Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Blaðsíða 38
villtasta tískutímabil síðustu aldar. Elska þetta.
Þá voru það þröngir kjólar, fjaðrir, pallíettur
kögur, perlur og hattar og allir slepptu fram
af sér beislinu, fullt af höttum og greinlega
gaman að vera til. Millisítt hár. Krullujárn
mikið notuð og lokkar niður á enni og í
hliðum. Herratískan þarna var líka æð-
isleg, rosalega flott, en kventískan var
meira áberandi.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan
stíl?
Mér finnst ótrúlega gaman að sjá fjölbreytileika
tískunnar og hvað ungt fólk á Íslandi er með flott-
an stíl og þorir að vera öðruvísi. Ég get ekki nefnt
eina manneskju en auðvitað er það Coco Chanel
sem er mér efst í huga því hún var orginal og fór
ótroðnar slóðir. Henni að þakka að við konur byrj-
uðum að ganga um í buxum og hún t.d. hannaði
fyrsta sundbolinn.
Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú
tókst þátt í?
Já, ég lendi oft í tískuslysum og sumum viljandi.
Hentist út í ísbúð eitt laugardagskvöldið rétt fyrir
lokun og græðgin var svo mikil að ná fyrir lokun
að ég fattaði þegar ég var mætt í ísbúðina að ég
var í síðum náttkjól, með maska í andlitinu, blautt
hár í hnút og í hælaskóm og pels. Dóttir mín
spurði mig: mamma, ertu ekki að skrifa tískubók?
Bíddu bara úti í bíl. Ég held að verstu tískuslysin
séu þó þegar maður lendir í því að mála sig of
mikið – ég fæ hroll þegar ég skoða 20 ára gamlar
myndir af mér. Tala nú ekki um að spreyja of
miklu og vondu ilmvanti. Ég hef pottþétt lent í því
þegar t.d. Calvin Klein kom með Eternity og Es-
cape og alla þessa gömlu góðu ilmi, ég bókstaflega
ofnotaði þá … kannski gerðu það bara allir á þess-
um tíma, a.m.k. sagði aldrei neinn neitt við mig.
En allt annað fyrirgefst.
Hvaða vetrartrend ætlar þú að tileinka þér?
Kjóla, leður, prjón, flauel, skemmilegar yfirhafn-
ir, húfur og hatta og að sjálfsögðu hnéhá stígvél.
Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns?
Úff, ég á föt mjög lengi því ég kaupi mér yf-
irleitt klassískar flíkur sem ég blanda svo með
nýjustu trendunum. Ef ég hitti á gott gallabux-
nasnið og lit sem ég fíla þá eru
það alltaf bestu kaupin sem
og flottir skór. Í seinni tíð
elska ég flottar yfirhafnir
og hef keypt mér nokkrar
sem ég nota ár eftir ár.
En þau verstu?
Ég held klárlega að
verstu kaupin mín hafi
verið vesti sem ég keypti
á verslunarfylliríi í Am-
eríku fyrir nokkrum ár-
um en þá missti ég mig í
Mall of America og
keypti mér grænt loð-
vesti í Urban Outfitt-
ers. Minnti pínu á
ógreiddan Kermit
frosk í þessu vesti.
Hvaðan sækir þú innblástur?
Það er ótal margt sem veitir mér innblástur. Það
má segja að ég sæki innblástur í alla fallega hluti,
hönnun og arkitektúr. Nú svo veita börnin mín, vinir
mínir og fjölskylda mér mikinn innblástur sem og
skemmtileg verkefni. Mér finnst nefnilega svo mik-
ilvægt að hafa gaman af lífinu því þá kemur inn-
blásturinn til manns á svo ótal vegu. Jákvæðni núm-
er eitt tvö og þrjú, takk.
Hverju er mest af í fataskápnum?
Í dag eru það kjólar en ég elska að nota kjóla
bæði fínt og hversdags. Ég á kjóla sem ég get notað
fínt og síðan klætt þá niður. Ég elska flíkur sem ég
get notað við öll tækifæri.
Ég tek reglulega til í fataskápnum mínum (ókei,
nú veit ég að fjölskylda mín fær hláturskast) en ég
að vísu tek föt frá sem ég nota ekki hverju sinni og
reyni að sortera t.d. tvisvar á ári út sumarfötin þeg-
ar haustar og svo vetrarfötin að vori. Í dag er að
vísu mikið svart í skápnum mínum en þó virðist vera
sem gull og glamúr sé að vakna til lífsins, enda þessi
árstími núna sem maður virkilega má vera ýktur í
öllum pallíettunum og skrautinu. Elska þennan árs-
tíma.
Ég á alltaf ákveðnar grunnflíkur sem ég nota mik-
ið og ætli ég eigi ekki mest af svörtum hlýrabolum
og gallabuxum en ég klæði bæði gallabuxur upp og
niður og svo nota ég hlýraboli mikið innanundir því
mér finnst alltaf flott að vera í lagskiptum fatnaði.
Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl?
Innst inni er ég í raun klassísk í fatastíl mínum en
að sjálfsögðu er tískudívan
aldrei langt undan. Þetta
er svona pínu eins og að
vera blanda eða kokteill.
Stundum er ég prúð
meyja og stundum pínu
villt ljón. Ég er frekar
mínimalísk og vil hafa
einn flottan hlut en er
minna í jólatrés-
stemningunni þó svo að
ég muni að sjálfsögðu taka
fram skrautið í desember
og skreyta mig frá
toppi til táar.
Ef þú fengir aðgang
að tímavél sem
gæti flutt þig aftur
til árs að eigin vali
og þú fengir dag til
að versla, hvaða ár
myndirðu velja og
hvert færirðu?
Pottþétt bannárin,
„roaring twenties“, –
villt glæpamennska,
villt tíska, leynibúllur
þar sem mafíósar og
skvísur
skemmtu
sér.
Charleston var
dansinn. Þetta er pottþétt
ÍSLENDINGAR ERU MEÐ FLOTTAN STÍL OG ÞORA AÐ VERA ÖÐRUVÍSI
Tískudívan er aldrei
langt undan
EVA DÖGG, EIGANDI VEFSÍÐUNNAR TÍSKA.IS, HEFUR STARFAÐ Í TÍSKUBRANSANUM
Í UM 20 ÁR. NÝVERIÐ KOM ÚT TÍSKUBÓKIN Í RITSTJÓRN EVU DAGGAR
ÞAR SEM HÚN HJÁLPAR LESENDUM AÐ FINNA SINN EIGIN STÍL.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Coco Chanel
Góðar gallabuxur
eru nauðsynlegar
í fataskápinn.
Eitt af
vetrartrend-
unum er
hnéhá stígvél.
Eva Dögg kaupir yfirleitt
klassískar flíkur sem
hún blandar svo með
nýjustu trendunum.
Morgunblaðið/Ómar
*Föt og fylgihlutir Á veturna er vissara að vera vel skóuð og gróf ökklastígvél geta komið sér vel í slabbinu »40