Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.10.2013, Blaðsíða 49
þurfti að skríða inn í á fjórum fótum,“ segir Þórður. Eigi að síður sáu sumir fortíðina í hill- ingum. „Allt var betra í gamla daga, sólin var meira að segja bjartari. Það vekur óneitanlega upp spurningar um sjónina í þessu fólki.“ Hann glottir. Eins og 17. júní-blaðra Þórður var staðráðinn í að verða bóndi. Vann fyrst hjá foreldrum sínum á Þverlæk en snemma á níunda áratugnum hóf hann búskap í Köldukinn. Bjó þar í um tvo áratugi. „Þetta gekk ágætlega til að byrja með,“ segir hann. „En síðan fjaraði hratt undan sauðfjárbúskap á Suðurlandi. Það var eins og að horfa á loftið fara úr 17. júní- blöðru. Ég þrjóskaðist við og upp úr 2000 fór ég að vinna með búskapnum til að halda mér á floti en þegar það dugði ekki til heldur gekk ég út úr þessu.“ – Var það ekki erfitt? „Treginn var liðinn hjá þá.“ Eftir að Þórður brá búi vann hann um tíma við torf- og grjóthleðslu á Hellu. Þaðan lá leið hans til höfuðborgarsvæð- isins, þar sem hann starfaði fyrst við smíðar og síðan á lager hjá fyrirtæki í matvælaframleiðslu. „Ég upplifði það ekki sem neitt sérstakt sjokk að flytja suður enda lít ég á höf- uðstaðinn sem úthverfi frá Köldukinn,“ segir hann sposkur. Í þessu samhengi rifjar hann upp sög- una af því þegar Einar Benediktsson at- hafnamaður og skáld, sem þá bjó á herra- garði skammt frá Lundúnum, kom heim til að kaupa tvo reiðhesta. Klárarnir fóru utan með skipi og fullorðinn íslenskur sveitamaður með þeim. Vegna misskilnings kom enginn að taka á móti þeim og reið maðurinn því bara sem leið lá heim á herragarð skáldsins. Varð þar mikill pilsa- þytur og manninum bornar góðgjörðir. Að því búnu kom upp heimsborgarinn í skáld- inu sem spurði: „Hvernig leist þér nú á Lundúnaborg, maður minn?“ Maðurinn tók í nefið og sagði rólega: „Séð hefur maður nú annað eins.“ Skólaball breytist í ballettsýningu Eftir sjö ár á mölinni neyddist Þórður til að hætta lagervinnunni vegna slæmsku í baki. Þá flutti hann aftur austur í Köldu- kinn, þar sem Margrét Eggertsdóttir, fyrr- verandi eiginkona hans, stýrir nú búi. Á veturna er hann aðallega í hrossa- vinnu fyrir austan og tvö síðustu sumur hefur hann unnið hjá Íshestum. Það eru fjallaferðir, nema hvað? Farið er frá Kjóa- stöðum í Biskupstungum, yfir Auðkúluheiði að Mælifellsrétt í Skagafirði og aftur til baka. Mest tuttugu manns í hóp. Vika í það heila. Þórður segir Íslending varla sjást í þessum ferðum. Mest er um fólk frá meg- inlandi Evrópu en líka Breta, Bandaríkja- menn og Norðurlandabúar. Allt vant hestafólk. „Annað væri óðs manns æði,“ segir Þórður. „Það er ekkert grín fyrir óvana að hossast á hestum í sex daga á íslenskum fjöllum.“ Margt af þessu fólki er þó í fyrsta sinn að koma á bak íslenskum hestum. „Allir byrja rólega en Hjalti Gunnarsson á Kjóa- stöðum hefur algjöra náðargáfu þegar kemur að því að sjá reiðmanninn í hverj- um og einum. Á öðrum eða þriðja degi setur hann fljúgandi töltara undir þá bestu og þeir sitja eins og elstu karlarnir sem ég reið út með í gamla daga. Það er ótrúlegt að horfa upp á venjulegt skólaball breytast í ballettsýningu.“ Hann brosir. Lifir sér til gamans Þórður segir hina erlendu gesti umgangast hrossin af aðdáunarverðri virðingu. „Það hefur verið mjög gaman að kynnast þessu fólki. Margir safna jafnvel lengi fyrir svona ferð og eru staðráðnir í að njóta hverrar mínútu. Lifa sér til gamans, eins og Björn á Löngumýri sagði. Það eru for- réttindi að umgangast slíkt fólk og vera með því á fjalli.“ Spjallinu er lokið og Þórður býðst til að fara með mig að skoða gömlu Landrétt- irnar sem lögðust af við Heklugosið 1980. Þaðan á hann margar góðar minningar. Því miður verð ég að afþakka gott boð. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég á brúðkaupsafmæli og verði ég ekki kom- inn í bæinn fyrir kvöldmat til fundar við frúna gæti ég átt á hættu að sofa um sinn á sófanum í stofunni. Þórður sýnir þessu að vonum skilning og fer í kveðjuskyni með þessa gömlu vísu: Eftir kjag um kirkjugólf, klukkan átta fóru að hátta. Vöknuðu aftur tíu og tólf, tvö og fjögur, sex og átta. 2009. Þórður staldrar við og lítur yfir farinn veg. 2012. Fínkemba þarf afréttinn. Kvíslarnar meðtaldar. 6.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.