Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Blaðsíða 37
Vinsæll til kennslu
Leikurinn er mjög einfaldur í uppbyggingu, og
hægt er að fá margvíslegar viðbætur við leikinn
sem breyta þeim möguleikum sem í boði eru. Þá
er einfalt að setja upp vefþjóna sem gera mörgum
leikmönnum kleift að spila í sama leikheimi. Þetta
hefur meðal annars gert leikinn að vinsælu tóli
við byrjendakennslu á tölvur og í forritun. Sem
dæmi má nefna að leikurinn hefur verið einn af
undirstöðuþáttum í námskeiðum hjá tölvuskólanum
Skema, þar sem börnum eru kennd fyrstu skrefin
í forritun. Þá hefur leikurinn einnig gefist vel í að
beisla sköpunargleði barna í kennslustofunni.
Kennarar hafa einnig notað hann til að kenna
börnum stærðfræði, ekki síst rúmfræði. Skóli í
Kaliforníu notaði leikinn við vetrarlangt verkefni
þar sem nemendur í 7. bekk sköpuðu sér heilt
samfélag saman og komu sér saman um hvaða
reglur ættu að gilda þar, mótuðu menningu, og að
lokum hagkerfi.
Árangurinn af notkun Minecraft í skólastofunni
hefur verið slíkur að á síðasta ári tilkynntu Sam-
einuðu þjóðirnar að útbúin hefði verið sérútgáfa
leiksins sem notuð yrði til að gefa börnum tæki-
færi til að hafa áhrif á borgarskipulag í tengslum
við Habitat-verkefni Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun borga. Börn fá að nota þessa út-
gáfu leiksins til þess að sýna hönnuðum og
skipulagsyfirvöldum hvernig þau sjá fyrir sér að
borgin ætti að vera. Samkvæmt fréttatilkynningu
stendur til að nota útgáfuna í tengslum við
skipulag rúmlega 300 svæða í borgum víðsvegar
um heiminn fram til ársins 2016, en fyrsta verk-
efnið er þegar farið af stað í Nairobi í Kenía.
Í Svíþjóð hefur Miðstöð hönnunar og arkitekt-
úrs sett upp sérstakan vefþjón þar sem allar
landfræðilegar upplýsingar Stokkhólmsborgar hafa
verið færðar inn í sýndarheim í Minecraft sem
nefnist Blockholm. Þar geta íbúar (og aðrir) not-
að leikinn til þess að breyta ásýnd borgarinnar
eða endurskapa eftir eigin höfði. Að sögn Mats
Karlssons verkefnastjóra er þetta fjölmennasta
tilraun í byggðarskipulagi sem fram hefur farið,
en alls eru 100.000 byggingarsvæði skilgreind í
Blockholm. Þessi hugmynd hefur svo verið yf-
irfærð á fleiri borgir í Svíþjóð þar sem ungu
fólki gefst kostur á að hafa áhrif á borg-
arskipulag í gegnum verkefni sem kallast Hverfið
mitt.
Sköpun Westeros
Besta dæmið um þá gríðarlegu sköpunargleði sem
brýst út hjá leikmönnum Minecraft er þó líklega
sköpun Westeros, sem er sögusvið hinna vinsælu
bóka og sjónvarpsþátta, Game of Thrones. Það er
erfitt að lýsa því sem þar hefur átt sér stað með
orðum. Nokkrir aðdáendur bókanna tóku sig sam-
an og byrjuðu að byggja kastala samkvæmt lýs-
ingum úr bókunum á netþjóni sem þeir nefndu
Westercraft. Smám saman fjölgaði þátttakendum
og verkefnið fór að vinda upp á sig. Nú hefur
verið skapað módel af stórum hluta sögusvæðisins
sem hlutfallslega jafngildir landsvæði sem myndi
nema um 1.300 ferkílómetrum í raunveruleikanum.
Nákvæmnin í sköpuninni er með ólíkindum, og
nákvæmar leiðbeiningar liggja fyrir þátttakendum
um hvernig standa skuli að gerð nýrra bygginga,
eins konar byggingarreglugerðir fyrir leikmenn.
Þar er til dæmis kveðið á um að ef byggt er
eldstæði innandyra verði að finnast reykháfur ut-
an á byggingunni til að tryggja viðunandi loft-
ræstingu. Slík endursköpun sögusviðs frægra
bóka er ekki með öllu óþekkt, því áður höfðu
aðdáendur Harry Potter byggt nákvæma eftirlík-
ingu á Hogwarts-galdraskólanum.
Nú má spyrja sig hvenær við fáum land-
fræðiupplýsingar Reykjavíkurborgar inn á Minec-
raft-netþjón svo almenningur geti prufað sig
áfram með að byggja upp borgina, með eða án
flugvallar og/eða byggðar í Viðey.
17.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Proximity Project er frábær síma-
leikur þar sem spilarinn klæðist
vængbúningi eins og fallhlífar-
stökkvarar gera svo gjarnan þessa
dagana og hendir sér niður snar-
brattar fjallshlíðar. Fær stig eftir því
hversu nálægt spilarinn þorir að
vera og hvað hann fer marga hringi
á leiðinni. Gríðarlega hraður og
skemmtilegur leikur sem fær hárin
til að rísa. Góð grafík og hann
klárast ekkert svo auðveldlega
þrátt fyrir mikla spilun.
PROXIMITY PROJECT
Adrenalín
niður fjall
Tæknin lætur engan leik vera. Nú
er gamla góða sjóorrustan komin í
snjallsímann þar sem markmiðið er
það sama og í gamla pappírs-
leiknum. Skipunum er stillt upp og
síðan á mótherjinn að reyna að
finna skipin og sprengja þau í loft
upp. Hægt er að spila við tölvuna
og í tveggja manna leik. Þá er einnig
hægt að spila í gegnum Bluetooth-
tæknina við aðra spilara sem hafa
náð í leikinn á símann eða spjald-
tölvuna.
BATTLESHIP 2
Gamla góða
sjóorrustan
Nóg hefur verið rætt og ritað um
íslenska smáforritið QuizUp en
eftir að Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins prófaði það er ekki annað
hægt en að mæla með því. Forritið
er einfalt í notkun þar sem tengst
er í gegnum Fésbókina eða Twitter-
aðganginn og síðan er spilað algjör-
lega eftir höfði spilarans. Flokkarnir
eru fjölmargir þar sem hægt er að
keppa á milli, hvort sem það eru
vinir þínir eða bláókunnir menn
eða konur út um allan heim.
Hugarleikfimi
við aðra
QUIZUP
Opnunartímar:
Smáralind
Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18
Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330
Laugavegi 182
Virka daga 10-18 | Laugardaga 11 - 16 | Sími 512 1300
iPadmini
Verðfrá:54.990.-
iPhone
Verðfrá:114.990.-
Jólagjöfin
fæsthjáokkur
NýttVISA tímabil
er hafið í verslun okkar
í Smáralind