Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Síða 12
Viðtal
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013
H
eimildarmyndin Ég
gafst ekki upp
verður sýnd á RÚV
á mánudagskvöld
en myndin segir frá
síðustu mánuðum í lífi Heiðu Dísar
Einarsdóttur sem lést 23 ára að
aldri úr krabbameini. Þau Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir og Egill
Eðvarðsson höfðu umsjón með gerð
myndarinnar og Jóhannes Kr.
Kristjánsson vann einnig efni sem
notað er í myndinni. Ég gafst ekki
upp byggist einnig á myndskeiðum
sem Heiða Dís tók sjálf en hún lést
haustið 2012.
Ragnhildur Steinunn hitti Heiðu
Dís fyrst vorið 2011 eftir að hafa
fengið ábendingu um sögu hennar.
Úr varð eftirminnilegt Kastljós-
viðtal og þau Ragnhildur Steinunn
og Egill segjast strax hafa séð að
saga Heiðu Dísar væri mun stærri
en eitt viðtal og ætti heima í enn
stærra samhengi. Úr varð að þau
réðust í gerð heimildarmyndar.
„Ég man vel eftir því þegar við
hittum Heiðu Dís í fyrsta skipti.
Við fórum heim til hennar til að
taka upp Kastljósviðtalið og mér
þótti strax eitthvað kunnuglegt við
það hvert við vorum að fara, eins
og reyndar gengur og gerist í þess-
ari vinnu þar sem maður fer út um
allar trissur. En þarna uppgötva ég
að ég er staddur á heimili bekkj-
arsystur dóttur minnar og það
kemur í ljós að hún er hálfsystir
Heiðu Dísar,“ segir Egill. Heiða
Dís bjó annars í Óðinsvéum og var
þarna í heimsókn hjá föður sínum
og stjúpmóður en móðir hennar og
systur búa einnig úti í Danmörku.
„Líkt og með alla sem kynntust
Heiðu þá varð maður hugfanginn af
þessari stúlku og fylltist aðdáun yf-
ir því hvað hún tjáði sig á þrosk-
aðan og yfirvegaðan hátt um þessi
veikindi sín og baráttuna við sjúk-
dóminn. Við Ragnhildur Steinunn
urðum strax sammála um að við
yrðum að gera mynd um hana.“
Var gefið ár
Níu mánuðum áður en hópurinn
kynnist hafði Heiðu Dís verið tjáð
að hún ætti aðeins ár eftir ólifað.
Þá hafði hún frá því að hún var 21
árs leitað margsinnis til læknis
vegna mikilla tíðablæðinga. Svörin
sem hún hafði fengið voru þau að
þetta væri eðlilegt – konur hefðu
mjög mismiklar blæðingar. Í eitt
skiptið missir hún hins vegar svo
mikið blóð að hún fellur í yfirlið og
er flutt á bráðadeild.
„Það er í fyrsta skipti sem Heiða
Dís er rannsökuð í sónar og í ljós
kemur að hún er með legháls-
krabbamein. Upp hefst krabba-
meinsmeðferð og um tíma er talið
að hún hafi sigrast á meininu. Ári
síðar er hún boðuð í eftirskoðun og
fær þau tíðindi að krabbameinið
hafi dreift sér og hún eigi bara ár
eftir en þetta var í september
2011,“ segir Ragnhildur Steinunn.
Ragnhildur Steinunn segir að það
hafi strax verið auðséð að Heiða
Dís ætlaði ekki að deyja. „Þegar við
hittum hana fyrst var erfitt að sjá
hve veik hún var í raun. Rétt áður
en Kastljósviðtalið fer í loftið fæ ég
símtal og þá er búið að leggja hana
inn á spítala. Ég hringi í hana og
spyr hvort hún vilji að við hættum
við að sýna viðtalið en hún vill ein-
dregið að það sé sýnt. Daginn eftir
heimsæki ég hana á spítalann og
um leið og hún segir mér frá þeim
miklu viðbrögðum sem hún fékk við
þættinum nefnir hún að hún hafi
fyrir nokkru horft á heimildarmynd
um baráttu við krabbamein sem
hafi gefið henni mikið og hana langi
að gera eitthvað sambærilegt. Þá
hafði hún verið að taka upp mynd-
skeið á símann af ýmsum stundum í
sínu lífi síðasta árið – líka þeim erf-
iðu. Þetta var því ekki síður að
hennar frumkvæði að þessi mynd
varð til – við höfðum óafvitandi öll
verið að hugsa það sama.“
Egill segir að bandarísk kona,
Kris Carr, sem hafði árum saman
barist við krabbamein og ekki látið
í minni pokann, hafi verið fyr-
irmynd Heiðu Dísar en Carr gerði
heimildarmyndina Crazy Sexy Can-
cer sem Heiða Dís vísaði í. „Hún
sagði okkur að afstaða Carr til lífs-
ins og sjúkdómsins hefði haft mikil
áhrif á hana og að hún væri að
temja sér það sama. Það hugarfar
snerist um að vera hvatning fyrir
aðra, í raun ekki bara fyrir þá sem
væru að berjast við sjúkdóma held-
ur hvatning til okkar allra – líka
þeirra fullfrísku.“
Heiða Dís hreif Egil og Ragn-
hildi Steinunni með sér og þau
segja að það hafi verið langt frá því
að þau hafi verið að fylgjast með
stúlku sem var að deyja. „Við vor-
um að fylgjast með stúlku sem átti
í erfiðri baráttu við illvígan sjúk-
dóm en var samt svo löðrandi af
ótrúlegri jákvæðni, gleði og gjaf-
mildi. Faðir hennar segir í mynd-
inni að síðustu vikur og daga í lífi
sínu hafi Heiða Dís enn verið í því
hlutverki að vera sá sem gefur
frekar en að vera þiggjandinn.
Þetta er í raun mynd um lífið en
ekki dauðann,“ segir Egill.
Valdi sjálf erfið augnablik
Heiða Dís fékk fljótlega litla
myndavél til að taka upp þau
augnablik sem hún vildi deila með
áhorfendum, sérstaklega stundir
sem voru erfiðar fyrir hana og
þeim Ragnhildi Steinunni og Agli
þótti að Heiða Dís ætti að meta
sjálf hvað hún vildi sýna. „Hún
sagði að myndin yrði aldrei sönn og
rétt nema það væri allt sýnt – líka
þegar henni liði illa. Það er auðvit-
að svolítið erfitt fyrir kvikmynda-
rgerðarfólk að vega og meta þessa
hluti, við reynum að vera varkár í
svona málum af tillitssemi. Þetta
var því mjög góð leið fyrir okkur –
að hún skyldi taka upp erfiðar
stundir og meta það sjálf hvað hún
vildi sýna áhorfendum. Það auð-
veldaði líka vinnslu myndarinnar
þar sem Heiða Dís bjó úti í Dan-
mörku og hún gat þá tekið upp efni
þar,“ segir Ragnhildur Steinunn.
„Í myndinni eru bæði skemmti-
legir hlutir þar sem Heiða Dís er í
banastuði með vinum sínum og
sjálfri sér og líður vel, en svo eru
líka myndskeið sem ég verð að
segja að ég átti mjög erfitt með
horfa á og upplifa einn í myrkvuðu
klippiherberginu. Ég hugsaði
stundum með mér: „Ætlarðu virki-
lega að setja þetta inn í myndina,
Egill?“ En alltaf heyrði maður rödd
Heiðu hvetjandi að mest um vert
væri að myndin væri sönn. Og
myndin er ekki bara um Heiðu Dís
heldur er hún raunverulegur þátt-
takandi í gerð hennar,“ segir Egill.
Heiða Dís var allt til enda sann-
færð um að hún myndi ekki deyja.
Hún keypti sér meðal annars íbúð
með kærastanum úti í Danmörku
og fór út í endurbætur á henni.
Engu að síður gerði hún sér grein
fyrir því að það væri einhver lítill
möguleiki á því að svo færi ekki og
kannski þess vegna skipulagði hún
meðal annars eigin jarðarför.
„Ég held að þegar henni er gefið
þetta ár breytist hún mjög mikið.
Ragnhildur Steinunn og Egill Eðvarðsson hafa alla tíð verið afar góðir vinir ekki síður en vinnufélagar. Verkefnið hafi í
senn gefið þeim gleði og reynt afar mikið á en þau hafi allan tímann trúað að Heiða Dís myndi lifa veikindin af.
Morgunblaðið/Golli
Hún var
sigurvegari
RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIR OG EGILL EÐ-
VARÐSSON FYLGDU HINNI 23 ÁRA GÖMLU HEIÐU DÍS
EINARSDÓTTUR EFTIR SÍÐUSTU MÁNUÐINA Í LÍFI HENNAR.
LÍFSREYNSLAN VAR SÉRSTÖK FYRIR RAGNHILDI STEINUNNI
ÞVÍ MÓÐIR SJÓNVARPSKONUNNAR SEM LÉST FYRIR 25 ÁR-
UM VAR Í LYFJAMEÐFERÐ Á SAMA SPÍTALA OG HEIÐA DÍS
LÁ Á ÚTI Í DANMÖRKU.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is