Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.11.2013, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.11. 2013 Ferðalög og flakk S ólin var rétt komin upp og rauðum bjarma sló á himin þegar við kom- um til Delí og út úr flugstöðinni sem kennd er við Indiru Gandhi. Þungur raki var í hitamettuðu loftinu þegar við komum út og drógum töskurnar okkar í átt að rútubíl sem beið. Við hefðum raunar getað sparað okkur ómakið við að rogast með farangur, strax flykktust að okkur dvergvaxnir Indverjar sem vildu bera byrð- arnar og fá klink fyrir. Og þetta er ind- verskt þjóðlíf í hnotskurn; mannmergð og fátækt. Fjórskipt þjóð Indverska þjóðin skiptist í fernt með tilliti til efnahags. Í efstu stéttunum tveimur eru prestar og svo stríðsmenn – það er aðall- inn. Í þriðja laginu eru kaupmenn. Í því fjórða eru hinir ósnertanlegu, eins og það er kallað, það er fólk sem hefur úr litlu að spila og hefur takmarkaða möguleika til að lesa sig upp um skör og til betri efna. „Indverskt þjóðlíf hefur mótast á mörg- um öldum, meðal annars af hindúatrúnni sem 80% landsmanna aðhyllast. Hér mæt- ast ólíkar stefnur og straumar og það er fólkið sem gerir landið áhugavert,“ sagði Muzaffar Shah. Hann var leiðsögumaður í 20 manna hópi sem fór í Indlandsleiðangur á vegum Bændaferða. Dvalist var átta daga í landinu og farið milli staða á svonefndum Gullna hring í norðurhluta landsins, sem nálgast heila heimsálfu að stærð. Áhrifa Breta gætir enn Höfuðborgin Delí er heimur út af fyrir sig. Borgin er tvískipt, það er gamli og nýi borgarhlutinn. Sá síðarnefndi var bólvirki breska heimsveldisins á nýlendutímanum, en það var fyrst árið 1947 sem Indverjar fengu sjálfstæði undir forystu Mahatma Gandhi. Áhrifa Breta í landinu gætir þó enn, að minnsta kosti er nærtækt að þokkaleg enskukunnátta Indverja ráðist að einhverju leyti af þessari fortíð. Flestir Höllin Fetebur Sirki var byggð árið 1570 en yfirgefin aðeins fjórtán árum síðar enda þótti óbyggilegt á staðnum sakir vatnsskorts. Taj Mahal er ein frægasta bygging í heimi og er tilkomumikil að sjá, hvar sem til hennar er horft. Móðir í Nýju-Delí með ungabarn í örmum sér. Hún brosti og bað um peninga. Kýr í Indlandi eru heilagar, mega allt og í ruslatunnum leynist æti sem þær gera sér að góðu svo sumum finnst kannski nóg um. Fyrir utan veitingastað skammt fyrir sunnan Delí voru þessir ungu tónlistarmenn. Stúlkan söng en pilturinn strauk fiðlubogann. Það er fólkið sem gerir landið áhugavert,“ sagði Muzaffar Shah. Kirlzal Sinal þekkti til Íslands vegna Eyjafjallajökls. Hann fékk ís- lenskan 500 króna seðil sem áminningu um eldeyjuna í norðri. Blik í augum betlarans INDLAND ER ÞVERSTÆÐA. STÆRSTA LÝÐRÆÐISRÍKI HEIMS OG MEIRA EN MILLJARÐUR MANNA BÝR Í LANDINU. HALLIR OG HOF EN MANNLÍFIÐ, RINGLULREIÐIN OG UNDARLEG DEIGLA STEFNA OG STRAUMA VERÐUR MÖRGUM ÞÓ HUGSTÆÐARI. Myndir og texti: Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is * Indversktþjóðlíf hefurmótast á mörgum öldum, meðal ann- ars af hindúatrúnni EYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI I | REYKJA HÚSGAGNAHÖLLIN • B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • OP I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 , l a u g a r d . 1 1 - 1 7 o g s u n n u d . 1 3 - 1 7 O AfsláttuR 6.000 kRónuR! AfsláttuR 6.000 kRónuR! AfsláttuR 2.000 kRónuR! AfsláttuR 3.000 kRónuR! ANDREW Svart, hvítt og brúnt leður. TILBOÐSVERÐ: 13.990 KR. Fullt verð 19.990 ILJANA PU-svart. Svart lakkaðir viðarfætur. TILBOÐSVERÐ: 9.900 KR. Fullt verð 15.990 PIANA Ljós-grátt áklæði. TILBOÐSVERÐ: 7.990 KR. Fullt verð 9.990 KITOS PU-svart og hvítt. Krómfætur. TILBOÐSVERÐ: 10.990 KR. Fullt verð 13.990 ASAMA Margir litir. Krómfætur. TILBOÐSVERÐ: 6.390 KR. Fullt verð 7.990 AfsláttuR 3.000 kRónuR! ATHENA Ljóst og steingrátt áklæði. Viðarfætur. TILBOÐSVERÐ: 10.990 KR. Fullt verð 29.990 MARcus 20% AfsláttuR!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.