Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013 HEIMURINN SEYJAR bylurinn H nneyja og olli mik gingu. Útilokað e u lífið í fellibylnum sem mælst hefu d-a. S arstofnan-mför a svæða. VENESÚELA CARACAS Mad-Nicolas uro , gaf, forsetiVenesúela kaút tilskipun um að læk ætti verð á rafmagns- tækjum. Hermenn vor sendir út af örkinni til taka yfir verslunarkeð sem selja r f k fjöldi versl handtekinn er að lækk a á beinast að leikföngum PÓLLAND V óllandiLögregla íV ragas til að kveða númmíkúlur og tá st út í göngu þjóðernissinna áofbeldi, sem brau Lagður var eldur að boga, semdegi sjálfstæðis. um regnbogans til að táknaskreyttur var lit og umburðarlyndij gf ölmennin u slaw orowskiKom forseti Póllands, bað Rússa, ökunar á að göngu- árás á rúsmenn skyldu reyna að gera ið íVarsjá. tið lí s fá fl lý Í bandarískum ríkisfjár- málum gildir sú regla sam- kvæmt samkomulagi frá 2011 að nái þingið ekki að halda útgjöldum ríkisins inn- an ákveðinna marka taki við sjálfkrafa, flatur nið- urskurður. Repúblikanar komu þess- ari reglu í gegn og Barack Obama forseti hefur sætt sig við hana svo lengi sem fé fáist til að fjármagna heil- brigðislög hans. Reglan hefur leitt til þess að í fyrsta skipti í 60 ár hafa útgjöld bandaríska al- ríkisins lækkað tvö ár í röð. Ríkið lendir hins vegar ítrekað í fjármögn- unarvandræðum út af skuldaþaki. Hlaupi skuldadeila í hnút blasa vanskil við rík- inu og þarf að loka ríkisstofnunum. Þannig fór í október og má búast við framhaldi í apríl í síðasta lagi. U mbætur í heilbrigð- ismálum áttu að vera skrautfjöðrin í hatt Baracks Obama, en nær væri að tala um myllustein. Með lög- unum hugðist hann sjá til þess að sem flestir Bandaríkjamenn hefðu sjúkratryggingu. Í október gátu Bandaríkjamenn byrjað að skrá sig í nýju tryggingaáætlunina. Síðan hefur allt farið í handaskolum. Í raun hefur hvert klúðrið rekið ann- að hjá forsetanum og hefur stuðn- ingur við hann aldrei mælst minni. Velta fréttaskýrendur nú fyrir sér hvort hann geti náð sér aftur á strik. Reynslan sýnir að forsetar á öðru kjörtímabili gera það sjaldn- ast. Allt í handaskolum Aðeins rétt rúmlega 100 þúsund manns völdu nýju sjúkratrygg- inguna í október, stjórnvöld höfðu vonast eftir hálfri milljón. Hún er hornsteinn nýju heilsugæslulag- anna, sem Obama tókst að koma í gegnum þingið þrátt fyrir harða mótspyrnu repúblikana. Vanda- málin í kringum nýju trygginguna stöfuðu ekki síst af því að ekki stóð steinn yfir steini á heimasíðunni þar sem hægt var að fá upplýs- ingar og skrá sig. Í þokkabót hafa þúsundir Bandaríkjamanna fengið uppsagnir á tryggingum sínum, þrátt fyrir að Obama hafi lofaði því að þeir, sem væru ánægðir með sínar tryggingar, gætu haldið þeim. Framkvæmd laganna virðist hafa verið illa undirbúin og lítið samráð haft við yfirvöld og tryggingafélög í ríkjum Bandaríkjanna. Hin viðvaningslegu vinnubrögð hafa vakið mikla óánægju í hans eigin herbúðum. Demókrötum, sem þurfa að sækjast eftir endurkjöri í þingkosningunum á næsta ári, líst ekki á blikuna. Mary Landrieu, öldungadeildarþingmaður demó- krata frá Louisiana, er dæmi um það. Hún er komin með sitt eigið frumvarp til að hreinsa til í heilbrigðismálunum. Klúðrið í heilbrigðismál- unum gæti dregið dilk á eftir sér á fleiri sviðum og er þá einkum horft til þess að áætlanir hans lög- gjöf um málefni innflytj- enda gætu farið út um þúfur. Samkvæmt könnun sjón- varpsstöðvarinnar NBC og dagblaðsins Wall Street Jo- urnal fyrir tveimur vikum naut forsetinn velþóknunar 42% kjósenda. Fyrir rúmri viku mældist stuðningur við hann 41% hjá rann- sóknarsetrinu Pew. Á miðvikudag sýndi mæling Quinnipiac-háskóla að velþóknun á störfum forsetans væri komin niður í 39% og hefur hann ekki farið lægra. Óvinsældir repúblikana huggun? Obama getur kannski huggað sig við það að Repúblikanaflokkurinn er enn óvinsælli. Velþóknun á hon- um er komin niður í 30% eftir lok- un ríkisstofnuna og þræturnar um skuldaþakið í október. Repúblik- anar tóku heilbrigðislögin í gíslingu í deilunni um fjármálin, urðu að gefa eftir og töpuðu slagnum með afgerandi hætti. Úrslit kosninganna í byrjun nóv- ember gefa ef til vill engar afger- andi vísbendingar um hina póli- tísku stöðu, en benda þó til þess að það geti kostað flokkinn í kosn- ingum nái harðlínumenn of miklum ítökum. Átökin milli hófsamra repúblikana og teboðshreyfing- arinnar fyrir næstu forsetakosn- ingar gætu orðið blóðug, en eins og sakir standa eru ítök repúblikana meiri en kann að virðast. Þeir hafa tögl og hagldir í ríkisfjármálunum og hafa haft það síðan þeir yfirtóku fulltrúadeild þingsins eftir kosning- arnar 2010. Í ágúst 2011 þegar stóðu yfir viðræður um að afstýra því að ríkið færi í vanskil – sama atburðarásin endurtekur sig með tilbrigðum – var samþykkt krafa repúblikana um að færi þingið yfir tiltekin mörk í útgjöldum yrði sjálfkrafa flatur niðurskurður í öllum ríkisút- gjöldum. Demókratar lögðust hart gegn því að orðið yrði við þessari kröfu, en Obama gaf eftir og er því nú haldið fram að þetta sé lág- punkturinn á valdaferli hans. Obama var að hugsa um að ná endurkjöri þegar hann féllst á þessa málamiðlun og vonaðist til að hafa áhrif á óákveðna kjósendur. Hann náði reyndar endurkjöri, en kannanir sýna að ákvörðun hans hafði ekki tilætluð áhrif. Óákveðnir kjósendur töldu að málamiðlunin sýndi að hann væri veikur fyrir. Það er því á brattann að sækja fyrir Obama, en fullsnemmt að af- skrifa hann. Því var haldið fram að sagan sýndi að forseti, sem hefði þurft að glíma við slappt efnahags- líf og hefði ekki notið velþóknunar helmings kjósenda megnið af fyrra kjörtímabili sínu gæti ekki náð endurkjöri. Það var öðru nær. Varð skraut- fjöðrin að myllusteini? BARACK OBAMA Á RÚM ÞRJÚ ÁR EFTIR AF KJÖRTÍMABILI SÍNU, EN EKKERT GENGUR UPP HJÁ HONUM, VINSÆLDIR HANS HAFA DALAÐ OG HAFA VAKNAÐ SPURNINGAR UM HVORT HANN GETI NÁÐ SÉR Á STRIK Á NÝJAN LEIK. Ted Cruz, aðal and- stæðingur Obama SKORIÐ SJÁLFKRAFA Sölumenn tryggingafélags í Flórída kynna þá kosti, sem í boði eru samkvæmt nýjum heilbrigðislögum Baracks Obama Bandaríkjaforseta, fyrir viðskiptavinum. Framkvæmd laganna hefur verið brösótt og þurfti Obama að biðjast afsökunar. AFP * Ég biðst afsökunar á að hafa ekki staðið mig betur undanfarnamánuði.Barack Obama Bandaríkjaforseti baðst afsökunar á mistökum stjórnar sinnar, meðal annars í að framfylgja nýjum heilbrigðislögum, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu á fimmtudag. Alþjóðamál KARL BLÖNDAL kbl@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.