Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.10. 2013
Matur og drykkir
G
réta Ingþórsdóttir, framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna, bauð nánustu fjölskyldu heim í kvöldverð að
hætti LKL-mataræðisins sem hefur notið mikilla vinsælda síð-
ustu misserin.
Sjálf fór hún að fylgja þessu mataræði í sumar og eiginmaðurinn fylgdi
fljótlega í kjölfarið. Raunar voru kvöldverðargestir allir búnir að prófa mat-
aræðið svo það var enginn nýgræðingur viðstaddur.
„Réttirnir brögðuðust allir mjög vel en ég hef alltaf verið óhrædd við að
prófa nýjar uppskriftir og ég hafði aldrei útbúið neitt af þessu áður,“ segir
Gréta. Hún ákvað að prófa nýjar uppskriftir úr bókinni Lág kolvetna ljúf-
meti sem kom út fyrir
stuttu í íslenskri þýðingu en
bókin er sænsk að uppruna.
„Mér líst mjög vel á bók-
ina en annars hef ég yfir-
leitt verið að nýta mér int-
ernetið hvað mest í leit að
uppskriftum. Það sem ég
prófaði úr bókinni var með-
al annars æðislegur for-
réttur en ég hafði aldrei
bragðað halloumi-ostinn
sem er notaður í salatinu.
Ég setti hann reyndar ekki
á pönnu eins og á að gera
heldur í samlokugrillið og
fékk því þessar fallegu,
gylltu rendur á ostinn sem
kom afar vel út.“ Forrétt-
urinn sló enda í gegn hjá
gestunum.
Eiginmaður Grétu, Gísli
Hjartarson, greindist með
glútenóþol árið 1999 svo
Gréta segir að það hafi trú-
lega ekki verið jafn mikið
mál og það sé kannski fyrir
aðra að skipta yfir í LKL-
mataræðið.
En er Gréta mikil matar-
boðskona? „Mér finnst í
það minnsta afar gaman að
elda og miklu, miklu
skemmtilegra en að ganga frá. Ég er líka dugleg að skoða hvaða kjöt er á
tilboði hverju sinni og kaupa það og leita svo bara að uppskriftum, það er
nú snilldin við internetið. En ég þarf ekkert endilega alltaf að fara eftir
uppskriftum, maður veit orðið hverju maður á að sleppa svo að þetta er allt
orðið fremur auðvelt,“ segir Gréta að lokum.
PRÓFAÐI NÝJAR UPPSKRIFTIR
Dásamlegur
forréttur
Frá vinstri: Gréta Ingþórsdóttir, Silja
Haraldsdóttir, 10 ára, Guðlaug Sigrún
Sigurðardóttir, Eoghan O’Reilly, Arna
Sigrún Haraldsdóttir, Ingþór Haralds-
son, heimilisfaðirinn Gísli Hjartarson
og börn hans og Grétu; Halldóra Karí-
tas Gísladóttir, 12 ára, og Greipur Þor-
björn Gíslason, 11 ára.
HJÓNIN GRÉTA INGÞÓRSDÓTTIR OG GÍSLI
HJARTARSON BUÐU NÁNUSTU FJÖLSKYLDU Í
KVÖLDVERÐ Í ÞEMA LKL-MATARÆÐISINS.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Gréta leggur lokahönd á
sítrónukjúklinginn og ítalska
salatið.
* „Ég hafði aldreibragðað halloumi-ostinn sem er notaður í
salatinu. Ég reyndar setti
hann ekki á pönnu eins og
á að gera heldur á grillið
og fékk því þessar fallegu,
gylltu rendur á ostinn sem
kom afar vel út.“
4 skammtar
700 g úrbeinuð kjúklingalæri
2 msk. ólífuolía
saltflögur og svolítil piparblanda
1 sítróna
ferskt estragon
Ítalskt salat
100 g blandað salat
100 g klettasalat
½ jöklasalathaus
½ rauðlaukur
200 g svartar og grænar ólífur með steinum
Salatsósa
½ dl ólífuolía
2 msk rauðvínsedik
1 tsk salatkrydd, t.d. salt, grófmalaður pipar,
þurrkaðar kryddjurtir
1 tsk fljótandi hunang
Aðferð Hitið ofninn í 175 gráður. Setjið kjúklinginn á
bökunarplötu, hellið olíu yfir og veltið honum upp úr
henni og salti og piparblöndu. Skerið sítrónuna í báta
og setjið á plötuna. Setjið í ofninn í 20 mínútur. Bætið
fersku estragon út á.
Blandið allt salatið í skál. Skerið rauðlaukinn í þunnar
sneiðar og setjið ofan á salatið ásamt ólífunum.
Blandið öllu hráefni í salatsósuna og hellið henni yfir
salatið. Berið salatið fram með kjúklingnum.
Sítrónukjúklingur með ítölsku salati