Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013
HEIMURINN
SEYJAR
bylurinn H
nneyja og olli mik
gingu. Útilokað e
u lífið í fellibylnum
sem mælst hefu
d-a. S
arstofnan-mför
a svæða.
VENESÚELA
CARACAS Mad-Nicolas
uro , gaf, forsetiVenesúela
kaút tilskipun um að læk
ætti verð á rafmagns-
tækjum. Hermenn vor
sendir út af örkinni til
taka yfir verslunarkeð
sem selja r f k
fjöldi versl
handtekinn
er að lækk a á
beinast að
leikföngum
PÓLLAND
V óllandiLögregla íV
ragas til að kveða númmíkúlur og tá
st út í göngu þjóðernissinna áofbeldi, sem brau
Lagður var eldur að boga, semdegi sjálfstæðis.
um regnbogans til að táknaskreyttur var lit
og umburðarlyndij gf ölmennin u slaw
orowskiKom forseti Póllands, bað Rússa, ökunar á að göngu-
árás á rúsmenn skyldu reyna að gera ið íVarsjá.
tið lí
s
fá
fl
lý
Í bandarískum ríkisfjár-
málum gildir sú regla sam-
kvæmt samkomulagi frá
2011 að nái þingið ekki að
halda útgjöldum ríkisins inn-
an ákveðinna marka taki við
sjálfkrafa, flatur nið-
urskurður.
Repúblikanar komu þess-
ari reglu í gegn og Barack
Obama forseti hefur sætt
sig við hana svo lengi sem
fé fáist til að fjármagna heil-
brigðislög hans.
Reglan hefur leitt til þess
að í fyrsta skipti í 60 ár
hafa útgjöld bandaríska al-
ríkisins lækkað tvö ár í röð.
Ríkið lendir hins vegar
ítrekað í fjármögn-
unarvandræðum út af
skuldaþaki. Hlaupi
skuldadeila í hnút
blasa vanskil við rík-
inu og þarf að loka
ríkisstofnunum. Þannig
fór í október og
má búast við
framhaldi í apríl í
síðasta lagi.
U
mbætur í heilbrigð-
ismálum áttu að
vera skrautfjöðrin í
hatt Baracks
Obama, en nær væri
að tala um myllustein. Með lög-
unum hugðist hann sjá til þess að
sem flestir Bandaríkjamenn hefðu
sjúkratryggingu. Í október gátu
Bandaríkjamenn byrjað að skrá sig
í nýju tryggingaáætlunina. Síðan
hefur allt farið í handaskolum. Í
raun hefur hvert klúðrið rekið ann-
að hjá forsetanum og hefur stuðn-
ingur við hann aldrei mælst minni.
Velta fréttaskýrendur nú fyrir sér
hvort hann geti náð sér aftur á
strik. Reynslan sýnir að forsetar á
öðru kjörtímabili gera það sjaldn-
ast.
Allt í handaskolum
Aðeins rétt rúmlega 100 þúsund
manns völdu nýju sjúkratrygg-
inguna í október, stjórnvöld höfðu
vonast eftir hálfri milljón. Hún er
hornsteinn nýju heilsugæslulag-
anna, sem Obama tókst að koma í
gegnum þingið þrátt fyrir harða
mótspyrnu repúblikana. Vanda-
málin í kringum nýju trygginguna
stöfuðu ekki síst af því að ekki stóð
steinn yfir steini á heimasíðunni
þar sem hægt var að fá upplýs-
ingar og skrá sig. Í þokkabót hafa
þúsundir Bandaríkjamanna fengið
uppsagnir á tryggingum sínum,
þrátt fyrir að Obama hafi lofaði því
að þeir, sem væru ánægðir með
sínar tryggingar, gætu haldið
þeim.
Framkvæmd laganna virðist hafa
verið illa undirbúin og lítið samráð
haft við yfirvöld og tryggingafélög
í ríkjum Bandaríkjanna.
Hin viðvaningslegu vinnubrögð
hafa vakið mikla óánægju í hans
eigin herbúðum. Demókrötum, sem
þurfa að sækjast eftir endurkjöri í
þingkosningunum á næsta ári, líst
ekki á blikuna. Mary Landrieu,
öldungadeildarþingmaður demó-
krata frá Louisiana, er dæmi um
það. Hún er komin með sitt
eigið frumvarp til að hreinsa
til í heilbrigðismálunum.
Klúðrið í heilbrigðismál-
unum gæti dregið dilk á
eftir sér á fleiri sviðum og
er þá einkum horft til
þess að áætlanir hans lög-
gjöf um málefni innflytj-
enda gætu farið út um
þúfur.
Samkvæmt könnun sjón-
varpsstöðvarinnar NBC og
dagblaðsins Wall Street Jo-
urnal fyrir tveimur vikum
naut forsetinn velþóknunar 42%
kjósenda. Fyrir rúmri viku mældist
stuðningur við hann 41% hjá rann-
sóknarsetrinu Pew. Á miðvikudag
sýndi mæling Quinnipiac-háskóla
að velþóknun á störfum forsetans
væri komin niður í 39% og hefur
hann ekki farið lægra.
Óvinsældir repúblikana
huggun?
Obama getur kannski huggað sig
við það að Repúblikanaflokkurinn
er enn óvinsælli. Velþóknun á hon-
um er komin niður í 30% eftir lok-
un ríkisstofnuna og þræturnar um
skuldaþakið í október. Repúblik-
anar tóku heilbrigðislögin í gíslingu
í deilunni um fjármálin, urðu að
gefa eftir og töpuðu slagnum með
afgerandi hætti.
Úrslit kosninganna í byrjun nóv-
ember gefa ef til vill engar afger-
andi vísbendingar um hina póli-
tísku stöðu, en benda þó til þess að
það geti kostað flokkinn í kosn-
ingum nái harðlínumenn of miklum
ítökum. Átökin milli hófsamra
repúblikana og teboðshreyfing-
arinnar fyrir næstu forsetakosn-
ingar gætu orðið blóðug, en eins og
sakir standa eru ítök repúblikana
meiri en kann að virðast. Þeir hafa
tögl og hagldir í ríkisfjármálunum
og hafa haft það síðan þeir yfirtóku
fulltrúadeild þingsins eftir kosning-
arnar 2010.
Í ágúst 2011 þegar stóðu yfir
viðræður um að afstýra því að ríkið
færi í vanskil – sama atburðarásin
endurtekur sig með tilbrigðum –
var samþykkt krafa repúblikana
um að færi þingið yfir tiltekin
mörk í útgjöldum yrði sjálfkrafa
flatur niðurskurður í öllum ríkisút-
gjöldum. Demókratar lögðust hart
gegn því að orðið yrði við þessari
kröfu, en Obama gaf eftir og er því
nú haldið fram að þetta sé lág-
punkturinn á valdaferli hans.
Obama var að hugsa um að ná
endurkjöri þegar hann féllst á
þessa málamiðlun og vonaðist til að
hafa áhrif á óákveðna kjósendur.
Hann náði reyndar endurkjöri, en
kannanir sýna að ákvörðun hans
hafði ekki tilætluð áhrif. Óákveðnir
kjósendur töldu að málamiðlunin
sýndi að hann væri veikur fyrir.
Það er því á brattann að sækja
fyrir Obama, en fullsnemmt að af-
skrifa hann. Því var haldið fram að
sagan sýndi að forseti, sem hefði
þurft að glíma við slappt efnahags-
líf og hefði ekki notið velþóknunar
helmings kjósenda megnið af fyrra
kjörtímabili sínu gæti ekki náð
endurkjöri. Það var öðru nær.
Varð skraut-
fjöðrin að
myllusteini?
BARACK OBAMA Á RÚM ÞRJÚ ÁR EFTIR AF KJÖRTÍMABILI
SÍNU, EN EKKERT GENGUR UPP HJÁ HONUM, VINSÆLDIR
HANS HAFA DALAÐ OG HAFA VAKNAÐ SPURNINGAR UM
HVORT HANN GETI NÁÐ SÉR Á STRIK Á NÝJAN LEIK.
Ted Cruz,
aðal and-
stæðingur
Obama
SKORIÐ SJÁLFKRAFA
Sölumenn tryggingafélags í Flórída kynna þá kosti, sem í boði eru samkvæmt nýjum heilbrigðislögum Baracks Obama
Bandaríkjaforseta, fyrir viðskiptavinum. Framkvæmd laganna hefur verið brösótt og þurfti Obama að biðjast afsökunar.
AFP
* Ég biðst afsökunar á að hafa ekki staðið mig betur undanfarnamánuði.Barack Obama Bandaríkjaforseti baðst afsökunar á mistökum stjórnar sinnar, meðal annars í
að framfylgja nýjum heilbrigðislögum, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu á fimmtudag.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is