Morgunblaðið - 23.11.2013, Side 16

Morgunblaðið - 23.11.2013, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013 ÚR BÆJARLÍFINU Atli Vigfússon Þingeyjarsýsla Æfingar á söngleiknum Benedikt búálfi eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson hafa staðið yfir að undanförnu í Hafralækjarskóla og á meðan hefur hefðbundin stundaskrá verið lögð til hliðar. Það að stíga á svið og syngja fyrir fullu húsi er gott nám og finnst nemendum mjög gaman að fást við þetta verkefni. Árshátíðin hefur allt- af verið haldin í félagsheimilinu Ýdölum og þar hefur margt korn- ungt fólk úr sveitunum stigið sín fyrstu skref á leiksviði og átt leik- sigra sem tekið hefur verið eftir. Krakkarnir hafa ævinlega fengið mikið lof.    Kornræktin gekk ekki vel í haust og uppskeran varð minni en mörg undanfarin ár. Þingeyjarsýslur eru ekki á því vaxtarsvæði sem talið er henta best í þessari búgrein, en von- andi verður tíðarfar til þess að að- stæður lagist. Skortur á þurrum hálmi er fylgifiskur lítillar kornrækt- ar og þeir sem hafa vanið sig á að bera hálm undir skepnurnar þurfa jafnvel að sækja hann í önnur héruð og greiða fyrir hann háar upphæðir. Þurrir dagar voru fáir í haust og enn liggur úti hálmur sem hægt væri að þurrka ef gengi í sunnanvinda og hlákur.    Byggingar hjá bændum eru nokkrar og bjartsýni ríkir víða. Í Ár- holti á Tjörnesi og Lóni í Kelduhverfi eru risin nýtískufjárhús sem bæði voru byggð í haust og bændur á Litlu-Reykjum í Reykjahverfi fluttu í splunkunýtt fjós fyrir u.þ.b. tveim- ur vikum. Þá er verið að byggja í Brúnahlíð í Aðaldal og líka á Langa- vatni, þannig að það er hugur í mönnum, enda eru trésmíða- fyrirtæki mjög upptekin um þessar mundir.    Kartöfluræktin gekk vel hjá þeim þar sem ekki fraus og upp- skeran því margföld. Einkum er það eldra fólk sem ræktar kartöflur, en unga fólkið vill gjarnan kaupa þær í búðinni og hefur ekki tileinkað sér þá þekkingu sem til þarf. Enginn vandi væri að rækta meira af rótarávöxtum í Þingeyjarsýslum, en rófnaræktin á Hallgilsstöðum og gulrótaræktin í Akurseli eru frábær dæmi um at- hyglisverðan lífrænan landbúnað.    Reykhúsin hjá fólkinu í sveit- unum eru full af góðmeti þessa dag- ana enda nálgast jólamánuðurinn óð- fluga. Sumir hafa lokið við að reykja, en aðrir keppast við að klára og eru farnir að taka niður hangibóga, mag- ála, rúllupylsur, sauðalæri og sperðla. Svo er spennandi að smakka. Tvíreykt kjöt er mjög vinsælt hjá mörgum neytendum nú á dögum og kjöt sem þannig er verkað gengur út eins og heitar lummur hjá þeim sem bjóða vörur beint frá býli.    Fuglar eru fáir á sveimi, en nokkrir flækingar hafa flögrað um sýsluna í haustveðrunum. Hrafnarn- ir hafa skipt sér á bæina og virðast tilbúnir til að takast á við veturinn og finna sér fæðu. Flestir fuglar spá fyrir um veðráttuna og nýlega sást músarrindill taka sér bólfestu í fjár- húshlöðu og gera sér fylgsni. – Kannski veit það á harðan vetur. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Góðgæti Benedikt Kristjánsson, bóndi á Hólmavaði í Aðaldal, með nýreykta heimagerða sperðla. Spennandi að smakka sperðlana Aðalmeðferð í máli Ríkissaksóknara gegn lögreglumanninum sem er sak- aður um að hafa handtekið konu á Laugaveginum 7. júlí s.l. eftir að hún hrækti á hann fór fram í gær. Konan var dæmd fyrir árásina fyrir rúmum mánuði. Konan kærði atvikið ekki strax, heldur þegar myndband komst í almenna dreifingu og varð til þess að lögreglustjóri höfuðborgar- svæðisins vísaði málinu til rannsókn- ar. Ákveðið var að ákæra í málinu og er lögreglumanninum gefin að sök líkamsárás og brot í opinberu starfi. Ekki er ákært fyrir ólögmæta hand- töku. Vill skilorðsbundið fangelsi Saksóknari krafðist þess að lög- reglumaðurinn yrði dæmdur í nokk- urra mánaða skilorðsbundið fang- elsi. Verjandi hans krefst sýknu. „Um leið og hún er búin að hrækja í andlit lögreglu tel ég viðkomandi hættulega og tek málið mjög alvar- lega. Þá tek ég ákvörðun um að beita þessari aðferð, einfaldlega til að geta komið í veg fyrir að hún geti gert nokkuð meira. Ég valdi þá aðferð sem ég taldi öruggasta til að ég yrði ekki fyrir frekara ofbeldi,“ sagði lög- reglumaðurinn við aðalmeðferðina. Saksóknari spurði hvort ekki hefði verið hægt að beita vægari úrræð- um, t.d. að handtaka konuna þar sem hún stóð. „Nei, vegna þess að ef hún hefði staðið upprétt hefði hún getað snúið sér við og hrækt aftur framan í mig eða okkur. Það er ástæðan fyrir því að ég vel þessa aðferð.“ Kolbrún Benediktsdóttir saksókn- ari sagði það vera mat ákæruvalds- ins „að fyrir utan þennan hráka hafi [konan] verið róleg og ekkert í henn- ar hegðun gaf tilefni til svona harka- legrar handtöku“. Grímur Hergeirs- son, verjandi lögreglumannsins, spurði hversu oft konan hefði þá mátt hrækja í rólegheitum á lög- reglumanninn áður en hann gæti gripið til handtöku sem kæmi í veg fyrir að hún gæti haldið því áfram. 80 sekúndna atburðarás Saksóknari vísaði meðal annars til þess að 80 sekúndur liðu frá því að lögreglubíllinn kom að þar sem kon- an sat á götunni, sem í raun var göngugata þar sem hún var svonefnd sumargata og þar af leiðandi lokuð bílaumferð, og þar til konan var færð inn í lögreglubílinn. Það hefði því verið gefið afar lítið svigrúm fyrir konuna, sem var ofurölvi. Hvað þetta varðar sagði verjandi lögreglumannsins að tímalengdin skipti ekki meginmáli. Á þessum tíma hlýddi konan ekki fyrirmælum lögreglu um að færa sig en það stóð þá aldrei til að handtaka hana. Hins vegar hefði nýr kafli hafist þegar hún hrækti inn um glugga lögreglu- bílsins og framan í lögreglumanninn. Áttatíu sekúndna löng atburðarás við Laugaveg  Krafist skilorðsbundins fangelsis yfir lögreglumanninum Handtaka Skjáskot úr myndband- inu sem tekið var af handtökunni. Möngu- sagan öll Sagan umMöngu með svartan vanga, Ásdísi skáldkonu frá Rugludal, systurnar í Baslhaga og aðrar hvunndagshetjur fyrri alda eftir Ómar Ragnarsson. www.forlagid.i s – alvöru bókabúð á net inu Aukinog endur-bætt gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Sendunú betri helminginnút til að setja upp jólaseríurnar! – með réttu græjunum Áltrappa 5 þrep 6.490 Áltrappa 4 þrep 4.990 Álstigi 2x12 þrep 3,61-6,1 m 28.490 Álstigi 12 þrep 3,38 m 7.890 Álstigi 3x8 þrep 2,27-5,05 m 17.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum Skannaðu kóðann til að lesa nánari umfjöllun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.