Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 23
27.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Körfuboltaþjálfarinn Kjartan Atli Kjartansson fjallaði í vikunni umhóp fullorðinna einstaklinga sem öskruðu á 11 ára gamalt barn tilað trufla það á íþróttakappleik. Því miður er slík hegðun ekkert einsdæmi og undirritaður heyrir reglulega sögur í svipuðum dúr. Í upp- hafi ársins kom t.d. upp mál þar sem foreldri gerði lítið úr 10 ára stúlku fyrir að nota sérstök íþróttagleraugu í hand- boltaleik. Þrátt fyrir að flestir hafa vit á því að ganga ekki svona langt þá er gott að rifja upp hvaða hlutverki foreldrar eiga að gegna við íþróttaiðkun barna. Barnaíþróttir eru skilgreindar fyrir börn 12 ára og yngri. Það þarf varla að taka fram að það er ekki við hæfi að foreldrar öskri niðrandi athugasemdir til að brjóta niður börn sem eru að taka sín fyrstu skref í heimi íþróttanna. Hlutverk foreldra er fyrst og fremst að veita barninu nærveru og hvatningu. Nærvera for- eldra er lykilatriði fyrir íþróttaiðkun barna og margir unglingar sem flosna upp úr íþróttastarfi nefna lítinn stuðning foreldra sem ástæðu fyrir brottfalli. Vellíðan barna á íþróttaæfingum er lykill að árangri, jafnt í íþróttum sem og félagslegum. Ganga þarf úr skugga um að barninu líði vel, að gleði ráði för og að iðkunin sé byggð á áhuga barnsins. Foreldar styðja barnið sitt best með því að vera jákvæðir og áhugasamir gagnvart íþróttaiðkun þess og börnin verða að finna fyrir því að þau standi ekki ein. Spurningar eins og „var gaman?“ er lykilspurning sem allir foreldrar ættu að temja sér. Spurningar á borð við „skoraðir þú mörk?“ eða „náð- irðu að sigra?“ eru ekki uppbyggjandi og ekki til þess fallnar að byggja barnið upp sem iðkanda til frambúðar. Sigrar og sérstök afrek eru ekki aðalatriðið í íþróttaiðkun barna, þeir þættir koma inn síðar. Slíkar spurningar geta þvert á móti valdið barninu vanlíðan og sent því röng skilaboð, jafnvel þó að barnið svari slíkum spurningum játandi. Sumir foreldrar brjóta börn niður andlega með ósæmilegri hegðun á íþróttaviðburðum. Aðrir brjóta niður íþróttaáhuga barna ómeðvitað. Morgunblaðið/Kristinn AÐ BRJÓTA NIÐUR BÖRN Heilbrigt líf JÓN HEIÐAR GUNNARSSON Liðsfélagarnir kalla hana Hröbbu og hún er landsþekkt fyrir afrek sín á handboltavellinum. Hún er lands- leikjahæsti og markahæsti leikmaður kvennalandsliðs- ins í handknattleik frá upphafi. Hversu oft æfir þú á viku? Fimm sinnum. Hvernig æfir þú? Yfirleitt 90 mínútna handboltaæfingar og oft mikið tempó á æfingum. Svo lyftum við einu sinni í viku yfir keppnistímabilið, mun oftar á undirbúningstímabili. Henta slíkar æfingar fyrir alla? Nei, ekki þá sem hafa ekki áhuga á handbolta. Hvernig er best fyrir nýliða að koma sér af stað? Æfa aukalega ef þeir ætla að ná árangri. Huga vel að sálræna þættinum og umfram allt vera góður félagi sem allir vilja hafa í liðinu sínu. Hver er lykillinn að góðum árangri? Að vera hluti af góðri liðsheild. Hvað er það lengsta sem þú hefur hlaupið? Hef ekki hugmynd um það en mun seint verða langhlaupari þar sem mér finnst einstaklega leiðinlegt að hlaupa án bolta. Ég mun pottþétt finna mér eitthvað annað að gera en hlaupa eftir að ferlinum lýkur. Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira? Að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera og fyrir svona félagsverur eins og mig að finna sér einhvern skemmtilegan hóp til að stunda hreyfingu með. Líður þér illa ef þú færð ekki reglu- lega útrás fyrir hreyfiþörfina? Get sem betur fer slakað vel á inn á milli en get ekki verið lengi án hreyfingar og þarf helst alltaf að finna eitthvað að keppa í. Get nán- ast keppt í öllu. Hvað er það lengsta sem hefur liðið á milli æfinga hjá þér? Það eru einhverjir mánuðir þeg- ar ég var ólétt og nýbúin að eiga. Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí? Misjafnt. Undanfarin ár hef ég glímt við álagsmeiðsl í hásinum þannig að ég hef þurft að taka mér frí inn á milli en þá tekur smátíma að komast í gott stand aftur. Ann- ars hef ég yfirleitt haldið mér í standi með styrktarþjálfun. Ertu almennt meðvituð/ur um mataræðið? Já, það hefur orðið mikil vit- undarvakning varðandi mataræði íþróttamanna, man ekki eftir að mataræði hafi verið mikið rætt á mínum yngri árum. Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég er með frábæran danskan kokk í vinnunni, hana Jytte, sem eldar svakalega góðan og hollan mat þannig að ég stóla bara á hana. Hvaða óhollustu ertu veik fyrir? Er ekki allt gott í hófi? Líka súkkulaði? Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið? Ekki fara út í öfgar. Hvaða gildi hefur hreyfing og líkamsrækt fyrir þig? Nauðsynleg fyrir vellíðan. Hversu lengi varstu að ná þér aftur á strik? Hef nánast aldrei misst af leik allan minn feril, þeir eru allavega mjög fáir. Hver eru heimskulegustu meiðslin sem þú hefur orðið fyrir? Ég er einstaklega lagin við að meiða mig í svefni og vakna með furðulegustu meiðsl eins og að geta alls ekki lyft upp hendinni eða varla stigið í fótinn en þau hafa sem betur fer lagast mjög fljótt aftur. Hvað eru algeng mistök hjá fólki við æfing- ar? Að vera að gera eitthvað allt annað en að æfa. Hver er besti samherjinn? Get ekki nefnt einhverja eina þar sem mjög margar koma upp í hugann. Hef verið mjög heppin með samherja í gegnum tíðina. Hver er fyrirmynd þín? Mamma mín, sem er ofurkona. Held í alvöru að það sé ekki til duglegri kona í öllum heiminum. Hver er besti íþróttamaður allra tíma? Jordan. Skemmtileg uppá- koma? Gleymi seint þeg- ar ákveðinn leik- maður mætti nakinn með fötin sín í fanginu í lobbý- ið á hótelinu sem við vorum á í landsliðsferð eftir að hafa verið gómuð að næturlagi í lauginni. Ég hló mjög mikið þá. Skilaboð að lokum? Settu þér markmið og náðu þeim, aldr- ei gefast upp. KEMPA VIKUNNAR HRAFNHILDUR SKÚLADÓTTIR Jytte sér um holla matinn Morgunblaðið/Golli Með því að borða heilkornsvörur, fremur en vörur úr fínunnu mjöli, geturðu dregið úr líkum á að fá ýmsa alvarlega sjúkdóma. Heilkorn inniheldur mikið af trefjum, vítamínum og steinefnum. Það er mett- andi, gott fyrir meltinguna og heldur maganum í jafnvægi. Heilkorn er hollara * „Forfeður þínir hefðu ekkiborið kennsl á ýmsarmatvörur nútímans, forðastu slíkar vörur.“ – Michael Pollan.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.