Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 34
Morgunblaðið/Eggert
Þ
að getur verið erfitt að fylgjast með öllum þeim leikjum sem
börnin nálgast í snjallsímum og spjaldtölvum í dag enda eru
tölvuleikirnir óteljandi og auðvelt fyrir þau að nálgast þá. Gott
er að byrja snemma að venja börn sín á ákveðna umgengnis-
hætti hvað notkun varðar og hvað við hæfi þeirra og hvað ekki. Guð-
berg K. Jónsson, verkefnastjóri SAFT, samfélags fjölskyldu og tækni,
mælir með að foreldrar geri sig fagmeðvitaða um hvað börnin eru að
spila með því setjast niður með þeim og spila leikina saman. „Það er
gott að setja ákveðnar reglur um hvað er í lagi og hvað ekki, þá er auð-
veldara að eiga við þetta heldur en að leyfa notkun þeirra að þróast
stjórnlaust. Ef börnin hafa aðgang að snjallsíma eða spjaldtölvu ættu
foreldrar að skoða hvað er þar inni og prófa leikina með börnum sínum.
Það er til mjög mikið af gagnlegum og skemmtilegum leikjum fyrir spjaldtölvur og einnig
snjallsíma og langflestir tölvuleikir sem eru framleiddir í heiminum eru alls ekki í ætt við
þessa umdeildu leiki á borð við Grand Theft Auto og COD,“ segir Guðberg og nefnir tvo ís-
lenska tölvuleiki sem hafa t.d. verið notaðir á leikskólum, Paxel 123 og Grallarar en þar er
engum upplýsingum safnað um börn og eru þau ekki send áfram á aðrar síður sem leiða þau
kannski inn á klámsíður eins og oft hefur verið talað um. „Svoleiðis síður eru með leikjasöfn
og lifa á auglýsingatekjum. En það er engin ástæða til að óttast tölvuleiki, það eru svo marg-
ir uppbyggilegir og góðir. Þetta er fyrst og fremst spurning um hvaða tegund þetta er og svo
auðvitað í hve miklum mæli er verið að spila.“
Í læknisleiknum Doctor X er hægt að
hlúa að sjúklingum og notast er við
allt það sem spítalinn býður upp á.
Guðberg K.
Jónsson
Leikurinn Subway Surfers er ansi vin-
sæll á App Store, þar sem hægt er að
ná í smáforrit.
Þessum tölvuleik, Lep’s World, svipar
til gamla gullsins, Super Mario, sem
eflaust margir kannast við.
Þessi leikur gengur út á það að kasta
ýmsum hlutum í manninn á myndinni.
TÖLVULEIKIR FYRIR BÖRN
Spilum
leikina með
börnunum
HAFSJÓ AF TÖLVULEIKJUM OG SMÁFORRITUM FYRIR BÖRN MÁ FINNA Í
SPJALDTÖLVUM, SNJALLSÍMUM OG Á NETINU. LEIKIRNIR ERU EINS MIS-
JAFNIR OG ÞEIR ERU MARGIR OG ÞVÍ MIKILVÆGT AÐ FYLGJAST MEÐ
HVERS KONAR LEIKIR ÞAÐ ERU SEM BÖRNIN SPILA.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Börnin eru ansi fljót að
læra á tæknina í dag og
eiga auðvelt með að
verða sér úti um tölvu-
leiki í símanum hjá
mömmu eða pabba.
Make Up Salon heitir þessi leikur en
þar er markmiðið að skrúbba andlit
þessarar konu og sjá vel um húð
hennar með allskyns vörum.
Þessi leikur nefnist Mom’s helper og
gengur út á það að hjálpa til við að sjá
um húsverkin, sem í þessu tilviki er
hlutverk mömmu.
*Græjur og tækniNý rannsókn sýnir fram á að aukin notkun Fésbókarinnar dregur úr lífsánægju notandans »36