Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 16
*Helena Aðalsteinsdóttir dansaði eftir kvöldmáltíðir á ferðalagi sínu á Sýrlandsslóðum »18Ferðalög og flakk
Sumarið er rétt að enda og haustið með sína stuttu viðkomu að skella á. Jólabarnið í
mér gleðst óendanlega yfir ótímabærum jólahlutum í búðum og þeim tyllidögum
sem framundan eru hér fram til jóla.
Margt er búið að gleðja mig langa sumardaga. Kvikmyndakvöld í Hollywood
Cemetery, tónleikar í Hollywood Bowl, fallegir morgnar yfir Downtown frá skrif-
stofunni minni í Beverly Hills, ilmurinn í vinnustofunni minni í „hipsterville“,
Silverlake, tónleikar með kór sem ég er í í Walt Disney Concert Hall og hafnabolta-
leikur á Dodgers Stadium, skammt frá þar sem ég bý. Ekki má heldur gleyma 4. júlí
sem var minn fyrsti sem hálfur Ameríkani og „hálfur“ Íslendingur. Þar var fagnað
með íslenskri marengstertu skreyttri ameríska fánanum. Kannski ekki annað hægt
eftir að hafa fengið skrifstofuna til að fagna 17. júní undanfarin ár með mér.
Bestu kveðjur heim – Unnur
Sendandi (t.h.) með vinkonu í Hollywood
Cemetery á kvikmyndakvöldi.
Íslensk terta með amerískum fána.
Íslensk marengsterta á 4. júlí
Morgunsólin, séð frá skrifstofunni.
PÓSTKORT F
RÁ LOS ANG
ELES
Ákvörðunin var tekin fyrir um ári ográðist í að panta bæði hótel, pláss ítjaldi og annað,“ segir Finnur Frið-rik Einarsson, sviðsstjóri hjá Main-
Manager, um nýafstaðna árshátíðarferð hug-
búnaðarfyrirtækisins til München á dögunum.
Að sögn Finns hafði lengi verið í um-
ræðunni að starfsmannafélag fyrirtækisins færi
á Októberfest. Nokkrir starfsmenn hafa
tengsl við Þýskaland, auk þess sem einn er
þýskur að uppruna. Þekktu sumir því vel til
en í heild taldi hópurinn á fjórða tug, þ.e.
starfsmenn bæði héðan og frá Danmörku,
ásamt mökum.
Bjórhátíðin þekkta hófst hinn 21. sept-
ember í ár en þetta er í 180. skipti, frá árinu
1810, sem hún fer fram. Hefur hún nokkrum
sinnum fallið niður í gegnum tíðina, sökum
farsótta og stríða að sögn Einars Óla Guð-
mundssonar, samstarfsmanns Finns.
Hátíðahöldin standa í tvær vikur og lýkur
ávallt fyrsta sunnudag í október. Undantekn-
ing er þó gerð ef þjóðhátíðardag Þýskalands,
3. október, ber upp á þriðjudegi en þá er
framlengt um tvo daga.
Í tjaldi með þúsundum
Tókst að panta pláss fyrir hópinn í 6.200
manna tjaldi á vegum Hacker-Pschorr brugg-
hússins, einu af sex sem hafa leyfi til að fram-
leiða bjór á hátíðina. Átti hópurinn langborð
á föstudegi frá kl. 11 til kl. 16.30. Þar var
hver bekkur þéttsetinn og mikið líf og fjör að
sögn Finns. Meirihluti gesta var klæddur að
bæverskum sið eins og hefð er fyrir, bjórinn
einungis borinn fram í hinum þekktu eins lítra
könnum Maß, og þýskar krásir framreiddar
Þrátt fyrir gífurlegan mannfjölda, en talið er
að ríflega sex milljónir gesta sæki hátíðina ár
hvert, segir Finnur stemninguna á svæðinu
hafa verið alveg einstaka. „Þetta er alveg
ótrúlega skemmtileg hátíð, um margt öðruvísi
en margar aðrar. Það ríkti mjög jákvæð og
góð stemning strax frá byrjun og var bjart yf-
ir þessu öllu, sérstaklega þarna í tjaldinu.“
Hið eiginlega hátíðarsvæði er hið 42 hekt-
ara Theresienwiese eða Wies’n eins og
heimamenn kalla það. Hátíðarstemningin er
þó ekki takmörkuð við tjöldin einungis að
sögn Finns. „Þó svo að þú sért ekki með
pláss í tjaldi getur þú alveg labbað inn á
svæðið og upplifað stemninguna.“ Bætir hann
við að mikið hafi m.a. verið um að fólk væri
á gangi með börn um svæðið, sem þyki hið
eðlilegasta mál.
Hjólatúr og tvö brugghús
Októberfest var aðeins hluti af ferð hópsins
til München þessa helgi. Fólk leigði sér m.a.
einnig hjól í borginni og skoðaði hana þannig
sem Finnur mælir heilshugar með. Af bjór-
menningu var hún reyndar ekki alveg ein-
skorðuð við Októberfest hjá hópnum en
hann heimsótti einnig tvö fræg brugghús, þar
sem boðið var upp á bæverskan mat og bjór.
Þar var um að ræða Hofbräuhaus, eina elstu
bjórhöll München, stofnaða árið 1589 af þá-
verandi hertoga Bæjaralands, og veitingahúsið
Augustiner, í eigu Augustiner bjórframleið-
andans, en sá bjór þykir einna bestur á svæð-
inu. Rétt eins og með bjórhátíðina sjálfa mæl-
ir Finnur með að allar slíkar heimsóknir séu
bókaðar vel í tíma enda München afar vinsæl
á þessum tíma árs.
AFP
BJÓRHÁTÍÐIN ÞEKKTA Í MÜNCHEN
Árshátíð
á Októberfest
EINS OG HEFÐ ER FYRIR ER BOTNINN SLEGINN Í BJÓRHÁTÍÐINA
OKTÓBERFEST Í MÜNCHEN UM HELGINA. HÓPUR ÍSLENDINGA SÓTTI
HÁTÍÐINA HEIM Á DÖGUNUM, EFTIR ÁRSUNDIRBÚNING.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is