Morgunblaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 28
KÓPAVOGUR
DAGA
HRINGFERÐ
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2013
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Einhver öflugustu og fjölmennustu
íþróttafélög landsins eru í Kópavogi.
Mörg þeirra hafa lengi haft skýra og
markvissa stefnu í barna- og ung-
lingastarfi sem hefur skilað sér í
fjölda iðkenda og ekki síður í ár-
angri meistaraflokka og í afreks-
fólki.
Íþróttafélagið Gerpla hefur ver-
ið töluvert í sviðsljósinu undanfarið
en stúlkur frá því hafa unnið Evr-
ópu- og Norðurlandameistaratitla í
hópfimleikum á undanförnum árum
auk þess að sanka að sér verðlaun-
um innanlands.
Fimleikadeildin er sú fjölmenn-
asta á landinu en að sögn Auðar
Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmda-
stjóra Gerplu, eru rúmlega 1.500
iðkendur í félaginu, allt frá þriggja
ára aldri og upp í meistaraflokks-
fólk. Til viðbótar eru um 850 börn á
biðlista eftir að komast að hjá
Gerplu. Biðin getur tekið allt að 3-4
ár en erfiðast er fyrir krakka á aldr-
inum 7-9 ára að fá inni þar sem eft-
irspurnin sé mest þá.
„Það eru barnmörg hverfi sem
eru að byggjast upp, við vorum með
nýja aðstöðu og svo sýnilegri árang-
ur fimleikamanna sem hefur komist
meira í fjölmiðla. Það hefur mikil
áhrif og fljótt,“ segir Auður um
ástæður þessa mikla áhuga.
Allir geti notið sín
Gerpla á nú í viðræðum við
Kópavogsbæ um úrbætur í húsnæð-
ismálum félagsins en það hefur þurft
að takmarka fjölda æfinga auk
fjölda iðkenda.
Þrátt fyrir góðan árangur
afreksfólks Gerplu gengur stefna fé-
lagsins fyrst og fremst út á lýð-
heilsu. Auður bendir á aðeins 55
manns af 1.500 séu í því sem megi
kalla meistaraflokka.
„Við erum með afreksstefnu en
við erum líka með flokka fyrir börn
og unglinga sem ekki vilja stunda
keppni. Fyrst og fremst höfum við
lagt metnað í að gera allt sem við
gerum vel og að allir krakkarnir geti
notið sín,“ segir Auður.
Ennþá að stækka
Breiðablik býður upp á fjöl-
breytt íþróttastarf með níu deildum.
Félagið er það stærsta á landinu
með um 2.300 iðkendur. Þar af eru
um 1.400 í knattspyrnu og er deildin
sömuleiðis sú fjölmennsta á landinu
að sögn Orra Hlöðverssonar, for-
manns félagsins. Nú í haust hefur
enn bæst í og eru stelpur í 8. flokki
kvenna í fótbolta nú 80 en voru 30 í
fyrra svo dæmi sé tekið. Strákum í
sama flokki hefur fjölgað úr 100 í
150 á milli ára.
Orri segir margar ástæður fyrir
fjölguninni. Íbúum bæjarins hafi
fjölgað mjög og velgengni meist-
araflokksliða í fótbolta karla og
kvenna hafi áhrif. Hefð og styrkur
félagsins liggi í uppeldisstarfinu.
„Það er gríðarlega öflugt innra
starf í öllum deildum félagsins, mikil
áhersla á barna- og unglingastarf og
svo er hér aðstaða nánast á heims-
klassa sem Kópavogsbær á heið-
urinn af. Við erum ennþá að stækka
þó að við séum langstærstir,“ segir
Orri ánægður en segir þó að stækk-
un félagsins sé ekki markmið í sjálfu
sér.
Æðra og göfugra markmið
Þjálfarar sem sjá um uppeldis-
starfið hjá Blikum í öllum deildum
eru nú atvinnumenn sem margir
hafa þjálfunina að lifibrauði.
„Síðustu árin hafa einkennst af
fagmennsku fram í fingurgóma. Með
því færðu stöðugleika í starfið sem
ég held að sé okkar mesti styrkur.
Gæðin, stöðugleikinn og reynslan,“
segir Orri.
Markmiðið með starfi félagsins
er að fá krakka til að stunda íþróttir
að sögn formannsins. Nær öll orka
félagsins fari í að skipuleggja barna-
og unglingastarfið.
„Takmarkið er að ungmennin
hreyfi sig og kynnist þeim heilbrigða
lífsstíl og viðhorfum sem ríkja í
íþróttunum. Það er nokkuð sem þú
tekur út í lífið hvort sem þú fetar út
á afreksbrautir eða hættir í keppn-
isíþróttum á mennta- eða háskóla-
árum. Það er hið æðra og göfugra
markmið með starfinu,“ segir Orri.
Sterkust í handboltanum
Þó að HK hafi alið upp ýmsa af-
reksmenn í knattspyrnu eins og
landsliðsframherjann Kolbein Sig-
þórsson er aðalsmerki liðsins hand-
boltinn. Langfjölmennasta hand-
knattleiksdeild landsins er hjá HK
og er hún með um 600 iðkendur að
sögn Sigurjóns Sigurðssonar, for-
manns HK. Í heild eru um 2.000 iðk-
endur hjá félaginu í öllum íþróttum.
„Það er gríðarlega mikið
íþróttalíf í bænum. Ég held að það
sé fyrst og fremst út af frábærri
íþróttaaðstöðu sem er búið að
byggja upp í bænum, fyrir hand-
bolta, fótbolta og fleiri greinar. Að-
gengið er einfaldlega mjög gott,“
segir hann spurður um ástæðu þess
að íþróttir í Kópavogi eru eins ríkur
þáttur í menningu bæjarins og raun
ber vitni.
Breiðablik og HK hafa undan-
farið unnið að samkomulagi við
Kópavogsbæ um nýtingu íþrótta-
mannvirkja í knattspyrnustarfi
þeirra. Það er eina íþróttin sem bæði
félög bjóða upp á. Þannig mun HK
taka yfir alla æfingatíma í knatt-
spyrnuhúsinu Kórnum en Breiða-
blik fær aðstöðu í Smáranum til
sinna yfirráða. Það getur þá sparað
foreldrum sporin að koma börn-
unum á æfingar.
Unnið hefur verið að því að
færa æfingar HK fram á daginn að
sögn Sigurjóns. Þá byrjaði félagið að
bjóða upp á rútu, HK-vagninn, sem
keyrir á milli hverfa bæjarins og æf-
ingasvæða félagsins.
„Það er ekkert skutl á for-
eldrum í félaginu. Því var eiginlega
lokað. Þegar foreldrar koma heim
kl. 17 geta allar æfingar verið búnar,
að minnsta kosti hjá þeim yngstu,“
segir hann.
Sigurjón segir að HK hafi einn-
ig einbeitt sér að því að bjóða upp á
fjölbreytni svo börn geti prófað fleiri
en eina íþróttagrein. Alls er boðið
upp á sjö greinar auk íþróttaskóla.
„Sérstaklega í yngstu flokk-
unum er algengt að krakkarnir séu í
tveimur íþróttum. Við höfum áhuga
á að auka þetta og þau yngstu fái að
prófa sem flestar greinar,“ segir
Sigurjón og bendir á að rannsóknir
bendi til að börn sem stunda fleiri en
eina íþróttagrein séu allt að helm-
ingi líklegri til að halda lengur
áfram í íþróttum.
Fjölmennustu
íþróttadeildir
á landinu
Geysilega öflugt barna- og unglinga-
starf rekið hjá félögum í Kópavogi
Morgunblaðið/Kristinn
Fimleikadeild
Gerplu er sú öfl-
ugasta á landinu.
Í miðja holu! Stelpur æfa púttin á æfingasvæði GKG. Eitt af markmiðum
GKG er að fjölga stelpum sem leggja stund á golfíþróttina.
Varnarmúr HK-stelpur stilla upp í vörn. Félagið er það eina sem býður
upp á handbolta í Kópavogi en deildin er sú fjölmennasta á landinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Skot og mark Efnilegir knattspyrnumenn á æfingu hjá yngri flokkum hjá
Breiðabliki í Fífunni. Alls eru um 1.400 iðkendur hjá knattspyrnudeildinni.
Jafnmörg börn og unglingar
æfa golf hjá Golfklúbbi Kópa-
vogs og Garðabæjar (GKG) og
hjá hinum stóru klúbbunum á
höfuðborgarsvæðinu sam-
anlagt. Um 900 börn fara í
gegnum starf klúbbsins á ári
hverju að sögn Agnars Más
Jónssonar, framkvæmdastjóra
GKG.
„Stefna GKG er fyrst og síð-
ast að vera fjölskyldugolf-
klúbbur. Því markmiði höfum
við fylgt eftir í fjöldamörg ár
með öflugu barna- og unglinga-
starfi og afreksstarfi því við
trúum því að það sé hornsteinn
fjölskyldustefnunnar sem við
rekum,“ segir Agnar Már.
Hugsunin er sú að þegar
krakkarnir byrji að æfa, fái
áhuga á og nái tökum á golf-
íþróttinni fái þeir svo foreldrana
með sér á völlinn. Golfleikja-
námskeið sem klúbburinn hefur
staðið fyrir á sumrin hefur
hjálpað til við þetta. Þannig
verði golfið að kjörnu tækifæri
fyrir fjölskylduna til þess að
verja tíma saman og njóta sam-
verunnar. Agnar Már segir að
þetta sé byrjað að gerast í
auknum mæli.
Heiðarleikagildi í golfi
Markmiðið með starfinu er að
krakkarnir taki þátt í því á eigin
forsendum að sögn Agnars Más.
„Hins vegar er það þannig þeg-
ar þú ert með marga krakka
samankomna þá verður leik-
urinn skemmtilegri og krakk-
arnir fara að keppa sín á milli.
Þannig verður til skemmtilegur
árangur. Á einhverjum tíma-
punkti ákveða einhverjir krakk-
ar að þetta sé eitthvað sem þeir
vilja leggja fyrir sig,“ segir
hann.
Mikilvægt er fyrir íþróttastarf
að vera með afrekskylfinga sem
fyrirmyndir og nefnir fram-
kvæmdastjórinn Birgi Leif Haf-
þórsson, margfaldan Íslands-
meistara í golfi.
„Allt forvarnargildið sem íþrótt-
irnar hafa fylgir golfíþróttinni
og gott betur. Við vinnum eftir
heiðarleikagildum sem skipta
líka miklu máli og er uppeld-
isþáttur. Golfið er prýðilegur
kostur fyrir börn og unglinga að
stunda,“ segir Agnar Már.
Prýðilegt
fyrir börnin
GOLF Í GKG