Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2013, Síða 64
SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 2013
Fáðu Vodafone
Guardian
Ókeypis snjallsímaforrit fyrir
alla foreldra í Google Play
Skólabörn
þurfa vinnufrið
Með Vodafone Guardian getur þú
lokað snjallsíma barnsins þíns á
ákveðnum tímum dagsins.
Allar upplýsingar um snjallsímaforritið
má finna á vodafone.is/guardian
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Svissneski sjónvarpsmaðurinn Fritz Muri, frá svissneska ríkissjón-
varpinu, var staddur hér á landi fyrir skömmu að gera þátt um Gil-
bert úrsmið og fyrirtæki hans JS Watch. Þátturinn er hluti af fjög-
urra þátta þáttaröð um úrsmiði sem eru að gera góða hluti utan Sviss
en svissnesk úr þykja þau bestu í heimi. „Svissnesku sjónvarpsmönn-
unum fannst mjög merkilegt og sérstakt að það sé til jafn góður úra-
framleiðandi og Gilbert á Íslandi, sem er nú ekki fjölmennt land,“ seg-
ir Grímkell Sigurþórsson, hönnuður og meðeigandi í JS Watch. Fóru
þeir félagar meðal annars í flug með þyrlu Landhelgisgæslunnar en
Gilbert styrkir Gæsluna um úr.
Þættirnir verða sýndir í tengslum við hina árlegu Basel World úra-
og skartgripasýningu, en búist er við að allt að 120.000 manns heim-
sæki sýninguna vikuna 27. mars - 3. apríl á næsta ári.
Fritz Muri og Gilbert við tökur á þættinum. Muri er einn þekktasti sjónvarpsmaður Sviss – Gísli Marteinn þess lands.
GILBERT ÚRSMIÐUR Í SVISSNESKUM ÞÆTTI
Íslensk úr
vekja athygli
Úrsmiðurinn myndaður í bak og fyrir.
Listamaðurinn Jorge Rodriguez-
Gerada gerði ógnarstórt listaverk
af lítilli stúlku fyrir Belfast-
hátíðina, listahátíð sem hefst nú um
helgina. Alls er verkið rúmir rúmir
fjórir fótboltavellir að stærð og
þurfti Gerada að notast við 30 þús-
und trjágreinar, tvö þúsund tonn af
jarðvegi og álíka af sandi.
Verkið kallar hann Wish eða
Óskina og er það stærsta jarð-
listaverk í Stóra-Bretlandi. Verkið
sést illa á jörðu niðri en gestir há-
tíðarinnar geta farið í þyrluflug eða
litlar flugvélar til að kíkja á þetta
ótrúlega verk að ofan.
Gerada er þekktur fyrir list sína
á jörðu niðri sem er yfirleitt ekki
einhver smásmíði. Hann sló fyrst í
gegn þegar hann gerði risamynd
af Bandaríkjaforseta, Barack
Obama, árið 2008. Barnið sem er
fyrirmynd Gerada að verkinu seg-
ir hann að sé bara innfædd stúlka
sem hann sá á lestarstöðinni í Bel-
fast þegar hann kom þangað í
sumar. „Það skiptir mig miklu að
áhorfandinn sjái bara stúlkuna og
verkið. Ekki hvort hún sé af kaþ-
ólskum ættum eða trúi á hitt eða
þetta. Hún er bara fallegt barn
sem ég sá og ákvað að nota í verk-
ið,“ sagði listamaðurinn við Irish
Times.
FURÐUR VERALDAR
Nýtt and-
lit Írlands
Svæðið á jörðu niðri þar sem verkið er verður opið fyrir almenning en
mælt er með því að sjá það úr þyrlu eða flugvél.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Gianfranco Zola
knattspyrnugoðsögn
Ben Stiller
leikari og leikstjóri
Hilmar Guðjónsson
leikari