Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 Svipmynd M ánasteinn – Drengurinn sem aldrei var til er nýj- asta bók Sjóns og þar segir hann sögu hins samkynhneigða Mána Steins sem er sextán ára árið 1918 þegar spænska veikin herjar á bæjarbúa í Reykjavík. Útgáfurétturinn að Mánasteini hefur þegar verið seldur til Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands. Fleiri lönd munu örugglega bætast í hópinn áður en langt um líður því verk Sjóns hafa vakið veru- lega athygli erlendis. Skáldsaga hans Skugga-Baldur hlaut eins og kunnugt er Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2005 og hefur komið út í um 30 löndum. Skugga-Baldur, Rökkurbýsnir og Argóar- flísin komu út á nokkrum árum í Bretlandi og fyrr á þessu ári komu þessar þrjár bækur út samtímis í Bandaríkjunum. Það vakti sérstaka athygli þegar enski rithöf- undurinn A.S. Byatt skrifaði afar lofsam- lega grein um bækurnar þrjár í The New York Review of Books og sagði um Sjón: „Hann hefur breytt sýn minni á heiminn.“ „Ég get ekki annað en verið auð- mjúkur,“ segir Sjón spurður um þessi um- mæli. „Byatt hefur lesið og séð ýmislegt og að fá þessa einkunn frá henni er falleg og mikil gjöf. Auðvitað vonast ég alltaf til að skáldskapur minn hafi þau áhrif á fólk að það sjái hluti í nýju ljósi. Sjálfur ólst ég upp við bókmenntir eftir fólk sem færði bókmenntaformið í nýjar og óvæntar áttir. Af íslenskum höfundum las ég Thor, Guð- berg og Svövu ásamt gömlu meisturunum og atómskáldunum. Auðvitað las ég svo súrrealistana mér til óbóta á sínum tíma og þeir umbyltu fagurfræði ljóðsins með því að virkja líkingar á nýstárlegan hátt og skapa með því nýjan veruleika samanber hina frægu setningu: „Hann var fagur eins og óvænt stefnumót saumavélar og regn- hlífar á skurðarborði.“ Súrrealisminn færði heiminum nýja fegurð, en enginn veit svo- sem í hverju hún felst, öðru en því að hún er óvænt og furðuleg.“ Velgengni erlendis Nú er mjög erfitt fyrir þá höfunda sem ekki skrifa á ensku að koma bókum sínum á enskan markað. Bækur þínar hafa komið út í Englandi og þrjár bóka þinna komu nýlega út í Bandaríkjunum. Segðu mér frá þeirri útgáfu og viðtökunum. „Það var stórt skref á sínum tíma þegar forlag í London ákvað að gefa Skugga- Baldur út. Það eitt að enski útgáfurétt- urinn skyldi seljast þótti mjög merkilegt árið 2006. Síðan þá hafa verk æ fleiri ís- lenskra höfunda verið að koma út á ensku og þetta skiptir máli vegna þess að enskan er heimsmál og viðkomandi bók verður að- gengileg fólki um allan heim. Það er alltaf gleðilegt fyrir rithöfund að eignast nýja lesendur. Útgefandinn í New York tók þá óvæntu og að mörgum þykir furðulegu ákvörðun að gefa allar bækurnar þrjár út samtímis. Argóarflísin kom út innbundin og var eins konar flaggskip en hinar tvær komu út í kilju. Það hefur verið skrifað vel um þess- ar bækur í Bandaríkjunum og einnig í Kanada. Fólki þykir söguefnin vera sérstök og reynir auðvitað að setja bækurnar í samhengi við það sem það þekkir úr ís- lenskum bókmenntum, sem er yfirleitt Halldór Laxness og Íslendingasögurnar. Ég er íslenskur höfundur og hef unnið með ís- lenskan sagnaarf og hef lært bæði af Ís- lendingasögum og Halldóri Laxness en sæki jafnfram ýmislegt í framúrstefnu og módernisma. Við íslensku rithöfundarnir vinnum hér heima í umhverfi þar sem maður verður tiltölulega fljótt þekkt stærð. Það eru mik- ið til sömu gagnrýnendur sem skrifa um bækur manns og hafa bæði lyft undir mann og bent á það sem betur má fara. Það er frábært að fá viðbrögð að utan frá fólki sem les bækurnar ekki endilega í sama menningarlega samhengi og er hér, en um leið verða bækurnar líka að spjara sig. Það sem kom mér mest á óvart varðandi viðtökur erlendis eru hinar miklu og góðu viðtökur sem Rökkurbýsnir hafa fengið. Þetta er bók sem gerist á 17. öld og fjallar um kall sem var utangarðs og lenti upp á kant við yfirvöld. Ég hélt að sagan yrði útlendingum nokkuð erfið og þung undir tönn en svo virðist ekki vera. Ég man að þegar ég ákvað að skrifa hana var ég með tvö verk í takinu. Annað verkið átti að gerast í heimi spíritismans og hin hugmyndin var að skrifa bók upp úr ævi Jóns lærða. Ásgerður, eiginkona mín, benti mér á að margar bækur hefðu verið skrif- aðar um heim spíritismans en enginn um Jón lærða. Ég ákvað þá að skrifa um Jón lærða, en hugsaði með mér að sú bók yrði sennilega ekki rétta bókin til að fylgja eft- ir framanum erlendis því útlendingar myndu örugglega ekki skilja hana. En stundum gleymir maður að líta sér nær og skoða hvaða bókum maður sjálfur hefur gaman af. Við Íslendingar höfum gaman af að lesa bækur sem gerast í framandi sam- félögum og á tímum sem eru okkur ókunnugir. Rökkurbýsnir virðist tala til út- lendinga á þennan sama hátt.“ Lít á bækurnar sem gjörning Segðu mér aðeins frá nýju bókinni þinni, Mánasteini. „Bókin fjallar um sextán ára strák sem býr í Reykjavík árið 1918 og er utanveltu í samfélaginu af mörgum ástæðum, ekki bara vegna þess að hann er samkyn- hneigður. Samkynhneigðin breytir í raun- inni ekki svo miklu fyrir hann af því að hann er hvort sem er til hliðar í samfélag- „Mér hefur stundum fundist að því stærra sem viðfangsefnið er þeim mun meira spennandi er að þjappa því saman.“ Morgunblaðið/Ómar Reyni að feta nýjar slóðir MÁNASTEINN ER NÝ SKÁLDSAGA EFTIR SJÓN, EN ÚTGÁFURÉTTUR AÐ HENNI HEFUR ÞEGAR VERIÐ SELDUR TIL NOKKURRA LANDA. Í VIÐTALI RÆÐIR SJÓN UM NÝJU BÓKINA, VELGENGNINA OG MIKILVÆGI ÞESS AÐ HLÚA VEL AÐ MENNINGUNNI. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.