Þannig var hún, áreynslulaus um- hyggja og skilningur, ráðagóð og hlý. Amma mín var ávallt iðin við hvers kyns hluti. Eru þeir ófáir skírnarkjólarnir sem hún heklaði á bæði börn innan fjölskyldunnar og utan og tók jafnan ekkert fyrir. Hrærivélin, eldavélin og bakar- ofninn voru í sífelldri notkun hjá henni því ef einhver í fjölskyldunni eða vinir skyldu halda veislu var amma boðin og búin að rétta hjálparhönd. Bakaði hún til dæm- is sína frægu kornflexköku í þús- undatali fyrir hina og þessa. Amma var fagurkeri og ávallt vildi hún hafa snyrtilegt í kringum sig og hvern hlut á sínum stað. Garðurinn í Grímsgerði var alltaf vel til snyrtur og fallegur eins og allt heimilið, hennar og afa. Elsku hjartans amma mín, frá mínum dýpstu hjartarótum þakka ég þér innilega fyrir allar góðu stundirnar og minningarnar sem við eigum. Hvíl þú í friði, mín besta og fallegasta kona í mínu lífi. Þinn Jóhannes Gíslason yngri. Elsku amma Lilja. Það sem er efst í hug mér þessa dagana eru minningarnar úr sveitinni þar sem við bræðurnir ásamt fleiri frændsystkinum kom- um til ykkar afa og vorum hjá ykk- ur um tíma á sumrin. Það var oft þröng á þingi og allir bekkir og dýnur notaðar. Þau eru mér minn- isstæð laugardagskvöldin þegar stofan var þéttsetin og allir að horfa á sjónvarpið og borða korn- flex-nammið sem þú bjóst alltaf til handa okkur og að drekka sóda- stream. Það skorti aldrei veiting- arnar hjá þér, amma mín, og ef gestir komu þá varst þú ekki í rónni fyrr en eldhúsborðið var orðið hlaðið af kaffibrauði og þú vissir alltaf hvað okkur fannst gott og passaðir að það væri til þegar við komum. Í sveitinni var margt brallað og við lékum okkur enda- laust úti en þegar matartímarnir sem voru ófáir í sveitinni komu þá fórst þú út á tröppur og kallaðir á okkur með einhverskonar jóðli eða indjánakalli og þá vissum við að það var kominn matur. Minn- ingarnar eru óteljandi og er ég mjög þakklátur fyrir þennan tíma. Það var alltaf jafn gott að koma til ykkar afa, ekki síður eftir að þið fluttuð í bæinn og ég veit að Sig- urður Ágúst á eftir að sakna rúnt- anna með þér á göngugrindinni fram í kompu að ná í bílana og einnig eigum við eftir að sakna þess að heyra í þér fyrir jólin og aðstoða þig við að hengja upp jóla- gardínurnar í eldhúsinu. Alltaf leið okkur Obbu jafn vel eftir að geta aðstoðað þig við það. Við munum gera okkar besta við að halda minningum okkar lifandi og miðla þeim til nöfnu þinnar Svein- bjargar Lilju sem við skírðum eft- ir einu nafna þinna. Megir þú hvíla í friði, elsku amma og langamma. Þín Alfreð, Þorbjörg, Sigurður Ágúst og Sveinbjörg Lilja. Elsku amma, ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég sakna þín svo sárt og ég skil ekki að þú sért farin frá okkur. Mér finnst ómögulegt að ímynda mér lífið án þín, þú hef- ur alltaf verið svo stór partur af lífi mínu. Ég gat alltaf leitað til þín og á erfiðum stundum virtist sem faðmlag frá þér gæti lagað allt í heiminum. Ég man eftir spenn- ingnum þegar ég var lítil að koma heim úr skólanum og sá að bíllinn ykkar afa var fyrir utan, hvernig ég beið eftir því að það kæmi sunnudagur því þá fórum við í heimsókn í sveitina. Það var alltaf svo mikil gleði að hitta þig, setjast í fangið hjá þér og fá knús. Þú varst alltaf svo hlý og góð. Ég mun aldrei gleyma seinasta faðmlaginu okkar, þegar þú hvíslaðir að mér hvað það væri gott að eiga svona góða stelpu. Ég trúi því ekki að ég eigi aldrei eftir að fá að faðma þig aftur. Þú hefur alltaf verið svo stolt af mér, elsku amma. Alltaf þegar ég fékk lokaeinkunnirnar mínar þá lá mér mikið á að hringja í þig og láta þig vita hvernig mér gekk. Ég er staðráðin í því að halda áfram að gera þig stolta, en mikið vildi ég óska þess að þú gætir séð mig út- skrifast næsta vor. Ó, elsku amma, það sem ég gæfi til að fá að hafa þig lengur hjá okkur. Ég er þakklát að hafa feng- ið að vera hjá þér seinustu daga þína meðal okkar. Ég mun aldrei gleyma því þegar þú heilsaðir mér í seinasta sinn, þegar ég hélt í höndina þína, þegar ég strauk þér um ennið og kyssti þig bless. Ég vona að þú sért komin á betri stað og að þér líði vel, því jafn góð manneskja og jafn góð amma og þú á ekkert nema það besta skilið. Ég elska þig, amma mín, og ég mun aldrei gleyma þér. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín ömmustelpa, Sandra Ósk Sigurðardóttir. Lilja í Grímsgerði var einstök kona með yndislega nærveru. Við systur urðum þeirrar gæfu að- njótandi að fá að dvelja hjá þeim Jóhannesi í æsku til lengri eða skemmri tíma, oftast ein í einu en stundum fleiri saman. Þetta voru miklar gæðastundir og kölluðum við þau hjónin alltaf Diddu mömmu og Jóa pabba. Í Gríms- gerði var ýmislegt hægt að bralla. Þar voru fallegar dúkkur sem við fengum að leika okkur með og uppi á lofti var heill heimur æv- intýra þar sem hægt var að gleyma sér tímunum saman. Á meðan Jóhannes var í vinnu feng- um við athygli Lilju óskipta, fylgd- umst með henni baka og sýsla og spjölluðum. Lilja hafði unun af því að hafa fallegt í kringum sig. Það sást greinilega á heimili hennar, falleg- ir hlutir til að dást að og handa- vinna sem fékk að njóta sín. Hún var snillingur í höndunum, saum- aði, prjónaði og heklaði. Í æsku okkar gaf hún okkur dúkkuföt sem hún hafði gert. Þegar við eignuðumst börn heklaði hún föt á þau, til að mynda tvo gullfallega skírnarkjóla sem eru okkur sér- staklega kærir. Gestrisni var Lilju í blóð borin og bakaði hún heimsins bestu kök- ur. Að setjast að kaffiborðinu var einstök upplifun og mikið tilhlökk- unarefni. Allar þessar dýrlegu kökur, borðið bókstaflega svignaði undan kræsingunum. Það var ekki bara umhverfi sínu sem hún sinnti af natni heldur fólkinu í kringum sig og við vorum svo heppnar að vera þar á meðal. Hún mundi alltaf eftir afmælum og viðburðum í okkar lífi og fylgd- ist af áhuga með hvað við höfðum fyrir stafni. Hún hafði hlýjan faðm og var ófeimin við að sýna tilfinn- ingar og segja okkur hvað henni þætti vænt um okkur. Lilja var gjafmild og góðhjörtuð mann- eskja og þegar við minnumst hennar nú er það hlýjan sem staf- aði af henni sem stendur upp úr í minningunni. Elsku Didda mamma, hafðu þökk fyrir allt og allt, þín verður sárt saknað. Við vottum Jóhannesi og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Ystuvíkursystur, Sigríður Margrét, Jóna Berg- þóra, Laufey Björg, Sólveig Kristín og Jónasína Fanney. Ásgerður Lilja Sigurlína Fanney Holm ✝ Fósturmóðir mín og systir okkar, GUÐBJÖRG SVEINSDÓTTIR frá Tjörn, Meistaravöllum 15, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 16. september kl. 13.00. Hörður Steinsson, Þorgeir Sveinsson, Sigurlaug Sveinsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Steinn Sveinsson, Sveinn Sveinsson. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR JÓHANNS STEFÁNSSONAR fv. bónda Stærra-Árskógi, Víðilundi 24, Akureyri. Helga Sólveig Jensdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Erlingur Tryggvason, Jens Sigþór Sigurðsson, Margrét Sigurðardóttir, Hannes Ragnar Reynisson, Stefán Júlíus Sigurðsson, Guðrún Jóna Karlsdóttir, Signý Sigurðardóttir, Sigþór Harðarson, Jónas Ingi Sigurðsson, Berglind Sigurpálsdóttir, Brynja Sigurðardóttir, Jón Marteinn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA LAUFEY STEFÁNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn 10. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 20. september kl. 15.00. Skafti Þ. Halldórsson, Sigríður Hagalínsdóttir, Brynjólfur Gíslason, Gerður Þórisdóttir, Hafdís Inga Gísladóttir, Gunnar Einarsson, Vigdís Braga Gísladóttir, Hlynur Ívar Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVAVAR SIGURÐSSON bóndi, Síðu við Blönduós, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 10. september. Útför hans verður auglýst síðar. Magdalena Erla Jakobsdóttir, Jakob Óskar Svavarsson, Hrefna Kristófersdóttir, Sigurður Svavarsson, Ásta Kristín Andrésdóttir, Einar Svavarsson, Sigríður Hermannsdóttir, Baldur Svavarsson, Elínborg Svavarsdóttir, Ingimar Rúnar Ástvaldsson, Björn Magni Svavarsson, Þórunn Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bróðir minn, ÞORGRÍMUR PÁLSSON frá Bakka Skagaströnd, Hrafnistu Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 7. september. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 17. september kl. 11.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna eru vinsamlega beðnir að láta dvalarheimilið Hrafnistu njóta þess. Páll J. Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.