Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Page 20
*Heilsa og hreyfingÓmega 3 fitusýrur valda ekki blöðruhálskrabbameini segir sérfræðingur við Háskóla Íslands »22
Þær upplifa oft miklar útlitsbreytingar
sem geta haft neikvæð áhrif á sjálfsmyndina
og líðanina. Á námskeiðinu fá konurnar
gagnlegar leiðbeiningar t.d. um umhirðu
húðar og förðun. námskeiðið hefur mælst
vel til hjá þátttakendum.
svæðafélög Krabbameinsfélagsins eru
víðsvegar um landið og einnig eru stuðn-
ingshóparnir víða. Tíu stuðningshópar eru á
höfuðborgarsvæðinu sem flestir hafa fasta
fundi í hverjum mánuði ásamt viðtalstímum.
Þá hefur félagið íbúðir til umráða ásamt
öðrum félagasamtökum fyrir krabbameins-
sjúklinga sem nýtast þeim og aðstandendum
er koma af landsbyggðinni á meðan á með-
ferð stendur.
Gunnar og Qi-Gong
Nú er að hefjast sjötti veturinn sem Gunn-
ar Eyjólfsson, leikari, leiðir Qi-Gong ástund-
un í Ráðgjafarþjónustunni. Sigrún segir að
hann hafi sýnt félaginu einstaka tryggð og
velvilja og mætt tvisvar í viku til að leiða
Qi-Gong hugleiðslu sem margir hafa nýtt
sér og notið góðs af.Gunnar er einn af
stofnfélögum Krabbameinsfélags Reykjavík-
ur sem var fyrsta Krabbameinsfélagið á Ís-
landi. Hann missti móður sína úr krabba-
meini ungur að aldri. „Það er birta á
sjóndeildarhringnum, ég trúi því. Meðan
þessi sjúkdómur sækir á fólk á öllum aldri
þá á þjóðin virkilega að taka þátt í því. Það
eru allir tengdir fólki sem hefur orðið fyrir
því að veikjast af þessum sjúkdómi. En við
erum líka bjartsýn vegna þess að það er
verið að sigrast á mörgum sjúkdómunum og
það er stórkostlegt að sjá árangurinn af
því,“ segir Gunnar. „Við skulum öll leggja
Krabbameinsfélagi Íslands lið með því að
kaupa bleiku slaufuna. Ég er stoltur af því
að þetta félag skuli sinna þessum sjúkdómi
eins og þeir gera.“
Ráðgjafarþjónustan bíður upp á faglega
símaráðgjöf alla virka daga milli kl. 13-15 í
síma 800-4040, en Sigrún hvetur fólk til að
nýta sér þá þjónustu.
Í húsi félagsins í Skógarhlíð 8, er oftar
en ekki þétt dagskrá og fjölbreytt nám-
skeið, fyrirlestrar og örráðstefnur sem eru
opin öllum. Eitt af námskeiðunum er, Gott
útlit... betri líðan og er fyrir konur í
krabbameinsmeðferð.
Á
takið Bleika slaufan er tákn
Krabbameinsfélagsins í barátt-
unni gegn krabbameini í konum
en það fór í gang að nýju 1.
október síðastliðinn og stendur yfir út októ-
ber. Samhliða sölu á slaufunni fer fram
ákveðin nýjung. Uppboð á ýmsu skemmti-
legu hefur verið bætt við og verður til 11.
október.
Sigrún Lillie Magnúsdóttir leiðir Ráðgjaf-
arþjónustu Krabbameinsfélagsins en áður
starf-aði hún hjá Heimahlynningu frá árinu
1993 og í líknarráðgjafarteymi landspítala.
Markmið ráðgjafarþjónustunnar er að að-
stoða fólk við að ná janfvægi í lífinu eftir
það áfall að greinast með krabbamein.
Veikindin hafa áhrif á alla þá er standa
næstir hinum veika.
Ráðgjafarþjónustan bíður upp á marg-
þætta þjónustu sem snýr að þörfum krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda þeirra.
Sálfélagslegur stuðningur í formi samtals,
slökunar, sálgæslu og hvatningar er í boði
fyrir einstaklinga, fjölskyldur og minni
hópa.
Ráðgjöf um forvarnir, helstu einkenni
krabbameins og ýmis úrræði er tengjast
réttindamálum. Nánari upplýsingar um
þjónustuna er á vef krabbameinsfélagsins,
www.krabb.is.
„Það geta allir leitað til okkar og eru vel-
komnir,“ segir Sigrún.
Morgunblaðið/Kristinn
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS
Birtir yfir með bleiku slaufunni
KRABBAMEIN ER EKKI EINKAMÁL EINSTAKLINGSINS, SEGIR RÁÐGJAFI KRABBAMEINSFÉLAGSINS. ÖLL FJÖLSKYLDAN
KEMUR AÐ OG SAMVINNA ER AÐALMÁLIÐ. EINN AF STOFNFÉLÖGUM FÉLAGSINS SEGIR ÞAÐ MIKILVÆGT AÐ ALLIR
LEGGI STARFSEMINNI LIÐ ÞVÍ ALLIR ERU Á EINHVERN HÁTT TENGDIR FÓLKI SEM HEFUR VEIKST AF SJÚKDÓMNUM.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Gunnar Eyjólfsson er reglulega með Qi Gong-æfingu í Krabbameinsfélaginu.
Morgunblaðið/Kristinn
Gunnar Eyjólfsson
og Sigrún Lillie eru
ánægð með átakið.