Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Side 61

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Side 61
nóg heldur liðsfélagar hans líka. Leikurinn við Plzen var topp- slagur um efsta sæti í B-riðli Evrópudeildarinnar og menn nýt- ast ekki liðum sínum uppi í stúku. Nú var tími til að þroskast og slaka kannski aðeins á, þökk sé íslenska dómaratríóinu. Oftast brotið á honum Nú er Costa allt annar. Hann reyndar rífur kjaft og talar mjög niður til andstæðinga sinna. Er hálfgerður snillingur í að koma andstæðingum úr jafnvægi með óvægnum athugasemdum en skapið er allt annað. Hann lætur ekki lengur reka sig af velli fyrir einhvern óþarfa. Hann hefur reyndar verið bókaður þrisv- ar fyrir að taka smásyrpur inni á vellinum. Þá er oftast brotið á honum af öllum leikmönnum La Liga-deildarinnar. Trúlega eru 90% af þeim brotum hefnibrot. 14 sinnum hefur Ronaldo fengið aukaspyrnu það sem af er ári, Messi 10 sinnum en Costa 34 sinnum. Á síðasta tímabili fiskaði hann 14 gul og fjögur rauð á andstæðinga sína, geri aðrir betur. Ekki bara maraþonhlaupari Einn maður sem naut góðs af því að vera frammi með Costa var téður Falcao. Costa bjó til ógrynni af færum fyrir hann auk þess sem varnarmenn andstæðinganna eyddu mestu púðri í að reyna að þagga niður í framherjanum. Hann er hins vegar ekki þessi týpíska falska nía sem er svo í tísku í fótboltaheiminum í dag. Hann hleyp- ur úr sér lungun í hverjum leik og berst þar til yfir lýkur. En það má samt ekki gleyma að Costa er góður í fót- bolta. Hann er ekki bara mara- þonhlaupari með mikið skap. Hann er svo miklu meira. Hann er ábyggilega eini framherji heims- ins sem mælir ekki árangur sinn í skoruðum mörkum heldur hversu mikið varnarmenn hata að spila á móti honum. Það er pínu sérstakt verður að segjast en það er heldur ekkert venjulegt við Spánverja-Brassann Diego Costa. Spánn eða Brasilía? Allt bendir til að Costa muni spila með Spáni frekar en Brasilíu á HM næsta sumar. Það er Stóri Phil, Luiz Felipe Scolari, stjóri Brassa, allt annað en kátur með, sem er svolítið kald- hæðnislegt þar sem Scolari taldi bæði Pepe og Deco á að spila fyrir Portúgal frekar en Brasilíu þegar hann stýrði landsliði Portúgals. „Það eru öðruvísi dæmi því þeir voru aldrei í liði Brasilíu. Mér finnst bara skrýtið að menn geti valið sér lands- lið. Erum við á leiðinni aftur til sjöunda áratugarins þegar Puscas og di Stefano spiluðu með Spáni en ekki sínum heima- löndum?“ Vicente Del Bosque, þjálfara Spánar, langar að hafa Costa í liðinu sínu og er alveg tilbúinn að fara í slag við Bras- ilíu. Bæði lið vantar framherja. Brasilíumenn treysta á Fred, Jo og Pato til að létta pressunni af Neymar og Spánverjar eiga Torres. Sá dísilbíll fer nú vonandi að hitna eftir mörkin í Meist- aradeildinni en hann er enginn Costa. Aðrir eru varla fram- herjar – meiri tíur en níur –enda gæti Del Bosque vel spilað leikkerfið 4-6-0. Costa var orðaður við Liverpool en sagði nei og hélt tryggð við Atlético. Kristinn Jakobsson veifar rauða spjaldinu á Costa. Skjáskot/youtube 27.10. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.