Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013 Leikarinn Rúnar Freyr Gíslason segir sögu sína af glímu við sjúk- dóminn alkóhólisma í opinskáu viðtali í blaðinu í dag. Sjúkdóm- urinn og afleiðingar hans fyrir einstaklinga, fjölskyldur og sam- félagið allt var til umfjöllunar í vikunni eftir að bók um ævi Her- manns Gunnarssonar kom út. Ævisöguritarinn, fjölskylda og vinir Hemma tóku í sameiningu þá ákvörðun að í bókinni kæmi sannleikurinn um þróun sjúk- dómsins og dánarorsök Hemma Gunn fram. Ekki er endilega víst að Hemmi hefði kosið sjálfur að greina frá þessu, en ljóst er að með ritun eftirmála bókarinnar hafa þeir sem eftir lifa kosið að láta sögu Hemma af baráttunni við sjúkdóminn standa eins og hún var í raun, ekki eins og hún átti að líta út fyrir að vera. Eins og Rúnar Freyr bendir á í viðtalinu eru alkóhólistar gjarnan búnir að brenna allar brýr að baki sér þegar þeir átta sig á vand- anum og fá styrk til að biðja um aðstoð. Og það kann að hljóma undarlega en hann segir að hans nánustu hafi hjálpað sér með því að loka á hann. Þegar hann fann að ákveðnar dyr voru að lokast í lífi hans fór hann að taka ábyrgð á sínum lífshættulega sjúkdómi og taka hann alvarlega. Þeir sem koma fram og segja sögu sína líkt og Rúnar Freyr gerir í viðtali í blaðinu gera það jafnan í þeirri von að sagan geti hjálpað einhverjum. Það sama bjó augljóslega að baki hjá þeim sem standa að bókinni um Hemma Gunn. Það að segja söguna skiptir einfaldlega meira máli en hver sagan er. Batasögur skipta máli því þær veita von. Sögur af bar- áttu sem er töpuð eru líka mik- ilvægar því sannleikurinn getur aldrei gert annað en að auka skilning og efla okkur í baráttu gegn fordómum. RABBIÐ Sagan sögð Eyrún Magnúsdóttir Drottning lenti hér á landi síðdegis á þriðjudag og snæddi hátíðarkvöldverð með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum sama kvöld. Á matseðli kvöldsins var reyktur áll í forrétt, sunnlenskur lax með íslensku rót- argrænmeti í aðalrétt og súkkulaðikaka með jarðarberjum í eftirrétt. Þegar Margrét kom til Íslands árið 1973 hafði hún verið drottning í eitt ár og kom hingað til lands með skipinu Dannebrog. Kristján Eldjárn og kona hans Hall- dóra tóku á móti hjónunum og snæddu þau kvöldverð að Bessastöðum. Þar var reyktur lax, steiktar endur og perumaringe í eftirrétt. Margrét Þórhildur er 73 ára og hefur verið drottning í 41 ár. Hún hefur komið hingað til lands nokkuð oft, til dæmis 1986 þegar hún ferðaðist um landið. Þá var hún við lýðveldishátíðina árið 1994 og kom svo tvisvar árið 1998. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Golli MARGRÉT OG HEIMSÓKNIRNAR MARGRÉT ALEXANDRA ÞÓRHILDUR INGIRÍÐUR, DROTTNING DANMERKUR, ER STÖDD Á ÍSLANDI ÞESSA DAGANA Í TILEFNI AF 350 ÁRA AFMÆLI ÁRNA MAGNÚSSONAR HANDRITASAFNARA. FYRIR 40 ÁRUM, Í JÚLÍ 1973, KOM MARGRÉT ÁSAMT MANNI SÍNUM HIN- RIKI PRINS Í OPINBERA HEIMSÓKN HINGAÐ TIL LANDS OG VAR FAGNAÐ AF ÞÚSUNDUM Á MIÐBAKKA. Morgunblaðið/Kristinn Ben Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Degi íslenskrar tungu fagnað. Hvar? Árnagarði Háskóla Íslands, stofu 201, á móti Árnastofnun. Hvenær? Laugardag kl. 15-18. Nánar: Fjölbreytt erindi um íslenska tungu auk léttra veitinga. Dagur íslenskrar tungu Hvað? Jólabasar. Hvar? Waldorfskól- anum Lækjarbotnum. Hvenær? Laugardag kl. 12-17. Nánar: Árlegur jólabas- ar Waldorfskólans haldinn en þar verða eldbakaðar pitsur og skemmtiatriði. Árlegur jólabasar Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Kauphallardagurinn. Hvar? Háskólanum í Reykjavík. Hvenær? Laugardag kl. 13-16. Nánar: Ókeypis örnámskeið og fræðsla um fjármálalæsi og ýmisleg mál- efni fyrir allan aldur. Andlitsmálning og fleira fyrir börnin. Tilvalið fyrir fjöl- skylduna. Fræðsla og fjör Hvað? Jólahátíð Skoppu og Skrítlu. Hvar? Borgarleik- húsið. Hvenær? Sunnudag kl. 13 og 14:30. Nánar: Skoppa og Skrítla bjóða jólasveininn velkominn til byggða. Frumsýning er á laugardeginum en enn eru til miðar á sunnudeginum. Verð: 2.700 kr. Skoppa og Skrítla Hvað? Fyrirsætuleit fyrir Reykjavik Fas- hion Festival 2014. Hvar? Ármúla 21. Hvenær? Sunnudag kl. 13. Nánar: Elite model á Íslandi leitar að einstaklingum fyrir RFF en einnig ýmis önnur verkefni. Leita að fyrirsætum Hvað? Ganga um Hafnarfjarðarhöfn. Hvar? Hefst í menningar- og lista- miðstöð Hafnarfjarðar. Hvenær? Sunnudag kl. 15. Nánar: Kristinn Aadnegard yfirhafn- leiðsögumaður leiðir gönguna. Sagan rifjuð upp * Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.