Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Qupperneq 36
Í vélinni er líka hiristivörn, sem byggist á því að linsan er „fljótandi“ og skilar sér sem aukið ljósnæmi, þ.e. hægt er að taka myndir á lengri tíma sem kemur á góðum notum í lítilli birtu. Það virkar eilítið ruglandi að símanum fylgja fjögur myndavélaforrit, staðlað forrit sem fylgir Windows Phone símum, tvö forrit frá Nokia, Smart Lens og Smart Cam, og svo Nokia Camera sem sameinar Smart Lens og Smart Cam. Fyrsta forritið verður virkt þegar kveikt er á myndavélinni og dugar vel til að taka myndir almennt, en líka er hægt að bæta við það ýmsum möguleikum (bæta við „linsum“). Aðal myndaforritið er þó Nokia Camera þar sem hægt er að stilla flest það sem mann dreymir um að geta stillt og ríflega það ljósnæmi, ljóshita (hvítjafnvægi), hraða og tíma sem stillt er með því að renna fingri yfir skjá- inn - og jafnóðum sést hvaða breytingar verða á væntanlegri mynd. Ótaldir eru ótal skemmtilegir mögu- leikar í forritinu, enda er það besta myndaforrit sem ég hef séð í farsíma sem verður að teljast viðeigandi í ljósi þess að myndavélin er líka besta mynda- vél sem ég hef séð í farsíma. Listaverð er 129.995 kr. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2013 Græjur og tækni N etgreiningarfyrirtækið Alexa Int- ernet heldur úti mjög greinar- góðum vef um netumferð. Þar má sjá með góðu móti hvernig umferð skiptist á milli ólíkra vefja, greina hana nánar eftir löndum og sjá hvar hinir ýmsu vefir eru í röðinni, en alls fylgist Alexa með umferð á einar 30 milljónir vefsíðna. Vefurinn nýtur talsverðs trausts, en Alexa er dótturfyrirtæki netrisans Amazon. Það kem- ur margt forvitnilegt í ljós þegar skoðað er hverjar eru vinsælustu síðurnar á netinu og jafnvel þegar þær eru bornar saman við það sem mest er skoðað hér heima og annars staðar. Margt bendir til að netnotkun Íslend- inga sé frábrugðin því sem gerist og gengur í kringum okkur. Fátt kemur á óvart á toppnum Það þarf engan að undra að mest heimsótta vefsíða heims er leitarsíðan Google.com. Að sama skapi ættu flestir að geta giskað á að síðurnar þar á eftir eru Facebook og You- Tube. Einhverjum kann að koma á óvart að Yahoo vermir fjórða sæti listans yfir mest sóttu vefi heims og hefur verið í sókn und- anfarið. Það er hins vegar kínverska leit- arvélin Baidu sem er í fimmta sæti, en henni svipar um ansi margt til Google. Það er ekki ólíklegt að Baidu.com eigi eftir að fara hærra á þessum lista innan skamms, en not- endum netsins í Kína fer stöðugt fjölgandi. Ef við horfum hingað heim til Íslands hins vegar þá er það Facebook sem flestir heim- sækja. Í öðru og þriðja sæti er Google (.com og .is) en Youtube vermir fjórða sætið. Vefur Morgunblaðsins, mbl.is, er sá íslenski vefur sem fær flestar heimsóknir og er í fimmta sæti. Íslenskir vefir skipa svo næstu fimm sæti þar á eftir, en í 11. sæti er Wikipedia. Yahoo, sem er í fjórða sæti í heiminum, nær einungis 15. sæti hér á landi. Yahoo hefur þó lagt mikið í sölurnar til að fjölga notendum undanfarið og býður nú meðal annars upp á tölvupóst sem er að mestu sambærilegur við Gmail, en býður notendum upp á eitt tera- bæt í geymslupláss. Það má reikna með að íslenskir notendur taki við sér og gefi Yahoo meiri gaum í nánustu framtíð. Bankar vinsælir á Íslandi en Twitter ekki Tveir af stóru viðskiptabönkunum ná inn á topp 20 yfir vinsælustu vefi landsins, en Landsbankinn situr í 21. sæti. Þess ber þó að geta að í 21. sætinu er vefurinn einka- banki.is. Það er netbanki Landsbankans og er rekinn á sérléni, ólíkt netbönkum hinna bankanna. Það má leiða að því líkur að sam- anlögð traffík af vefjum Landsbankans (landsbankinn.is (29. sæti), l.is og einkabank- inn.is) myndi fleyta honum inn á topp 20. Það vekur jafnframt athygli að bæði lénin is- b.is (12) og islandsbanki.is (20) eru ofarlega, en þau vísa bæði á sama vefinn. Ef þetta er borið saman við þau lönd sem við erum gjörn á að mæla okkur við, s.s. Bandaríkin, Bretland og hinar Norðurlandaþjóðirnar, kemur í ljós að einungis í Noregi og Svíþjóð komast bankar inn á topp 20 og þá einungis einn í hvoru landi. Í fljótu bragði er ekki hægt að geta sér til um hvað veldur þessum sérkennilega áhuga Íslendinga á netsíðum bankastofnana. Að undanskildum vef Facebook eru sam- félagsmiðlar ekki áberandi í efstu sætum mest sóttu vefja á Íslandi. Twitter, sem er í 10. sæti yfir mest sóttu vefi heims, er til að mynda einungis í 43. sæti á Íslandi. Það er jafnframt umtalsvert lægra en í samanburð- arlöndunum sem nefnd voru fyrr (sjá töflu). Þá eru vinsælir samfélagsmiðlar á borð við Pinterest (39), Tumblr (33) og Instagram (49) neðarlega á Íslandi, en Pinterest virðist reyndar eiga undir högg að sækja alls staðar á Norðurlöndum. Svo virðist þó sem Twitter- notkun hér á landi sé óvanalega lítil. Það er freistandi að skýra það með smæð sam- RÝNT Í TÖLUR UM NETUMFERÐ Íslendingar áhugasamir um fréttir og banka VEFSÍÐUR BANKA KOMAST Á TOPP TUTTUGU YFIR MEST SÓTTU VEFSÍÐUR Á ÍSLANDI OG FIMM AF TÍU MEST SÓTTU VEFSÍÐUM LANDSMANNA ERU INNLENDIR FRÉTTAVEFIR. FACEBOOK ER MEST SÓTTA VEFSÍÐAN EN TWITTER NÝTUR TALSVERT MINNI VINSÆLDA HÉR Á LANDI EN ANNARS STAÐAR Á NORÐURLÖNDUNUM. Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Mest sóttu vefir á Íslandi 1 facebook.com 2 google.com 3 google.is 4 youtube.com 5 mbl.is 6 visir.is 7 dv.is 8 pressan.is 9 ja.is 10 ruv.is 11 wikipedia.org 12 isb.is 13 bland.is 14 arionbanki.is 15 yahoo.com 16 linkedin.com 17 amazon.com 18 hun.is 19 vb.is 20 islandsbanki.is Heimild:Alexa Fimm af tíu vinsælustu vefjum Íslands eru innlendir fréttavefir. Það er hærra hlutfall en hjá hinum þjóðunum. Mbl.is er fimmti mest sótti vefur landsins. Farsími er ekki bara farsími, heldur er hann notaður til óteljandiathafna, þar á meðal að taka myndir og nýr sími frá Nokia,Lumia 1020, státar af bestu myndavél sem til er í farsíma í dag. Myndflagan í henni er hvorki meira en minna en 7.728 x 5.368 dílar, eða ríflega 41 MP. Frummyndirnar sem sím- inn skilar eru þó ekki „nema“ 34 MPm, en úr þeim gerir hann svo 5 MP myndir. sem eru talsvert betri en þær myndir sem nokkur far- símamyndavél önnur skilar. Sérstakur örgjörvi vinnur myndirnar eftir að búið er að smella af og minnkar þær í 5 MP, en þar sem unnið er úr svo stórri frummynd. Síminn geymir bæði minni útgáfu myndarinnar, 5 MP myndina, og þá stóru 34 MP, og því hægt að skera úr myndinni eftir á, ef svo má segja, „zooma“ inn á svæði í henni og fá út mynd í miklum gæðum, ólíkt því sem annars er með stafrænan aðdrátt. LANGBESTA FARSÍMAMYNDAVÉLIN FLESTIR FARSÍMAR AF BETRI GERÐINNI ERU MEÐ PRÝÐILEGAR MYNDAVÉLAR, EN ÓHÆTT AÐ SEGJA AÐ MYNDAVÉLIN Í NÝJUM NOKIA-SÍMA, LUMIA 1020, TAKI SAMKEPPNINA Í NEFIÐ. * Síminn heitir Lumia 1020, en ef“About“ er valið úr stilingum segir að hann sé Lumia 909 sem var víst vinnuheitið og vísaði þá í 808- símann fysrta síminn sem notaði PureView-tækni í myndavél. Þegar kom svo að því að markaðssetja símann fannst mönnum það rétt að láta hann heita hærra númeri. * Líkt og á öðrum Lumia símumfylgir með kortagrunnur og leiðsögn sem virkar mjög vel. Nokia skákar Android / Google í þvi að hægt er að sækja landakort á símann, til að mynda yfir þráðlaust net, og nota þegar maður er utan netsambands (og vill ekki borga milljónir fyrir 3G gagnaflutning) * Skjárinn er mjög góður 4,5“AMOLED, upplausnin 1.280 x 768 dílar, sem gefur 332 PPI; bjartur og litir góðir líka og hann stendur sig vel í sólarljósi. Örgjörvinn 1,5 GHz tveggja kjarna Krait MSM8960, vinnsluminnið 2 GB. Skjástýringin er Adreno 225 örgjörvi, sá sami og notaður er í Samsung Galaxy SIII til að mynda. ÁRNI MATTHÍASSON Græja vikunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.