Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 59
6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Sá sem tekur lengd á tré og spjallar við þig. (10) 4. Ílát fullt af stráum er aðeins fyrir ungt fólk af öðru kyninu. (7) 7. Heiðursmerki blæs upp hjá blöðrurum. (10) 9. Með ásælni og ríg verða þeir til sem eru aldrei fjarlægir. (9) 10. Frægur karlmaður er í byggingu. (10) 12. Meinfýsinn vill næstum orðróminn. (11) 15. Hvetja mælitæki til þess að finna ílát undir vopn. (9) 16. Glatt losum einhvern veginn það sem er ekkert meira um að segja. (4,2,4) 19. Keðja ills flækist um aumingja. (9) 21. Einu sinni enn þú fallegi á stól. (9) 22. Ósk að ekkjur geri villur. (8) 23. Borðaðir bundnar og skotnar. (10) 24. Ekki hávaxin drepa stillu að sögn. (7) 25. Brjálæðiskastið hjá eftirlitsmanni felst í því að henda bolta í loftið. (12) 28. Ósama næstum því bæri spil í því sem passar ekki. (13) 29. Læknir okkar í Urriðadal, alveg fremst, er á flottum bílum. (8) 30. Sá sem skrifar ljóta hluti um rugluðu atriðin hjá ÍR. (9) 31. Vonaði að D-lið gæti gert viðvarandi. (10) LÓÐRÉTT 1. Við skoðunartæki verð ég hættuleg. (11) 2. Blágras í dæld. (3) 3. Óþekktur fjöldi orða við handrið á svæðinu. (7) 4. Hérað líkt og Skagafjörður hefur kór. (9) 5. Hamingjusöm í kærleika hefur girnst. (6) 6. Sagt er að hluti fótarins sé hjá þátttakandanum. (7) 8. Aðeins fyrsta flokks krá. (4) 9. Hár úr járni er hreinsitæki. (7) 10. Sleppum kröfu hjá ræðinni. (7) 11. Hemill á líkamshluta á þeim sem eru staðgenglar þeirra sem ráða. (10) 13. Festir Íslendingasaga sig við stærðfræðihugtak. (10) 14. Ílát undir gubb við hliðina á hljóðabelg. (10) 17. Merki í lofti gert af flugtæki. (7) 18. Mamma tarfi skar og gerði sjávarmeti úr þeim. (11) 20. Flækjast ekki elstar fyrir sætustum. (10) 22. Stjarna sára nær að eyða. (7) 23. Dyggð yfirmanns klausturs reynist byggð á möguleika á gróða. (8) 26. Alger drápari er evrópskur. (6) 27. Príla eftir fisklifrarlýsi. (6) 28. Slæm ráðlegging leiðir til skertrar meðvitundar. (4) Í byrjun þessa árs urðu Íslendingar í efsta sæti á Norðurlandamóti ung- menna sem fram fór á Bifröst. Þar var tekin saman vinningatala í öll- um fimm aldursflokkum einstakl- ingskeppninnar. Á Norðurlanda- móti grunnskóla fyrr í þessum mánuði bar Álfhólsskóli úr Kópa- vogi sigur úr býtum í yngri aldurs- flokkunum og í eldri flokknum vann sveit Rimaskóla öruggan sigur. Samanburður við Norðurlönd er okkur því hagstæður um þessar mundir. Evrópumót ungmenna 8-18 ára sem nú fer fram í Budva í Svartfjallandi í sex aldursflokkum pilta og stúlkna er verðugt verkefni fyrir íslenska hópinn sem í eru átta keppendur. Það er auðvitað við ramman reip að daga því austur- blokkin eins og hún leggur sig stimplar sig sterkt inn: Rússland, Úkraína, Armenía, Aserbaídsjan, svo nokkur af fyrrverandi lýðveld- um Sovétríkjanna séu nefnd „sturta niður“ keppendum í hvern einasta flokk. Og fyrir þessar þjóðir er mun styttra að ferðast; vettvangur þessara móta er oftast sá sami, Tyrkland, Búlgaría, Tékkland og nú Svartfjallaland. Af íslensku keppendunum ætti hinn tíu ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson að eiga mesta von um verðlaunasæti en hann er með 3 ½ vinning þegar lokið er fjórum um- ferðum af níu. Óskar Víkingur Dav- íðsson sem er aðeins átta ára gam- all er einnig til alls líklegur með 2 vinninga en átti um tíma vinnings- stöðu í tapskák sinni í þriðju um- ferð. Ýmsir aðrir hafa teflt vel. Da- wid Kolka sem er með 2 vinninga og Hilmir Freyr Heimisson sem er með 1 ½ vinning hafa báðir unnið sannfærandi sigra og eru til alls lík- legir. Í viðureign sinni í eftirfarandi skák mætti Hilmir Freyr til leiks með bjartsýni og sókndirfsku að vopni. Svartur missti vissulega af tækifærum til að verjast betur en í skákinni sem hér fer á eftir hefði hann vissulega getað varist betur en líkt og í skákum Mikhaels Tal í gamla daga kom það ekki ljós fyrr en í rannsóknum eftir á: Hilmir Freyr Heimisson – Kai Pannwitz Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rc3 a6 3. Rge2 Hilmir hefur dálítið verið að fást við „Grand prix-afbrigðið“ sem hefst með 3. f4 en ákvað að hvíla það að þessu sinni. 3. … e6 4. g3 b5 5. a3 Bb7 6. Bg2 d5 7. exd5 Rf6 8. O-O Rxd5 9. Rxd5 Bxd5 10. Bxd5 Dxd5 11. d4 Rc6 12. Rf4!? Fórnar peði fyrir frumkvæðið. 12. … Dxd4 13. Df3 Dd7 14. Be3 Be7 15. Had1? Hér var sennilega öruggara að leika 15. Rd3 og ná peðinu aftur þar sem 15. .. c4 strandar á 16. Re5! o.s.frv. 15. …. Dc7 16. Dg4 g6 Gott var einnig að hrókera stutt. 17. Rxe6!? Með bjartsýni að vopni! 17….Dc8 Gott var einnig 17. … fxe6 18. Dxe6 Dc8 19. De4 Kf7 . 18. Rg7+ Kf8 19. Dxc8 Hxc8 20. Bh6 Kg8 21. Hfe1 Hilmir ætlaði að mæta besta leiknum 21. … Bf8 með stór- skemmtilegri vendingu, 22. Hd6!? Hugmyndin er 22. … Bxg7 23. Hxc6! og vinnur eða 22. … Bxd6 23. Re8 Be7 24. Hxe7! Rxe7 25. Rf6 mát. En svartur á 22. … Rd4 sem vinnur! 21. …Bf6? 22. He8+! Hxe8 23. Rxe8 Be5 Eða 23. … Bxb2 24. Hd6 Re7 25. Hd8 og mátar. 24. Hd6! f6 25. Hxc6 Manni undir þráast svartur við í nokkra leiki. 25. … Kf7 26. Rd6+ Bxd6 27. Hxd6 g5 28. f4 g4 29. f5 He8 30. Hd7+ Kg8 31. Hg7+ Kh8 32. Hf7 c4 33. Hxf6 Kg8 34. Kf2 a5 35. He6 Hd8 36. Hf7 Hd2+ 37. Bxd2 - og Pannwitz gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Með bjartsýni að vopni Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseð- ilinn með nafni og heimil- isfangi ásamt úrlausninni í umslagi merktu: Kross- gáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykja- vík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 5. októ- ber rennur út föstudaginn 11. október. Vinningshafi krossgátunnar 29. sept- ember er Jónína G. Gústavsdóttir, Heiðnabergi 11, 111 Reykjavík. Hlýtur hún bókina Skessukatla eftir Þorstein frá Hamri. JPV gefur út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.