Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Blaðsíða 9
17.11. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
K
jartan Guðbergsson, betur
þekktur sem Daddi Disco, hélt
nýverið upp á 30 ára starfs-
afmæli sem diskótekari. „Ég
hef oft sagt að ég sé örugglega
elsti núlifandi, starfandi diskótekari landsins.
Það fer allavega að líða að því,“ segir Daddi
grafalvarlegur. „Auðvitað hefur maður hugs-
að að þetta sé orðið gott en það er ánetjandi
að stýra líðan fólks með tónlist og ég ákvað
að halda áfram á meðan það er hringt.“ Til
að svara háværu kalli þeirra sem söknuðu
gamla Thorvaldsen bars og þeirrar upplif-
unar sem hann skóp ásamt Hlyni Jakobssyni
á sínum tíma gripu þeir félagar tækifærið og
hafa snúið heim eftir langt hlé til þess að
flytja dansþyrstum gestum uppáhalds-
partítónlistina sína. „Thorvaldsen sem nú
gengur í endurnýjun lífdaga er kominn aftur.
Sama uppleggið, frábært starfsfólk og stað-
urinn aftur kominn í upprunalega stærð. Það
er komið 2003 aftur hjá okkur. Bara fjögur
ár í næsta 2007! Við eigum báðir ofboðslega
sterka tilfinningalega tengingu við staðinn og
líður ótrúlega vel þarna enda heyrist það á
stemningunni sem áreynslulaust bara datt
aftur í gang. Kunnugleg andlit fóru að
streyma að enda gengur okkar fólk að hlut-
unum vísum. Upphaflega hugmyndin með
Thorvaldsen var svona gott partí í Arn-
arnesi. Hvað svo sem það þýddi varð nið-
urstaðan góður hópur þar sem flestir þekkj-
ast, nóg er af öllu og svo stuðmúsík fyrir
allan peninginn. Fátt er betra en gott heima-
partí þar sem hægt er að taka snúning, fá
sér aðeins eða sitja og spjalla.“
Eins og í Saturday Night Fever
Daddi Disco byrjaði ungur að spila og hefur
hann komið víða við. Til að mynda virkur á
skemmtistaðnum vinsæla Hollywood sem
þá var og hét, staðsettur í Ármúla.
„Ég náði í endann á þessari
skemmtistaðamenningu sem
fólk þekkir úr Hollywood.
Á þessum tíma voru
skemmtistaðirnir ekki
bara skemmtistaðir held-
ur kom fólk þarna og
drakk í sig tíðarandann
og fylgdist með nýjustu
tískustraumum. Á dansgólf-
inu var þetta svolítið eins og í
Saturday Night Fever. Þegar
einhver mætti á dansgólfið sem vitað var að
gæti tekið einhver flott dansspor, myndaðist
sjálfkrafa pláss fyrir viðkomandi til að tjá
sig með mjöðmunum að vild,“ segir Daddi
sem rifjar upp gamla tíma. „Fólk átti alveg
sín lög og svona en þetta var allt önnur
menning en er í dag.“
Sakbitin sæla
Daddi heldur uppi fjörinu með allskonar tón-
list en diskó-viðurnefnið vísar ekki í þá
tengund tónlistar heldur var þetta
upphaflega stytting á orðinu
diskótekari. „Það var Bene-
dikt Ólafsson, samstarfs-
maður á unglinga-
skemmtistaðnum Traffik,
sem upphaflega byrjaði að
nota þetta. Síðan varð
ekki aftur snúið. Diskó-
tónlistin er auðvitað alltaf
skotheldur gleðigjafi en auð-
vitað er alltaf pínulítið snúið
að velja lög sem koma sem flest-
um af stað en þetta snýst um að velja lagið á
réttum stað og á réttum tíma.“
Daddi segir gaman að spila lögin sem fáir
hlusti á nema þegar kíkt er út á lífið. „Gott
dæmi um það eru heljarmenni sem öskra há-
stöfum og syngja með I wanna dance with
somebody með Whitney Houston eða I will
survive með Gloriu Gaynor, en sverja það af
sér að fíla að dansa við svoleiðis lög. Þegar á
hólminn er komið er bara erfitt að dilla sér
ekki við öll þessi lög.“
Tónlistin öflugt tæki
Aðspurður hvað standi upp úr á hans diskó-
tekaraferli segir Daddi það vera hvað tónlist-
in sé verðmæt við stjórn á aðstæðum. „Það
sem stendur upp úr í mínum huga er hvað
tónlist er ótrúlega öflugt tæki til að stýra
upplifun hjá fólki. Maður hefur gengið í
gegnum svo margar kynslóðir af tónlist og
er enn, eftir öll þessi ár, að læra og upplifa
nýja hluti. Tónlistin nær einhvernveginn allt-
af að koma manni á óvart sem endalaus upp-
spretta gleði og hamingju.“
DISKÓSNIGILL MEÐ MEIRU MÆTTUR AFTUR VIÐ GRÆJURNAR
Daddi
svaraði
kallinu
Benedikt Ólafsson, sem eitt sinn var samstarfsmaður Dadda, sem veitti honum viðurnefið Disco fyrir mörgum árum og hefur fylgt honum síðan.
Morgunblaðið/Eggert
HINN ÞAULKUNNI DADDI DISCO
HEFUR ÞEYTT SKÍFUM Í ÞRJÁTÍU ÁR.
HANN ER NÚ MÆTTUR GAL-
VASKUR Á THORVALDSEN BAR
HRESSARI SEM ALDREI FYRR.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
Georg Holm, bassaleikari Sigur
Rósar, fékk sér glæsilegt Royal En-
field Electra-mótorhjól í október
og undruðust margir vina hans þau
kaup enda Georg ekki með mót-
orhjólapróf. Því var hinsvegar kippt
í liðinn í vikunni þegar hann stóðst
bóklega mótorhjólaprófið og bætt-
ist því stimpill í A-flokkinn í öku-
skírteinið hans. „Þá er maður offi-
cialy orðinn líffæragjafi …
Mótorhjólapróf komið í hús,“ sagði
kappinn í gríni á fésbókinni af þessu
tilefni.
Hjólið hans Georgs er af Electru-
gerð, með 350 cc mótor og er rúm
20 hestöfl. Orðspor hjólsins er
ákaflega gott en það þykir fara
auðveldlega í gang og þarf lítið við-
hald. Þá vegur mótorinn aðeins
180 kílógrömm. Sigur Rósar liðinn
verður svo sannarlega glæsilegur á
götum úti, keyrandi um á þessum
glæsilega mótorfák.
Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar, er kominn með mótorhjólapróf.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fyrst hjól svo próf
Billie Jean
Michael Jackson
On the floor
Jennifer Lopez og Pitbull
Respect
Aretha Franklin
ÞRJÚ HELSTU
STUÐLÖG DADDA
HEYRNARSTÖ‹IN
Þjónusta Heyrnarstöðvarinnar gengur út á aukin lífsgæði. Við bjóðum ókeypis
heyrnarmælingu, hágæða heyrnartæki og margvíslega sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Kynntu þér þjónustu okkar á heyrnarstodin.is og vertu í sambandi.
Við tökum vel á móti þér. Heyrumst.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is