Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 15
lenskum þjóðlögum, söngvum Co-
median Harmonists, og heyrði
hana Wöndu Landowsku leika á
sitt harpsíkord, eins og það hét þá,
á sunnudögum, hlustaði á MA-
kvartettinn og danslög kvöldsins,
að ógleymdum útvarpsmessunum,
sem alltaf var hlýtt á á bænum. Ég
hef alltaf verið mikið fyrir tónlist,
foreldrar mínir voru söngfólk og
afi minn var kirkjuorganisti í við-
lögum við Þingeyrarkirkju. Hann
gaf sér gjarnan tíma í hádeginu til
að setjast við orgelið og spila. Þá
fékk ég stundum að sitja í fangi
hans.“
Maður ímyndar sér alltaf að hér
áður fyrr hafi verið mikil vinnu-
harka í sveitum. Kynntist þú því?
„Ég kynntist ekki vinnuhörku.
Kannski var það vegna þess að
fólk var nægjusamt og hjálpaðist
að. Í þessum byggðum var sam-
vinna gríðarlega mikil. Heima á
Kirkjubóli var til dæmis og er fé-
lagsbú. Ég var ekki píndur til
vinnu og sem unglingur komst ég
upp með að vera dálítið latur. Hug-
takinu vinnuhörku kynntist ég af
lestri bóka og eiginlegri vinnu-
hörku kynntist ég síðar þegar ég
kom suður í Borgarfjörð þar sem
menn voru farnir að stækka búin í
meira mæli en var fyrir vestan og
kannski að vissu leyti orðnir meiri
þrælar vinnu og tækni.“
Maður sem ólst upp í torfbæ
hlýtur að hafa lifað miklar breyt-
ingar á allra síðustu áratugum.
„Ég hélt lengi vel að kynslóð
foreldra minna væri sú kynslóð Ís-
lendinga sem hefði upplifað mestu
tæknibreytingarnar. En ég er svei
mér þá farinn að halda að það sé
komin ein kynslóð enn sem hefur
upplifað jafnvel enn meiri breyt-
ingar og að ég tilheyri henni. Ég
ólst til dæmis upp við það að í lok
júní var farið fjóra daga í mógrafir,
þá var tekinn mór og þurrkaður og
honum brennt til hitunar og elda-
mennsku árið um kring. Nú sný ég
takka og þá hitnar kaffið hjá mér.
Þegar ég var að alast upp varð að
hlaupa á næsta bæ þegar þurfti að
koma að skilaboðum, nú tek ég
upp tæki úr vasanum og get talað
við hvern sem er þegar mig lystir.“
Þú hefur samið nokkuð af tón-
list, þar á meðal gerðir þú stefið
við sjónvarpsþættina Út og suður.
„Það vantaði einu sinni tóna til
að fylgja eftir leikriti sem ung-
mennafélagið í minni sveit setti
upp og þá bjó ég til hljómagang
sem Gísli Einarsson fékk síðar að
nota í þáttum sínum Út og suður.
Lagstúfurinn varð víst það sem
kallað er eyrnaormur.“
Segðu mér frá tónsmíðum þín-
um.
„Ég hef alltaf haft mikið dálæti
á kvæðum og ljóðum og sem
stundum lög við þau. Það væri nú
hofmóður af mér að tala um tón-
smíðar í þeim efnum en þetta er
mín leið til að reyna að muna fal-
leg ljóð betur. Þar hefur lang-
frændi minn Guðmundur Ingi
Kristjánsson frá Kirkjubóli í
Bjarnardal orðið helsta fórn-
arlambið. Ég hef lagt mig eftir
kvæðum eftir hann og samið lög
við þau en hef síðan laumast í ljóð
fleiri höfunda, meðal annars Guð-
mundar Böðvarssonar.“
Langaði þig aldrei til að verða
bóndi?
„Mig langaði alltaf að eiga heima
í sveit. Ég sá þó fljótlega að ég
myndi ekkert ráða við það að
verða bóndi, varð því skrifborðs-
bóndi í staðinn. Ég var til dæmis
mesti rati við fé, ákaflega lítið fjár-
glöggur og að ég held ögn latur
líka. En ég hafði alltaf gaman af að
fást við ræktunarstörf og heyskap
og er eiginlega heyskaparmaður af
ástríðu. Toppurinn á tilverunni
finnst mér vera að stússa í grænu
og ilmandi heyi.“
Ertu tækjakarl?
„Ein af ástæðunum fyrir því að
ég myndi ekki treysta mér til að
verða bóndi er að ég er enginn
skrúfufræðingur og eiginlega klaufi
við vélar. Það er tvennt sem mér
leiðist umfram annað, það er að
gera við eitthvað sem er bilað, og
hins vegar að halda bókhald. Ég er
þess vegna mjög feginn því að til
eru sérfræðingar og ástríðufólk á
báðum þessum sviðum.“
Morgunblaðið/Rósa Braga
* Ég gladdist viðað sjá fólkkomast út úr erfiði
sem varð til þess að
afkoma þess batn-
aði. En ég fylltist
líka trega því ég sá
það sem ég ólst upp
við hverfa smám
saman.“
„Toppurinn á tilverunni
finnst mér vera að
stússa í grænu og ilm-
andi heyi,“ segir Bjarni
Guðmundsson.
6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
HÁR
Dreifingaraðili
Hárteygjur
• Engir klofnir endar
• Sterkt grip
• Allar hárgerðir
• Ekkert teygjufar
• Enginn höfuðverkur
• Fyrir allar hárgerðir
Invisibobble Ísland