Morgunblaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013 Í dag, föstudaginn þrettánda september, á hin ástsæla söngkonaAndrea Gylfadóttir afmæli. Hún er ekki með nein plön fyrirdaginn önnur en að mæta upp í Útvarpshús og syngja á Rás 2 í söfnuninni á Allra vörum. Andreu þykir ágætt að syngja til styrktar góðu málefni á afmælisdaginn. Föstudagurinn 13. hefur lengi verið talinn óhappadagur. Andrea segist oft hafa átt afmæli föstudaginn 13. og það hafi aldrei skemmt neitt fyrir henni enda telur hún sig ekki hjátrúarfulla. Fyrir ári síðan átti Andrea stórafmæli og gerði margt í tilefni þess. „Þá var ég með stórtónleika og plötu og fjölskyldan mín kom öll í heimsókn að utan og allt mögulegt. Þetta var ágætis pakki fyrir næstu árin og ég er ennþá í hamingjukasti síðan þá. Tíminn líður líka svo hratt, það er allt í einu komið nýtt afmæli.“ Annarskonar afmælishald tekur nú tíma hennar því í ár eru 25 ár síðan Todmobile var stofnuð. Í tilefni þess dvelja Andrea og félagar nú löngum stundum í hljóðveri við að taka upp nýja plötu. „Við höld- um upp á þessi tímamót með nýrri plötu með nýju efni og tónleikum í Eldborg í nóvember. Borgardætur eiga líka 20 ára afmæli í ár. Við verðum með tónleika á Akureyri og Siglufirði í október og svo verð- um við með okkar árlegu jólatónleika í desember,“ segir afmæl- isbarnið að lokum. ingveldur@mbl.is Andrea Gylfadóttir söngkona er 51 árs Morgunblaðið/Sigurgeir S. Hátíð Andrea Gylfadóttir er 51 árs í dag. Hún hefur fá plön fyrir daginn en mun þó syngja í beinni útsendingu á Rás 2. Oft átt afmæli föstudaginn 13. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Marinella Ragnheiður Haralds- dóttir, Háahvammi 4, Hafn- arfirði, verður áttræð á morgun, 14. september. Í tilefni af af- mælinu verður opið hús á af- mælisdaginn milli kl. 14 og 17 í Hannesarholti, Grundarstíg 10, gengið inn frá Skálholtsstíg. Ættingjar, vinir og aðrir velunn- arar velkomnir, gjafir afþakk- aðar. Árnað heilla 80 ára Drangsnes Ásdís Helga fæddist 20. janúar kl. 14.13. Hún vó 3.910 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Heiðrún Helga Hjörleifsdóttir og Ing- ólfur Árni Haraldsson. Nýir borgarar Hafnarfjörður Aría Dís fæddist 1. jan- úar kl. 19.50. Hún vó 2.860 g og var 47,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Sandra Dís Jónsdóttir og Hjörtur Ólafsson. H rafn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Loka- stíginn. Auk þess var hann í sveit hjá móðursystur sinni á Bjalla í Land- sveit til fjórtán ára aldurs. Hann var í Austurbæjarskólanum og Gagnfræðaskóla Austurbæjar, lauk stúdentsprófi frá MR 1958, stundaði nám í arkitektúr við Tekniska Högskolan í Helsingfors í Finnlandi 1959-70 og stundaði framhaldsnám í skipulagsfræðum við Nordplan 1979. Á námsárunum starfaði Hrafn á skipulagsdeild borgarverkfræðings frá 1962 og á Teiknistofu Kurt Simberg 1964-70. Hann starfaði á Skipulagsstofnun Helsingfors- borgar 1971-73, á Vinnustofu arki- tekta (Geirharður og Hróbjartur) 1973-74, á Teiknistofu Hannesar Kr. Davíðssonar 1974-75, hjá Skipulagi ríkisins 1976-82, á Arki- tektastofu Suunnittelurengas í Helsingfors 1982, starfrækti eigin arkitektastofu 1982-83, var sviðs- stjóri byggingar- og húsnæðis- málasamstarfs hjá Norrænu ráð- herranefndinni í Ósló og Kaupmannahöfn 1984-91 og var deildarstjóri bygginga- og skipu- lagsmála í umhverfisráðuneytinu 1991-2006. Hrafn kenndi við MS 1976-81 og hefur fengist við þýðingar fyrir sjónvarp. Hann var fulltrúi Ís- lands í stjórn Norræna sumarhá- skólans og hefur skrifað greinar í blöð og tímarit, m.a. í Frímerkja- blaðið sem Hrafn talar um af mik- ill virðingu, enda sjálfur ritstjóri þess. Hrafn Hallgrímsson arkitekt – 75 ára Fjórir ættliðir Hrafn, ásamt Margréti, móðu sinni, dóttusyni, Hrafni Daða Péturssyni, og Margréti, dóttur sinni. Sérfræðingur í skipu- lagi og frímerkjum Hjónamynd Hrafn ásamt konu sinni, Sigurlaugu Jóhannesdóttur. Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst LAGNAEFNI FYRIR TÖLVUR OG NET Digitus net lagnaefnið hefur verið á markaðnum um allan heim síðan 1994 við góðan orðstír. Frá þeim fáum við allt sem þarf til að gera gott netkerfi fyrir heimili eða fyrirtæki. Mótari sem sendir mynd frá myndlykli um húsið með loftnetslögnum sem eru fyrir í flestum húsum. TRI AX TFM 001 MÓ TAR I NÝJUNG HJÁ OKKUR 25ÁRA 1988-2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.